Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Góð aðsókn hefur að undanförnu
verið að tjaldsvæðunum á Hömrum
á Akureyri. Algengt hefur verið að
gestir á nóttu hverri séu 60-70 og
héðan í frá má þess vænta að þeir
verði enn fleiri. Hvítasunnuhelgin er
svo jafnan vendipunktur en með
henni má segja að ferðasumarið
gangi í garð, segir Ásgeir Hreiðars-
son, forstöðumaður á Hömrum. Þar
standa nú framkvæmdir og stækkun
fyrir dyrum í kjölfar þess að tjald-
svæðunum við Þórunnarstræti á
Brekkunni á Akureyri hefur verið
lokað. Öll þjónusta við tjaldfólk
verður þá á Hömrum, á svæði sem í
dag getur rúmað um 2.500 manns
eða um 1.000 tjöld og farhýsi.
Stækkunar þörf
„Stækkun tjaldsvæðanna er þörf
og tímabær og vonandi verður henni
lokið þegar líður á sumarið. Í raun-
inni þurfum við alltaf að vera að
bæta aðstöðuna og byggja upp,“
segir Ásgeir. Í því sambandi bendir
hann á að tjaldgestir í apríl hafi ver-
ið um 1.000 og væntanlega tvöföld sú
tala nú í maímánuð. Í þessum hópi
séu útlendingar ráðandi, enda séu
Íslendingar enn ekki komnir í sínar
sumarferðir.
„Kröfur gesta aukast jafnt og þétt
og því þarf að fylgja eftir. Fyrir
ferðavagnana þarf rafmagnsteng-
ingar og aðgengi að rennandi vatni.
Einnig þarf á tjaldsvæðum að vera
hægt að tappa af bílum með salern-
isaðstöðu. Þessu öllu viljum við
mæta og raunar hefur á síðustu tutt-
ugu árum eða svo hér á Hömrum
verið eitt best búna tjaldsvæði
landsins,“ segir Ásgeir.
Fyllist af fólki
Tjaldsvæðið að Hömrum er í jaðri
Kjarnaskógar; þess mikla undra-
lands. Alls er skógurinn um 800
hektarar og þar eru margir mögu-
leikar til skemmtilegrar útiveru.
Þeir eru líka svo sannarlega nýttir
meðal annars af skátahreyfingunni
fyrir samkomur. Í byrjun ágúst nk.
verður á svæðinu til dæmis haldið
mót dróttskáta, það er krakka í efstu
bekkjum grunnskóla. Mest verður
þó væntanlega umleikis á Hömrum
um mánaðamót júní og júlí en þá er
N1-mótið í knattspyrnu haldið á Ak-
ureyri. Mótið er fyrir stráka í 5.
flokki í boltanum – sem þá koma
norður gjarnan með foreldrum sín-
um, svo bærinn nánast fyllist af fólki
sem gjarnan slær upp tjöldum gistir
að Hömrum. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Ágúst Óli Ólafsson
Akureyri Tjaldsvæðið á Hömrum er rétt sunnan við bæinn í jaðri Kjarnaskógar. Aðstaða er góð og stöðugt bætt í.
Tjaldsumarið er hafið
- Hamrar við Akureyri heilla - 2.500 gestir og 1.000 tjöld
og farhýsi - Kröfur aukast - Kjarnaskógur er undraland
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hamrar Gestum fjölgar með hverri
nóttu, segir Ásgeir Hreiðarsson.
Menningar-, íþrótta- og tómstunda-
ráð Reykjavíkur hefur samþykkt
tillögu sérstaks faghóps um að sex
hátíðir verði borgarhátíðir Reykja-
víkur á árunum 2023-2025.
Hátíðirnar hljóta samstarfssamn-
ing við Reykjavíkurborg og styrk
næstu þrjú árin en þær eru: Hinseg-
in dagar – Reykjavík Pride, Hönn-
unarMars, Iceland Airwaves, RIFF
– Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, Óperudagar og Reykja-
vík Dance Festival.
