Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 1

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 6. M A Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 122. tölublað . 110. árgangur . 26.-29. maí Sigraðu innkaupin STÓRSTJARNA Í SVIÐSLISTA- HEIMINUM GLEYMA SÉR Í GLEÐI UPPSÖFNUÐ SKEMMTANAÞÖRF HJÁ LANDANUM ARCTIC CREATURES, 12 INGI VALUR TRÚBADOR 4TAYLOR MAC Á LISTAHÁTÍÐ 48 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hækkun aðfanga vegna orkukreppu og stríðsins í Úkraínu veldur því að afkoma í nautakjötsframleiðslu hér á landi er óviðunandi, að mati bænda. Sérhæfðir framleiðendur eru mjög að íhuga stöðu sína um þessar mund- ir og nokkrir hafa ákveðið að bera ekki á tún í sumar og hætta í haust. Bessi Freyr Vésteinsson, bóndi í Hofsstaðaseli í Skagafirði, segir að staða greinarinnar hafi verið veik fyrir vegna þess að verð nautakjöts til bænda hafi ekki hækkað í mörg ár. Hafi hækkanir allra síðustu mán- uði ekki dugað til að endar næðu saman. Við það bætist að fram- leiðsluferill nautakjöts er langur en menn þurfa að leggja út í kostnað all- an líftíma gripanna. Töluvert hefur verið um að bænd- ur hafi sérhæft sig í framleiðslu nautakjöts með því að byggja upp holdastofn og koma upp aðstöðu fyr- ir gripina. Bessi er einn af þeim. Hann segir að alger forsendubrestur hafi orðið í þessum rekstri frá því hann byggði upp aðstöðuna fyrir fimm árum. Bessi bendir á að víða erlendis hafi stjórnvöld gripið til aðgerða til að viðhalda framleiðsluvilja bænda og telur ekki óeðlilegt að það verði einn- ig gert hér á landi. »6 Sumir hætta í haust - Stríðið í Úkraínu hefur bein áhrif á búvöruframleiðslu hér Ráðgátan um tilhöggna steinskipið sem fannst á Fagradals- heiði í Mýrdal á síðasta ári er óleyst. Þrír fornleifafræðingar frá Minjastofnun rannsökuðu steininn og umhverfi hans í gær ásamt jarðfræðingi. Tekin voru sýni úr eldfjallaösku sem gætu gefið vísbendingu um aldur, að sögn Ugga Ævarssonar, minjavarðar á Suðurlandi. Í ljós kom að steinninn er mótaður úr móbergstegund og því hefur verið auðveldara að höggva hann til heldur en ef hann hefði verið úr harðara efni, eins og talið var. Þegar skoðað var undir skipið sást að það liggur of- an á móbergsklöpp og steinum raðað að. Steinum hefur einn- ig verið raðað í kring en þær hleðslur eru úr lagi gengnar. Fræðimennirnir eru engu nær um tilgang verksins. Steinninn gæti hafa verið notaður til að brynna fé en einnig gæti stefna hans til heilögu eyjarinnar Jónu á Suðureyjum og Jerúsalem haft trúarlegar tilvísanir, eða til papa eða gangs sólarinnar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ráðgátan um steinskipið á Fagradalsheiði er enn óleyst Fyrsti formlegi fundur Framsóknar, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar í Reykjavík fór fram í gær. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir að staða borgarstjóra hafi ekki komið til tals í viðræðunum. Hann segist búast við að niður- staða muni liggja fyrir úr viðræðun- um í næstu eða þarnæstu viku en ný borgarstjórn mun koma saman 7. júní. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, segir að flokkurinn geti beitt sér fyrir breytingum þrátt fyrir samvinnu við flokka í fráfar- andi meirihluta. Víða um land eru meirihlutar farnir að taka á sig mynd, ekki síst í öðrum sveitar- félögum á höfuðborgarsvæðinu. Á Akureyri er komin upp flókin staða við meirihlutamyndun eftir að slitn- aði upp úr viðræðum Samfylkingar, Framsóknar, Miðflokks og Sjálf- stæðisflokks. Áður hafði slitnað á milli Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Bæjarlistans. »2, 18 og 34 Klári á næstu vikum - Hafa ekki rætt borgarstjórastólinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.