Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
EMPIRE
VARIET Y
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
75%
L
eikstjórararnir Aaron Nee
og Adam Nee vita ná-
kvæmlega hvað það er
sem áhorfendur vilja.
Týnda borgin er fullkomið dæmi
um afþreyingu, hún er einföld,
fyrirsjáanleg og skemmtileg. Kvik-
myndin er blanda af rómantískri
gamanmynd og ævintýramynd og
segir frá því ævintýri sem skáld-
sagnahöfundurinn Loretta (Sandra
Bullock) og forsíðumódelið hennar
(Channing Tatum) lenda í.
Loretta Sage er miðaldra rithöf-
undur sem skrifar rómantískar
ævintýrasögur sem snúast um
skáldaða hetju að nafni Dash
McMahon, sem Alan Caprison er
módel fyrir. Útgefandi hennar,
Beth, krefst þess að hún fari í
bókaferð með Alan til að kynna nýj-
asta verk sitt, The Lost City of D.
Eftir fyrstu bókarkynninguna er
Lorettu rænt af milljarðamær-
ingnum Abigail Fairfax. Fairfax tel-
ur hana þá einu sem geti hjálpað
sér að finna fjársjóðinn „Eld-
krúnuna“, enda enginn vitleysingur
og bækur hennar byggðar á raun-
verulegum sögulegum rannsóknum.
Alan, sem er hrifinn af Lorettu án
hennar vitneskju, verður vitni að
ráninu og er staðráðinn í að bjarga
ástinni sinni.
Týndu borginni hefur verið líkt
við Romancing the Stone (Robert
Zemeckis, 1984) og Mummy-
þríleikinn (Stephen Sommer, Rob
Cohen, 1999, 2001, 2008). Allar til-
heyra þær sömu kvikmyndagrein
og eru með álíka skemmtilegt dúó í
aðalhlutverki. Channing Tatum og
Sandra Bullock eru dásamleg í
aðalhlutverkunum. Teymið reyndi
að fá Ryan Reynolds til að leika
aðalkarlhlutverkið í myndinni á
móti Bullock en samningar tókust
ekki og Tatum hreppti hlutverkið
sem betur fer. Hann er fullkominn í
þetta hlutverk enda lítur hann út
eins og hann eigi heima á forsíðu
rómantískrar kilju. Tatum er mjög
meðvitaður um hversu sykursætur
hann er og er óhræddur við að gera
grín að sjálfum sér fyrir útlitið.
Hann hefur ítrekað leikið svipaða
týpu og Alan, t.d. í Jump Street
(Phil Lord, Christopher Miller,
2021, 2014) og Magic Mike-
myndunum (Steven Soderbergh,
Gregory Jacobs, 2012, 2015). Erfitt
er að ímynda sér annan jafnhæfan
Tatum til að leika þessa viðkvæmu
ljósku og rómantíska viðfang Lor-
ettu.
Alan er stórskemmtilegur kar-
akter. Hann er ekki bara gull-
fallegur karlmaður heldur hugsar
hann vel um sína konu en er
kannski ekki fær um að bjarga
henni á þann máta sem hann hafði
séð fyrir sér. Alan er ekki karlmað-
urinn sem skýtur af byssu heldur
sá sem kemur með andlitsmaska í
ferðalagið. Bullock er þá ekki óvön
því að leika nördalega og klaufalega
konu en álíka týpu hefur hún m.a.
leikið í The Heat (Paul Feig, 2013)
og Miss Congeniality (Donald Pet-
rie, 2000). Söguefni myndarinnar er
kannski ekki krefjandi fyrir Bullock
og mótleikara hennar enda fá
áhorfendur ekki að sjá neitt ferskt
frá leikurunum en það skiptir engu
máli, leikstjórarnir vita nákvæm-
lega hvernig mynd þetta er. Týnda
borgin er skemmtiefni þar sem Bul-
lock er hetjan og Tatum daman í
neyð.
Ekki má gleyma að nefna auka-
leikarana, sem alfarið stela senunni.