Hinsegin dagar, HönnunarMars
og Iceland Airwaves hljóta 10 millj-
ónir króna hver á ári og RIFF og
Reykjavík Dance Festival hljóta 7,5
milljónir hvor á ári. Reykjavík
Dance Festival hefur verið borgar-
hátíð frá árinu 2020 en hinar hafa
verið borgarhátíðir frá árinu 2017.
Nýliðinn í hópi borgarhátíða er Óp-
erudagar sem hljóta 5 milljónir á
ári. Hlutverk borgarhátíða er með-
al annars að efla menningu og
mannlíf í Reykjavík en þær þurfa
líka að uppfylla ýmis önnur skil-
yrði, segir í tilkynningu.
Sex hátíðir í borginni
fá styrk árlega til 2025
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Borgarhátíðir Frá Óperudögum í Reykjavík sem haldnir voru 2016.
Steinþór Stefánsson
steinthors@mbl.is
„Málverk mín eru að miklu leyti frá
ferðalögum sem ég hef farið með
vinum mínum. Við ferðumst um há-
lendið og út um allt. Önnur málverk
sem verða á sýningunni eru frá því
þegar ég bjó einn á Bjarnarey í fimm
vikur,“ segir Bruce McMillan,
bandarískur rithöfundur og ljós-
myndari, og nú vatnslitamálari, í
samtali við Morgunblaðið. Hann er
opna sýningu á vatnslitamyndum á
laugardaginn ásamt félaga sínum,
Óskari Thorarensen hæstaréttarlög-
manni. Nefnist sýningin Reykjavík
og víðar (Reykjavik and Beyond) og
verður út júnímánuð í galleríinu
Ófeigi á Skólavörðustíg 5. Þar verða
36 vatnslitamyndir Bruce og Óskars
til sýnis.
Hefur lifað gæfuríku lífi
Bruce segist hafa lifað gæfuríku
lífi. Þeir Óskar kynntust fyrir um
áratug, fyrir tilstilli listmálarans
Gunnellu, er þeir voru báðir að hefja
feril sinn sem vatnslitamálarar. Hafa
þeir eftir það málað saman í Banda-
ríkjunum og á Íslandi. Reykjavík og
víðar er fyrsta sýning Bruce á Ís-
landi. Kveðst hann vera orðinn mjög
spenntur fyrir sýningu þeirra félaga.
„Við höfum ólíkan stíl. Ég geri
mikið af lagaskiptingu og hann vinn-
ur meira með gagnsæja eiginleika,“
segir Bruce og bætir við að hann
leggi áherslu á hálendið og íslenska
náttúru í sínum myndum, á meðan
Óskar einbeiti sér að arkitektúr í
Reykjavík og nokkrum öðrum bæj-
um.
Til Íslands árlega síðustu 30 ár
Bruce hefur komið til Íslands með
reglulegu millibili síðastliðin 30 ár og
er því sannkallaður Íslandsvinur.
„Ég hef komið svo oft hingað að við
hættum að telja í sextugasta skiptið.
Ég er meira að segja í símaskránni í
Reykjavík,“ segir hann og hlær.
Hann segist gjarnan vera til í að
flytja til Íslands ef hann fengi sömu
meðferð og Bobby Fischer þegar
honum var veittur ríkisborgara-
réttur hér á landi.
Á sýningaropnun á laugardaginn,
frá kl. 14-16, verða veitingar í boði og
einnig dregið um einn vinning,
vatnsmálverkið Týndur á hálendinu,
eftir Bruce McMillan.
Morgunblaðið/Hákon
Málarar Bruce McMillan og Óskar Thorarensen í galleríinu Ófeigi á Skóla-
vörðustíg. Þar verður opnuð sýning á laugardaginn með verkum þeirra.
Vinna með arki-
tektúr og náttúru
- Bruce og Óskar með vatnslitasýningu
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
101 Afmælisútgáfa