Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 66

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 L eikhópurinn Skýjasmiðjan vakti verðskuldaða athygli með upp- færslu sinni á grímuleiknum Hjartaspöðum árið 2013, sem mun hafa verið fyrsta heilgrímusýningin á íslensku leiksviði. Nú níu árum seinna fáum við loks að sjá nýja uppfærslu frá þessum metnaðarfulla og hugmyndaríka leikhópi. Sem fyrr eru heilgrímurnar úr smiðju leik- og grímugerðarkonunnar Aldísar Davíðsdóttur. Þrátt fyrir að grímurnar beri föst svipbrigði eru þær einstaklega lif- andi í meðförum leikaranna og í samspili við vandaða lýsingu Fjölnis Gíslasonar. Það er ekki síður mikilvægt að Aldís lætur grímurnar fá tvíræðan svip og gætir þess að andlitin séu ekki symmetrísk eða sam- hverf, sem aftur býður upp á skemmtilegt spil ljóss og skugga sem eykur á tján- inguna. Líkt og orðið gefur til kynna hylja heilgrímurnar allt andlit leikaranna og af þeim sökum er framvindan að öllu leyti tjáð án orða. Fyrir vikið leika líkamstján- ingin og hreyfingar enn stærra hlutverk en ella auk þess sem dans er notaður með áhrifaríkum hætti til að miðla stemningu. Hetja gerist á sjúkrastofnun þar sem ríkir ys og þys. Við erum kynnt fyrir hópi starfsfólks sem hleypur hratt til að ná að sinna öllum þeim verkefnum sem þarf að sinna. Þarna birtast okkur reynslumikill læknir (Orri Huginn Ágústsson) sem glím- ir sjálfur við ákveðinn heilsubrest sem hann heldur leyndum, yngri kollegi hans (Stefán Benedikt Vilhelmsson) sem kemur sterkur inn í danseinvígi við reynslubolt- ann og loks unglæknir (Ellen Margrét Bæ- hrenz) sem hent er út í djúpu laugina strax á fyrstu vakt með skemmtilega mynd- rænum hætti en dansar töfrandi ballett áð- ur en yfir lýkur. Við kynnumst einnig heilbrigðisstarfsmanni sem heldur utan um ýmiss konar skipulag (Aldís Davíðsdóttir) og húsverðinum (Fjölnir Gíslason) sem rennir hýru auga til fyrrnefndrar sam- starfskonu. Hjarta sýningarinnar er hins vegar barnið (Aldís Davíðsdóttir) sem dvelur langdvölum á sjúkrastofnuninni vegna veikinda sinna. Þrátt fyrir miklar annir á stofnuninni með tilheyrandi viðvörunarbjöllum og þyrlugný þegar von er á alvarlega slösuðu fólki gefur starfs- fólkið sér tíma til að sinna barninu af þol- inmæði, hlýju, kærleika og húmor. Þetta birtist skýrt þegar eldri læknirinn kynnir barnið fyrir leikfangadýri sem það getur hlúð að með sambærilegum hætti og lækn- arnir hlúa að barninu eða þegar hann not- ar töfrabrögð til að létta lund barnsins þegar það þarf að fara í segulómun/ geislun. Leikmynd og búningar Aldísar eru ein- föld en þjóna hlutverki sínu afskaplega vel. Með sniðugum hætti mátti sem dæmi búa til bæði lyftu og segulómtæki. Einfaldir leikmunirnir náðu líka að miðla miklu. Þannig segir dós með bökuðum baunum í mötuneyti þar sem allir aðrir starfsmenn fá grænar baunir áhorfendum mikið um þróun tiltekins ástarsambands. Grímurnar sem við höfum borið síðustu mánuði vegna heimsfaraldursins breytast í jólaskraut, niðursuðudósir geta orðið að sterkasta tákni jólanna og gólfmoppur breyst líkt og fyrir töfra í glaðlega hunda. Tónlistin og hljóðmyndin, sem Eggert Hilmarsson, Sigurjón Sigurðsson og fleiri sjá um, leik- ur síðan stórt hlutverk við að miðla rétta andanum hverju sinni. Leikhópurinn blómstrar undir stjórn Ágústu Skúladóttur sem sýnir hér enn einu sinni hversu fær leikstjóri hún er þeg- ar kemur að vegasaltinu milli gamans og alvöru. Hetja er ljúfsár sýning um líf og dauða, mikilvægi samkenndarinnar, töfrana sem birst geta í hinu