Þar á meðal er Brad Pitt sem leik-
ur Jack Trainer, sanna ævin-
týrahetju líkt og hann leikur í Once
Upon a Time … in Hollywood
(Quentin Tarantino, 2019). Í þetta
sinn er Daniel Radcliffe svo ekki
hetjan heldur illmennið og ég er
ekki frá því að hann hefði getað
leikið Voldemort miðað við frammi-
stöðu sína í Týndu borginni.
Týnda borgin er kvikmynd sem
við höfum séð áður en við viljum sjá
aftur enda skemmtileg og kannski
ekkert meira en það. Er það ekki
allt í lagi? Leikstjórarnir, Aaron og
Adam Nee, eru fullkomlega meðvit-
aðir um hvað þeir eru að gera: Þeir
eru að mata áhorfendur á sætind-
um og þegar þau eru búin hungrar
þá í meira. Endir kvikmyndarinnar
býður upp á framhaldsmynd og ég
er mjög spennt fyrir því að Týnda
borgin taki upp þráðinn þar sem
Mummy-myndirnar skildu hann eft-
ir.
Skemmtiefni Týnda borgin er kvikmynd sem við höfum séð áður en viljum sjá aftur enda skemmtileg og kannski
ekkert meira en það, skrifar rýnir. Hér má sjá Channing Tatum og Söndru Bullock, sem fara með aðalhlutverkin.
Fyrirsjáanlegt fjör
Sambíóin og Smárabíó
The Lost City bbbmn
Leikstjórn: Aaron Nee og Adam Nee.
Handrit: Dana Fox, Oren Uziel, Aaron
Nee og Adam Nee. Aðalleikarar: Sandra
Bullock, Channing Tatum, Brad Pitt og
Daniel Radcliffe. Bandaríkin, 2022. 112
mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Á tónleikum Sin-
fóníuhljóm-
sveitar Íslands í
Hörpu í kvöld,
fimmtudags-
kvöld, hljóma
Sieben Worte
eftir Sofiu Gu-
baidulinu og Sin-
fónía nr. 3 eftir
Anton Bruckner.
Einleikarar á tónleikunum eru
harmónikuleikarinn Geir Draugs-
voll og Sigurgeir Agnarsson selló-
leikari. Stjórnandi er hinn franski
Nathanaël Iselin. Hann vann ný-
lega til fyrstu verðlauna í Jorma
Panula-hljómsveitarstjórakeppn-
inni í Finnlandi og starfar nú sem
aðstoðarhljómsveitarstjóri hjá Sin-
fóníuhljómsveitinni í Árósum.
Gubaidulina (f. 1931) samdi
konsertinn Sieben Worte eða Sjö
orð, fyrir bajan, selló og strengja-
sveit, árið 1982. Þetta er meðal
þekktustu verka hennar. Norski
harmónikuleikarinn Geir Draugs-
voll, annar einleikaranna, hefur
starfað um árabil með Gubaidul-
inu.
Þriðja sinfónía Bruckners,
seinna verk tónleikanna, var tíma-
mótaverk á ferli tónskáldsins.
Flytja Sjö orð eftir
Sofiu Gubaidulinu
Geir Draugsvoll
„Hatur gegn hin-
segin“ er yfir-
skrift fyrirlest-
urs sem Eyrún
Eyþórsdóttir
flytur í hádeginu
í dag, fimmtu-
dag, kl. 12 í fyrir-
lestrasal Þjóð-
minjasafns
Íslands. Verður
hann einnig í streymi. Erindi Ey-
rúnar er í fyrirlestraröðinni Hin-
segin Ísland í alþjóðlegu samhengi
sem er haldin í samstarfi RIKK –
Rannsóknastofnunar í jafnrétt-
isfræðum og Jafnréttisskólans.
Eyrún er með doktorspróf í
mannfræði frá Háskóla Íslands og
starfar sem lektor í lögreglufræði
við Háskólann á Akureyri. Fyrir-
lesturinn byggist á yfirstandandi
rannsókn um hatursglæpi á Íslandi.
Fjallar um hatur
gegn hinsegin
Eyrún Eyþórsdóttir