Morgunblaðið - 28.04.2022, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn og skoðaðu dekkjaúrvalið á nesdekk.is
Fiskislóð 30
101 Reykjavík
561 4110
Tímabókun
Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
561 4210
Röð
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Tímabókun
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Tímabókun
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Tímabókun
Skeifan 9
108 Reykjavík
590 2080
Tímabókun nesdekk.is / 561 4200
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Tímabókun
RÉTTU DEKKIN KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ!
Toyo
Proxes CF2
Toyo
Proxes Sport
Toyo
Open Country
AT+
Toyo
Open Country
AT3
Toyo
Open Country
Mud Terrain
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Um 750 Íslendingar, gestir og sýn-
endur, eru í sól og sumaryl Barce-
lona í tengslum við stóru sjávar-
útvegssýninguna sem þar er haldin
þessa dagana, 26.-28. apríl. Berg-
lind Steindórsdóttir, verkefnastjóri
hjá Íslandsstofu, segir að Íslend-
ingar séu áberandi á sýningunni
með tvo þjóðarskála þar sem 24
fyrirtæki sýna framleiðslu sína og
auk þess sýna nokkur fyrirtæki á
eigin vegum.
Sýningunni er skipt í tvennt,
annars vegar eru sjávarafurðir og
hins vegar tækni og þjónusta. Á
báðum sviðum eru Íslendingar í
fremstu röð og hafa íslensku skál-
arnir verið vel sóttir. Sýnt er í
nokkrum höllum á stóru svæði og
meginhöllin er stór og nýleg bygg-
ing sem sérstaklega var byggð sem
sýningarhöll.
Sýningin í Barcelona er ein
stærsta sýning í sjávarútvegi í
heiminum og tók við sem slík af
sýningunni sem verið hefur í Bruss-
el frá árinu 1994. Fjölmörg íslensk
fyrirtæki sóttu þá sýningu frá upp-
hafi og stofnuðu þar til fjölda við-
skiptatengsla.
Berglind á von á að um 25 þús-
und manns komi á sýninguna, þar
af um 15 þúsund gestir, sem margir
koma alla þrjá daga sýningarinnar.
„Það er greinilegt að fólk í sjávar-
útvegi gleðst yfir því að geta hist á
ný eftir heimsfaraldurinn til að
ræða málin og treysta gömul vina-
og viðskiptasambönd,“ segir Berg-
lind. Framleiðendur og gestir koma
víða að úr heiminum, en Berglind
segir að óneitanlega hafi það áhrif á
sýningunni að engin þátttaka sé frá
stórþjóðum eins og Rússlandi og
Kína og raunar minni frá Asíulönd-
um heldur en í eðlilegu árferði.
Ljósmyndir/Berglind
Tækni og þjónusta Talsverð umferð hefur verið á sýningarsvæðinu þar sem íslensk fyrirtæki kynna starfsemi sína.
Um 750 Íslendingar á
sýningunni í Barcelona
Hattur Íslands Sjávarafurðir af ýmsum toga eru kynntar í Barcelona.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Það skiptir alveg gríðarlega miklu
máli að geta mætt á sýningu eins og
þessa. Hún hefur ekki verið haldin í
tvö ár og nú getum við loksins hitt við-
skiptavini og birgja. Við finnum – eft-
ir þessa erfiðu
tíma, bæði Covid
og svo stríð í
Úkraínu – hvað
þessi mannlegi
þáttur er enn mik-
ilvægur í viðskipt-
um,“ segir Agnes
Guðmundsdóttir,
markaðsstjóri
Icelandic Asia, um
sjávarútvegssýn-
inguna Seafood
Expo Global sem fram fer í Barselóna
á Spáni.
Agnes segir Íslendinga áberandi á
sýningunni en mun færri fulltrúar
fyrirtækja séu frá Asíu en búast
mætti við á stærstu sjávarútvegssýn-
ingu í heimi. „Það er ennþá mikið um
lokanir og ferðatakmarkanir víða í
Asíu og þeir eru ekki farnir að ferðast
jafn mikið og við,“ útskýrir hún.
Vekur athygli
Um árabil var sýningin, sem hófst á
þriðjudag en lýkur í dag, haldin í
Brussel en tilkynnt var um flutning
hennar 2019. Agnes segir almenna
ánægju ríkja með nýju staðsetn-
inguna og höllin henti vel fyrir við-
burði af þessum toga, enda gangar
breiðir og loftræsting góð.
Óhætt er að segja að bás Icelandic
Asia, Brims og Útgerðarfélags
Reykjavíkur hafi vakið athygli á sýn-
ingunni. Boðið er upp á Masago-
loðnuhrognabjór, sem er sérbruggað-
ur af RVK brewing fyrir Icelandic
Asia, og segir Agnes hann hafa slegið
rækilega í gegn.
Þá eru einnig sýndar heilu veiði-
ferðirnar á uppsjávarskipinu Venusi,
ísfisktogaranum Akurey og frystitog-
aranum Guðmundi í Nesi í hægsjón-
varpi. „Við vildum sýna hvernig fisk-
urinn er veiddur og lífið um borð, við
ákváðum að fara algjörlega aðra leið
en áður hefur verið gert. Þetta eru
löng myndbönd á stórum skjám þar
sem við sýnum alla veiðiferðina á
skipunum, sem stunda mismunandi
veiðar. Þetta er alveg frá því að veið-
arfærum er kastað út, farið í gegnum
vinnsluna og upp í brú, og fær fólk að
fylgjast með skipstjóranum og sjó-
mönnum um borð.
Það er búið að vera skemmtilegt að
fylgjast með því hvernig fólk tekur
þessu og höfum við fengið mjög já-
kvæð viðbrögð. Fólk staldrar lengi
við og horfir agndofa, því margir hafa
aldrei séð neitt þessu líkt. Hátækni-
matvælaframleiðsla úti á sjó.“
Gestir í veiðiferð
þriggja skipa
- Hægsjónvarp og loðnuhrognabjór
Ljósmynd/Icelandic Asia
Túr Veiðar íslensku skipanna hafa vakið athygli á sjávarútvegssýningunni.
Agnes
Guðmundsdóttir