Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Porsche á Íslandi | Krókhálsi 9 | 110 Reykjavík | S: 590 2000 | benni.is | porsche.is | Opið virka daga frá 9:00 til 18:00 og laugardaga frá 12:00 til 16:00
Lífið er yndislegt.
Porsche eBike Cross - fulldempað.
• 504Wh rafhlaða
• 100 km. drægni
• Rafmagn - 85 Nm tog
• 21,7 kg þyngd (miðað við M stell og pedala)
• Koltrefjastell
SHIMANO XT 12 gíraskipting | MAGURAMT diskabremsur í yfirstærð | CRANKBROTHERS vökvadælustilling á sæti | MAGURA fram demparar (Upside-Down) og FOX demparar að aftan
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Málið er í vinnslu í samvinnu inn-
viðaráðuneytisins og fjármála- og
efnahagsráðuneytisins og er þess
vænst að niðurstaða fáist í það á
næstunni.“ Þetta segir Þórmundur
Jónatansson upplýsingafulltrúi
innviðaráðneytisins spurður um
stöðu nýrra flugstöðvar fyrir inn-
anlandsflug á Reykjavíkurflugvelli.
Fyrir tæplega tveimur árum, 12.
júní 2020, voru áform og viðræður
um nýja flugstöð kynnt á ríkis-
stjórnarfundi. Þau gera ráð fyrir
endurbyggðri 1.600 fermetra flug-
stöðvarbyggingu á núverandi stað.
„Ríkið hóf nýverið samningavið-
ræður við Air Iceland Connect um
að koma að uppbyggingu flug-
stöðvarinnar með þátttöku fjár-
mála- og efnahagsráðuneytis, sam-
göngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytis og Isavia,“ sagði í
fréttatilkynningu frá samgöngu-
og sveitarstjórnarráðeytinu (nú
innviðaráðuneyti) sama dag.
Í viðræðunum verði unnið að því
að meta heildarhagkvæmni verk-
efnisins út frá ólíkum þáttum. Ein
af meginforsendum ríkisins í við-
ræðunum sé að uppbyggingin
verði fjárhagslega sjálfbær og geti
staðið undir sér til lengri tíma.
„Núverandi flugstöð á Reykja-
víkurflugvelli er orðin lúin, að
hluta til í gámaeiningum, og löngu
tímabært að bæta aðstöðu fyrir
farþega og starfsmenn. Eins og
áður hefur komið fram náðist sam-
komulag við Reykjavíkurborg í
nóvember 2019 um að flugvöll-
urinn verði áfram í Vatnsmýrinni
þar til annar jafngóður eða betri
kostur verður tilbúinn. Reykjavík-
urflugvöllur er miðstöð innan-
lands- og sjúkraflugs og hefur oft-
ast verið tilgreindur sem varaflug-
völlur á undanförnum árum,“ var
haft eftir Sigurði Inga Jóhanns-
syni, samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra.
Fram kom að nýleg ástands-
skoðun á flugstöðinni á Reykjavík-
urvelli hafi leitt í ljós að núverandi
byggingar séu í mun verra ástandi
en talið var í fyrstu. Byggingarnar
eru áratugagamlar. Ástandið hefur
væntanlega versnað enn meira þau
tvö ár, sem síðan eru liðin.
Gert er ráð fyrir að grunnform
nýrrar byggingar verði einfalt til
að lágmarka byggingarkostnað.
Enn fremur að hæð byggingar-
innar og þak taki mið af núverandi
flugstöð og núgildandi flugörygg-
islínu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavíkurflugvöllur Núverandi flugstöð er í mörgum mismunandi byggingum sem flestar eru áratugagamlar.
Niðurstöðu um nýja
flugstöð er að vænta
- Ríkisstjórnin kynnti áform um nýja flugstöð á Reykjavík-
urflugvelli í júní 2020 - Núverandi byggingar eru illa farnar
Nýbygging Flugstöðin eins og hún var sýnd 2020, þegar áform voru kynnt.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Áhuginn er mikill og rétt eins og
við vissum er mikil þörf á fólki með
sérhæfða menntun á þessu sviði,“
segir Hildur Ingvarsdóttir skóla-
meistari Tækniskólans. Í haust byrj-
ar skólinn að kenna jarðvirkjun, sem
ekki hefur áður verið í boði. Starfs-
heitið er nýtt, en það spannar verk-
efni þeirra sem vinna hjá jarð-
verktökum við gröft, landmótun,
efnisflutninga, jarðlagnavinnu,
vegagerð og fleira slíkt. Námið verð-
ur tveggja vetra og með hefðbundnu
sniði iðn- og framhaldsskólamennt-
unar.
Námleið þessi, útfærsla og fyrir-
komulag, hefur verið í þróun í
Tækniskólanum síðustu misseri.
Samráð hefur verið haft meðal ann-
ars við verktaka um fyrirkomulagið
svo þörfum atvinnulífsins sé sem
best mætt. Vegna kennslunnar hafa
verið keyptir hermar sem líkja eftir
raunverulegum aðstæðum í jarð-
vinnu. Í tækjum þessum verður
hægt að framkalla umhverfi, að-
stæður og tækjabúnað til dæmis á
veghefli, hjólaskólfu, jarðýtum – og
raunar ýmsum fleiri tækjum. Herm-
arnir verða í húsnæði Tækniskólans
í Hafnarfirði en önnur starfsþjálfun
verður í samvinnu við verktaka.
„Fólk mun eðlilega koma inn í
þetta nám eftir ólíkum leiðum. Sum-
ir væntanlega beint úr grunnskóla
en aðrir með starfsreynslu úr jarð-
vinnu. Því munum við bjóða þeim
sem hafa starfað áður á þessu sviði
upp á raunfænimat, sem er mjög
mikilvægt,“ segir Hildur Ingvars-
dóttir. „Með námi verður vonandi
hægt að gefa þessum mikilvægu
störfum meira vægi. Í framtíðinni
verður því væntanlega talað um
jarðvirkja en ekki gröfukarla.“
Störfin eru sérhæfð
„Við þurfum fólk með menntun í
jarðvinnu. Þessi störf eru orðin mjög
sérhæfð, svo sem vélavinna eftir fyr-
ir fram gefnum hnitum og punkt-
um,“ segir Óskar Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri Borgarverks og
formaður Félags vinnuvélaeigenda.
„Margir hafa byrjað á þungavinnu-
vélum ungir og unnið sig áfram með
reynslunni. Krafa dagsins er hins
vegar formleg menntun úr skólum
eins og nú verður í boði.“
Gröfukarlarnir
verða jarðvirkjar
- Ný námsleið í Tækniskóla í haust
Þjálfun Viktoría Erla Þ. Bjarnarson prófar sig áfram í herminum góða sem
líkir eftir umhverfi og aðstæðum til dæmis á jarðýtu, hjólastóflu og lyftara.
Óskar
Sigvaldason
Hildur
Ingvarsdóttir