Morgunblaðið - 28.04.2022, Page 29
29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
i í Árborg
Stokkseyri●
Eyrarbakki●
● Selfoss
Sandvíkur
Kaldaðarnes
FLÓA-
HREPPUR
ÖLFUS
Ingólfsfjall
Ö
lfu
ss
á
Árborg
Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit
Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum*
Kosið var 26. maí 2018
Kjörskrá:
Atkvæði:
Kjörsókn:
6.594
4.437
70%
ÍBÚAR
10.834
AFGANGUR*
1,06 ma.kr.
HEILDARSKULDIR 2022
25,4 ma.kr.
SKULDAHLUTFALL**
2022: 179%
2025: 150%
KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING
ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI
8.150
FLATARMÁL
157 km²
51%
Karlar
Konur
49%
Á-listi, Framsókn,Miðflokkur
og Samfylking mynda meirihluta
Bæjarstjóri: Gísli H. Halldórsson
Forseti bæjarstjórnar: Helgi S. Haraldsson (B)
*Áætlanir um A- og B-hluta 2022 **Áætlanir um A- og B hluta.
0
500
1000
1500
2000
2500
3000
> 7051-7031-5018-30< 18
■ Á Áfram Árborg 8,5% 1
■ B Framsókn og óháðir 15,5% 1
■ D Sjálfstæðisflokkur 38,3% 4
■M Miðflokkurinn 10,7% 1
■ S Samfylkingin 20,1% 2
■ V Vinstri græn 7,0% 0
Árborg varð til með sameiningu fjögurra sveitarfélaga árið 1998, Selfoss, Eyrarbakka, Stokks-
eyrar og Sandvíkurhrepps. Það er fjölmennasta sveitarfélag á Suðurlandi og hefur vaxið ört,
mest á Selfossi, en þar búa 86% íbúanna. Selfoss er miðstöð verslunar, þjónustu og iðnaðar á
Suðurlandi, einkummatvælaiðnaðar, en ferðaþjónusta er einnig mikilvæg atvinnugrein.
•Tjarnabyggð
Hnjúkadjúp
Villinga-
holtsvatn
Á
KOSNINGAR
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Mikil gróska hefur verið í Árborg
síðustu ár, sem kann að vera sýni-
legast á Selfossi en nær einnig til
Stokkseyrar og Eyrarbakka. Sú
gróska endurspeglast á sinn hátt í
stjórnmálunum, en þar bjóða fram
sex framboð að þessu sinni: Áfram
Árborg (Viðreisn, Píratar og óháðir),
Framsóknarflokkur, Sjálfstæð-
isflokkur, Miðflokkur og sjálfstæðra
(hálfur listi þó), Samfylking og
Vinstri hreyfingin – grænt framboð.
Í síðustu kosningum misstu sjálf-
stæðismenn einn mann og meirihlut-
ann, svo hin framboðin mynduðu
meirihluta.
Í viðtölum við Kosningahlaðvarp
Dagmála, sem finna má á
www.mbl.is/hladvarp, kom vel fram
býsna sameiginleg sýn frambjóð-
enda á verkefnin fram undan, þótt
ekki séu menn á eitt sáttir um for-
gangsröðina.
Þar þarf að fást við margvíslega
vaxtarverki, sem meðal annars birt-
ast í innviðum, sem varla hafa und-
an, og kalla á aukna fjárfestingu.
Það á við um hitaveituna, en einnig
er fráveita skólps orðin aðkallandi.
Af þeim sökum er ljóst að hægjast
mun á vextinum uns úr er bætt.
Fulltrúar meirihlutans segja að þar
verði hagsmunir núverandi íbúa að
ganga fyrir nýjum hverfum.
Þetta á ekki aðeins við á Selfossi,
heldur einnig á ströndinni, í Stokks-
eyri og Eyrarbakka. Jafnframt hafa
þau mál orðið til þess að hreyfa frek-
ar við hugmyndum um sameiningu
sveitarfélaga og eru ýmsir kostir
nefndir í því, jafnvel að öll Árnes-
sýsla eigi að sameinast.
Fjárhagurinn vefst fyrir
Eins og annars staðar eru pen-
ingar afl þeirra hluta, sem gera þarf,
en fjárhagsstaðan er um margt erf-
iðari en víða.
Skuldir hafa aukist mikið liðin ár,
en þær nema nú ríflega 25 millj-
örðum króna og skuldahlutfallið
komið yfir 179%. Útlit er fyrir að
skuldirnar aukist mikið á næstu ár-
um og komist í um 30 milljarða fyrir
2025. Rekstrarhallinn er sömuleiðis
mikill og nemur rúmum milljarði
króna á þessu ári.
Frambjóðendum var tíðrætt um
fjármálin, enda var ársreikningur
Árborgar fyrir 2021 kynntur í gær.
Bragi Bjarnason, oddviti sjálfstæð-
ismanna, segir að það megi ekki bíða
að koma rekstri og fjármálum sveit-
arfélagsins í lag. Það verði ekki gert
á einni nóttu, heldur þurfi að gera
langtímaáætlun um betri nýtingu
fjármuna og auknar tekjur til fram-
tíðar.
Fulltrúar meirihlutans eru sam-
mála því að huga verði að fjármál-
unum, en telja þó ekki að hann sé við
hættumörk. Tómas Ellert Tómasson
í Miðflokki bendir á að mikið af hall-
anum megi rekja til uppreiknaðra
lífeyrisskuldbindinga og bindur von-
ir við auknar tekjur samfara vexti
byggðar og atvinnulífs. Jafnframt sé
ljóst af skuldabréfasölu að Árborg
njóti tiltrúar á fjármálamarkaði.
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve
Oddvitar Tómas Ellert Tómasson (M), Arnar Freyr Ólafsson (B) og Álfheiður Eymarsdóttir (Á) sitja fyrir svörum.
Fjármál, vöxtur og veitur
efst á baugi í Árborg
- Þungur fjárhagur og þandir innviðir slá á uppbyggingu
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve
Hlaðvarp Sigurður Torfi Sigurðsson (V), Sigurjón Vídalín Guðmundsson (S)
og Bragi Bjarnason (D) í Kosningahlaðvarpi Dagmála í Landsbankahúsinu.