Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 45

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 . EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI215 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI95 VERKFÆRI ALVÖRU „GUFUSOÐNI LAXINN KLÁRAÐIST SVO ÉG GAF ÞÉR TVÖFALDAN SKAMMT AF KARTÖFLUMÚS Í STAÐINN.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... þess virði að halda fast í. DRAKÚLA, HVÍ ERTU AÐ SJÚGA Á ÞÉR ÞUMALINN? SLUPP SLUPP SLUPP SLUPP SLUPP SLUPP SLUPP SLUPP SLUPP SKAR MIG Á PAPPÍR OG ÞAÐ ER DREKKU- TÍMI EN HEPPILEG TILVILJUN HELGA! ÉG ER HÉR INNI! HVER HEFÐI TRÚAÐ ÞVÍ? „ERFÐAEFNI ÚR ÞÉR FANNST EKKI Á VETTVANGI GLÆPSINS – EN FORFEÐUR ÞÍNIR ERU FRÁ MJÖG VAFASÖMUM STÖÐUM Í EVRÓPU.“ Eiríkur Örn, f. 2010 og Aron Örn, f. 2019; 2) Jón Ragnar, f. 13.4. 1975, tæknifræðingur í Reykjavík. Maki: Helena Sif Gísladóttir, f. 14.6. 1976, vinnur á leikskóla. Börn: Sigurjón Axel, f. 1998, Kári Fannar, f. 2003, Hildur Inga, f. 2006, og Anita Rut, f. 2009; 3) Katrín, f. 14.4. 1981, ferða- málafræðingur og tannsmiður í Reykjavík. Dóttir: Rún, f. 2013. Faðir hennar er Ingvar Helgi Kristjáns- son.; 4) Helga Björk, f. 2.6. 1968, þroskaþjálfi í Kópavogi. Móðir henn- ar er Karólína Sveinsdóttir, f. 1946. Albróðir Magnúsar er Pétur Óli, f. 29.3. 1949, ferða- og menningarfröm- uður, búsettur í St. Pétursborg í Rússlandi. Hálfsystkini, börn Péturs, eru Guðmundur Ágúst, f. 25.4. 1953, bús. á Bifröst í Borgarfirði, Ingi- björg, f. 28.11. 1954, bús. í Þýska- landi, Pétur, f. 3.11. 1956, og Guðrún, f. 20.2. 1961, bæði bús. í Reykjavík. Móðir Magnúsar var Ragnheiður Magnúsdóttir, f. 28.12. 1924, d. 22.12. 2015. „Hún starfaði í áraraðir við símavörslu hjá Reykjavíkurborg en áður við ýmis verslunarstörf í Reykjavík.“ Seinni maður Ragnheið- ar og stjúpfaðir þeirra bræðra Magn- úsar og Péturs Óla var Sigurjón Jónsson, f. 26.4. 1909, d. 15.4. 2005. „Hann var járnsmiður lengst af í Sindra, formaður Félags járniðnaðar- manna og KSÍ og umfram allt KR- ingur.“ Faðir Magnúsar var Pétur Péturs- son, f. 21.8. 1921, d. 27.10. 1996. „Hans aðalstarf má segja að hafi ver- ið að stjórna m.a. Innkaupastofnun ríkisins, uppbyggingu Kísiliðjunnar við Mývatn, Álafossi og Norður- stjörnunni í Hafnarfirði. Hann sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn, fyrst 1956-59 fyrir Snæfellinga og aftur 1971-1974 fyrir Norðurland vestra.“ Pétur og Ragnheiður skildu 1951 en hann giftist síðar Hrefnu Guðmunds- dóttur, f. 27.5. 1925, d. 17.12. 2018, húsmóður. Magnús Pétursson Halldóra Jónsdóttir húsmóðir í Brautarholti Eyjólfur Erlendsson bóndi í Brautarholti í Borgarhreppi Ólafía Eyjólfsdóttir vinnukona í Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi og verkakona í Reykjavík Pétur Pétursson vinnumaður á Álftá í Borgarhreppi, Mýr. Pétur Pétursson forstjóri og alþingismaður, bjó í Reykjavík Andrea Andrésdóttir vinnukona á Oddastöðum í Hnappadal Pétur Pétursson vinnumaður á Syðri-Rauðamel í Hnappadal Margrét Stefánsdóttir húsmóðir í Neðranesi Jóhannes Jóhannesson bóndi í Neðranesi á Skaga Anna Jóhannesdóttir húsfreyja á Vindheimum Magnús Sigmundsson bóndi á Vindheimum í Tungusveit, Skagafirði Monika Indriðadóttir húsfreyja á Vindheimum Sigmundur Andrésson bóndi á Vindheimum Ætt Magnúsar Péturssonar Ragnheiður Magnúsdóttir starfsmaður Reykjavíkur- borgar, bjó í Reykjavík Helgi R. Einarsson skrifaði mér á mánudag: „Þá erum við hjónin komin heim úr sauðburð- arferð á Bustarfelli í Vopnafirði. Þannig háttar til að Guðmundur Halldórsson, föðurbróðir Halldórs Ásgrímssonar heitins ráðherra, sendir ætíð svokallaða sauðburð- ardropa (Guðmundardropa) til vina sinna á Bustarfelli, sem er hans framlag til sauðburðarins og hjálpa þeir mikið.“ Þeir sem sauðburði sinna svefnlitlir meira og minna, þreyttir fá sopann, sauðburðardropann og orkuna aftur þá finna. Guðmundardroparnir góðu gegnum lifrina óðu, um æðarnar runnu, þar eldheitir brunnu, undir væntingum stóðu. Anna Dóra Gunnarsdóttir skrifar í Boðnarmjöð: „Ég hef séð það und- anfarið að fólk er að setja inn vísur um vorið. Þó að það sé liðið og sum- arið gengið í garð ætla ég að setja inn gamla vísu um vorið, en ég fann hana áðan í einhverju grúskæði. Veit ekki einu sinni hvort hún hefur sést hér áður“: Oki af mér áðan létti, ótt þó leki horið; lognið tekur létta spretti, loksins kemur vorið. Sigrún Haraldsdóttir um hestinn sinn Tinna: Stroku á skinni stillta finn, strax að innan hlýnar, færir Tinni flipann sinn fínt um kinnar mínar. Ólöf G. Sveinbjarnardóttir á Rauðamel yrkir „Á hestbaki“: Þó að ég sé örg og aum inni byrgi tárin, lifnar bros, við lófa og taum leika finn ég klárinn. „Glöggt er gagnrýnis eyrað“ eft- ir Hjálmar Freysteinsson: Þegar Sigþrúður aríur söng síðkvöldin eilífðarlöng þóttust menn heyra er höfðu tóneyra að hún væri klipin með töng. Ég hef alltaf jafngaman af þess- ari limru Jóhanns S. Hannessonar: Þegar hvergi fæst salt, kæst né sigið né sést upp við bæjarvegg migið, þegar öll fæða er dóssett og alls staðar klósett þá er örlagavíxlsporið stigið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Guðmundardropar á sauðburði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.