hversdaglega og áminning um að lifa lífinu lifandi. Hún býður upp á margar fallegar og áhrifaríkar myndir sem lifa lengi með áhorfendum, eins og þegar barnið tekst á við eigin speg- ilmynd eða þegar sjúkrarúm breytist í gondól og verður um leið fyrirboði ferða- lagsins sem bíður. Hetja er sýning með hjartað á réttum stað og húmor í réttu hlutfalli við harminn. Vonandi þurfa ís- lenskir áhorfendur ekki að bíða önnur níu ár þar til næsta heilgrímusýning Skýja- smiðjunnar ratar á fjalirnar. Með hjartað á réttum stað Ljósmynd/María Björt Ármannsdóttir Ljúfsár „Hetja er ljúfsár sýning um líf og dauða, mikilvægi samkenndarinnar, töfrana sem birst geta í hinu hversdaglega og áminning um að lifa lífinu lifandi,“ segir um Hetju í Tjarnarbíói. Tjarnarbíó Hetja bbbbn Eftir leikstjóra og leikhóp. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Grímur, búningar og leikmynd: Al- dís Davíðsdóttir. Lýsing: Fjölnir Gíslason. Tón- list: Eggert Hilmarsson og Sigurjón Sigurðsson. Hljóðmynd: Stefán Benedikt Vilhelmsson, Fjöln- ir Gíslason, Hjalti Stefán Kristjánsson, Eggert Hilmarsson og Sigurjón Sigurðsson. Aðstoð- arleikstjóri: Orri Huginn Ágústsson. Leikarar: Aldís Davíðsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Fjölnir Gíslason, Orri Huginn Ágústsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson. Skýjasmiðjan frumsýndi í Tjarnarbíói laugardaginn 2. apríl 2022. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Ósk Gunnlaugsdóttir opnar mál- verkasýninguna Sem bjargi væri létt af brjósti hennar? í sýningarsal SÍM í Hafnarstræti 16 í dag kl. 17. Segir um verkin í tilkynningu að þau takist á við þrívídd viðfangs- efnis sem gæti verið tekið úr nátt- úrunni. „Form skapað úr flötum, hornum og bogum sem eiga sér sinn stað í marglaga tilvistum huga og samfélags. Bjarg, klettur, stein- vala og sandkorn í senn. Bjarg, farg, þungi og samfélagsleg pressa á að passa í form, fara ekki út fyrir línur skapaðar af mönnum. Ósk lauk BA- gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og varði einni önn í silkiprenti við Académie Royale des Beaux-Arts í Brussel. Bjarg, klettur, steinvala og sandkorn Ósk Gunnlaugsdóttir –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 26. apríl 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ Verkið Hliðstætt fólk eftir leikhóp- inn Huldufugl verður frumsýnt á Loftinu í Þjóðleikhúsinu í dag og er það í fyrsta sinn sem leikverk innan sýndarveruleika fer fram í Þjóð- leikhúsinu, að því er fram kemur í tilkynningu. Aðeins fimm áhorf- endur geta verið á hverri sýningu og fá allir sýndarveruleikagler- augu og heyrnartól til að upplifa verkið. Önnur sýning eftir hópinn, Kassinn, fór einnig fram í sýnd- arveruleika og þá eingöngu fyrir einn áhorfanda í senn. Sú vann til fjölda verðlauna. Hliðstætt fólk tekst á við spurn- ingar um traust og upplýsingaflæði og breytist sýningin með hverjum áhorfendahópi. Áhorfendur geta átt von á skemmtilegri upplifun sem vekur ýmsar spurningar og þurfa að taka ákvarðanir byggðar á þeim upplýsingum sem þeir fá sem hafa áhrif á framvindu verksins, eins og því er lýst. Leikarar sýningarinnar eru tveir, Ástþór Ágústsson og Nanna Gunnarsdóttir, og skipta þau með sér eina hlutverki verksins sem er ókynjað. Torfi Ásgeirsson og Stein- gerður Lóa Gunnarsdóttir hjálpa til við frásagnarhönnun verksins og Íris Thorarins er tónskáld. Sýndarveruleiki í Þjóðleikhúsinu Í sýndarveruleika Sýningargestir fá sýndarveruleikagleraugu eins og þessi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.