Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
.
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI215
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI95
VERKFÆRI
ALVÖRU
„GUFUSOÐNI LAXINN KLÁRAÐIST SVO
ÉG GAF ÞÉR TVÖFALDAN SKAMMT AF
KARTÖFLUMÚS Í STAÐINN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... þess virði að halda
fast í.
DRAKÚLA, HVÍ ERTU
AÐ SJÚGA Á ÞÉR
ÞUMALINN?
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SLUPP
SKAR MIG
Á PAPPÍR
OG ÞAÐ ER
DREKKU-
TÍMI
EN HEPPILEG
TILVILJUN
HELGA! ÉG ER
HÉR INNI!
HVER HEFÐI
TRÚAÐ ÞVÍ?
„ERFÐAEFNI ÚR ÞÉR FANNST EKKI Á
VETTVANGI GLÆPSINS – EN FORFEÐUR
ÞÍNIR ERU FRÁ MJÖG VAFASÖMUM
STÖÐUM Í EVRÓPU.“
Eiríkur Örn, f. 2010 og Aron Örn, f.
2019; 2) Jón Ragnar, f. 13.4. 1975,
tæknifræðingur í Reykjavík. Maki:
Helena Sif Gísladóttir, f. 14.6. 1976,
vinnur á leikskóla. Börn: Sigurjón
Axel, f. 1998, Kári Fannar, f. 2003,
Hildur Inga, f. 2006, og Anita Rut, f.
2009; 3) Katrín, f. 14.4. 1981, ferða-
málafræðingur og tannsmiður í
Reykjavík. Dóttir: Rún, f. 2013. Faðir
hennar er Ingvar Helgi Kristjáns-
son.; 4) Helga Björk, f. 2.6. 1968,
þroskaþjálfi í Kópavogi. Móðir henn-
ar er Karólína Sveinsdóttir, f. 1946.
Albróðir Magnúsar er Pétur Óli, f.
29.3. 1949, ferða- og menningarfröm-
uður, búsettur í St. Pétursborg í
Rússlandi. Hálfsystkini, börn Péturs,
eru Guðmundur Ágúst, f. 25.4. 1953,
bús. á Bifröst í Borgarfirði, Ingi-
björg, f. 28.11. 1954, bús. í Þýska-
landi, Pétur, f. 3.11. 1956, og Guðrún,
f. 20.2. 1961, bæði bús. í Reykjavík.
Móðir Magnúsar var Ragnheiður
Magnúsdóttir, f. 28.12. 1924, d. 22.12.
2015. „Hún starfaði í áraraðir við
símavörslu hjá Reykjavíkurborg en
áður við ýmis verslunarstörf í
Reykjavík.“ Seinni maður Ragnheið-
ar og stjúpfaðir þeirra bræðra Magn-
úsar og Péturs Óla var Sigurjón
Jónsson, f. 26.4. 1909, d. 15.4. 2005.
„Hann var járnsmiður lengst af í
Sindra, formaður Félags járniðnaðar-
manna og KSÍ og umfram allt KR-
ingur.“
Faðir Magnúsar var Pétur Péturs-
son, f. 21.8. 1921, d. 27.10. 1996.
„Hans aðalstarf má segja að hafi ver-
ið að stjórna m.a. Innkaupastofnun
ríkisins, uppbyggingu Kísiliðjunnar
við Mývatn, Álafossi og Norður-
stjörnunni í Hafnarfirði. Hann sat á
Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn, fyrst
1956-59 fyrir Snæfellinga og aftur
1971-1974 fyrir Norðurland vestra.“
Pétur og Ragnheiður skildu 1951 en
hann giftist síðar Hrefnu Guðmunds-
dóttur, f. 27.5. 1925, d. 17.12. 2018,
húsmóður.
Magnús
Pétursson
Halldóra Jónsdóttir
húsmóðir í Brautarholti
Eyjólfur Erlendsson
bóndi í Brautarholti
í Borgarhreppi
Ólafía Eyjólfsdóttir
vinnukona í Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi
og verkakona í Reykjavík
Pétur Pétursson
vinnumaður á Álftá í Borgarhreppi, Mýr.
Pétur Pétursson
forstjóri og alþingismaður,
bjó í Reykjavík
Andrea Andrésdóttir
vinnukona á Oddastöðum
í Hnappadal
Pétur Pétursson
vinnumaður á Syðri-Rauðamel
í Hnappadal
Margrét Stefánsdóttir
húsmóðir í Neðranesi
Jóhannes Jóhannesson
bóndi í Neðranesi á Skaga
Anna Jóhannesdóttir
húsfreyja á Vindheimum
Magnús Sigmundsson
bóndi á Vindheimum í Tungusveit, Skagafirði
Monika Indriðadóttir
húsfreyja á Vindheimum
Sigmundur Andrésson
bóndi á Vindheimum
Ætt Magnúsar Péturssonar
Ragnheiður Magnúsdóttir
starfsmaður Reykjavíkur-
borgar, bjó í Reykjavík
Helgi R. Einarsson skrifaði mér
á mánudag: „Þá erum við
hjónin komin heim úr sauðburð-
arferð á Bustarfelli í Vopnafirði.
Þannig háttar til að Guðmundur
Halldórsson, föðurbróðir Halldórs
Ásgrímssonar heitins ráðherra,
sendir ætíð svokallaða sauðburð-
ardropa (Guðmundardropa) til vina
sinna á Bustarfelli, sem er hans
framlag til sauðburðarins og hjálpa
þeir mikið.“
Þeir sem sauðburði sinna
svefnlitlir meira og minna,
þreyttir fá sopann,
sauðburðardropann
og orkuna aftur þá finna.
Guðmundardroparnir góðu
gegnum lifrina óðu,
um æðarnar runnu,
þar eldheitir brunnu,
undir væntingum stóðu.
Anna Dóra Gunnarsdóttir skrifar
í Boðnarmjöð: „Ég hef séð það und-
anfarið að fólk er að setja inn vísur
um vorið. Þó að það sé liðið og sum-
arið gengið í garð ætla ég að setja
inn gamla vísu um vorið, en ég fann
hana áðan í einhverju grúskæði.
Veit ekki einu sinni hvort hún hefur
sést hér áður“:
Oki af mér áðan létti,
ótt þó leki horið;
lognið tekur létta spretti,
loksins kemur vorið.
Sigrún Haraldsdóttir um hestinn
sinn Tinna:
Stroku á skinni stillta finn,
strax að innan hlýnar,
færir Tinni flipann sinn
fínt um kinnar mínar.
Ólöf G. Sveinbjarnardóttir á
Rauðamel yrkir „Á hestbaki“:
Þó að ég sé örg og aum
inni byrgi tárin,
lifnar bros, við lófa og taum
leika finn ég klárinn.
„Glöggt er gagnrýnis eyrað“ eft-
ir Hjálmar Freysteinsson:
Þegar Sigþrúður aríur söng
síðkvöldin eilífðarlöng
þóttust menn heyra
er höfðu tóneyra
að hún væri klipin með töng.
Ég hef alltaf jafngaman af þess-
ari limru Jóhanns S. Hannessonar:
Þegar hvergi fæst salt, kæst né sigið
né sést upp við bæjarvegg migið,
þegar öll fæða er dóssett
og alls staðar klósett
þá er örlagavíxlsporið stigið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Guðmundardropar
á sauðburði