Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Þóra Kolbrá Sigurðardótitr thora@mbl.is Fyrsta vara Hovdenak varð til í bílskúr í Hafnarfirði, þar sem Há- kon stundaði heimabrugg. Eftir nokkur ár í vöruþróun varð til upp- skriftin að Stuðlabergs-gini sem er notuð í dag. Þetta var fyrir 13 árum. „Bílskúrsbruggið byrjaði sem áhugamál. Ég hafði áhuga á bæði gerjun og eimingu áfengis,“ segir Hákon. „Ég bjó nánast allt til þar; bjór, vodka, gin, romm, viskí, sérrí. Strax í bílskúrnum var ég betur bú- inn tækjum en flestir. Ég var með tölvutengd tæki sem sáu um sig sjálf. Öll þessi tæki voru smíðuð á staðnum og þessa þekkingu tók ég með mér þegar ég setti upp brugg- húsið í Hafnarfirðinum, sem er einnig alsjálfvirkt.“ Hákon segir að rekstur fyrir- tækisins hafi gengið vel og þeim hafi verið gríðarlega vel tekið, bæði á íslenskum og erlendum markaði. „Fyrsta árið í rekstri félagsins fór í að smíða eimingarhúsið sjálft en hér var allt rifið út og settur upp full- kominn búnaður. Öðru árinu eyddi ég í að koma fyrstu vörunni okkar á markað og kynna fyrirtækið út á við. Á þriðja árinu kom alvörugang- ur í söluna og í framhaldinu fjölg- uðum við vörunum og konan mín, hún Brynja, gekk til liðs við mig. Hún sér alfarið um sölu- og mark- aðsmál hjá okkur. Nú erum við að byrja okkar fjórða ár í rekstri og lít- um bjartsýn fram á veginn og sjáum ekkert nema tækifæri fram undan.“ Hovdenak Distillery hefur átt góðu gengi að fagna í erlendum keppnum og unnið til fjölda verð- launa. Hákon segir að það skipti mjög miklu máli; bæði sé það við- urkenning á vörunni og auðveldara sé að selja hana. „Verðlaunin skipta okkur mjög miklu máli og neyt- endur líka, því verðlaunin segja til um að varan sé í úrvalsflokki á heimsvísu. Fólk tekur eftir verð- launamerkingunum þegar þær eru settar á flöskurnar og þetta er ákveðinn gæðastimpill.“ Fólk vill hafa gott í glasinu Hákon segir að almennt séu ís- lenskir veitinga- og skemmtistaðir ásamt hótelum mjög opnir fyrir góðum íslenskum vörum, sérstak- lega þar sem erlendir ferðamenn koma mikið til Íslands í leit að ís- lenskri upplifun. „Þeir geta fengið stóru þekktu vörumerkin í sínu heimalandi og eru þar af leiðandi mun spenntari fyrir því að komast í íslenskar vörur. Eins leita Íslend- ingar í auknum mæli að góðum vín- um. Það má að mörgu leyti rekja til aukins áhuga á kokteilagerð, bæði á börum og í heimahúsum. Fólk vill hafa eitthvað gott í glasinu sínu. Vínmenningin mikið breyst Á síðustu 10 árum hefur áfengis- neyslan breyst mjög mikið hér á landi; úr því að drekka til að verða bara fullur yfir í drekka til að njóta. Nú erum við farin að hugsa frekar um hvaðan varan kemur og hvort einhver gerviefni séu í henni eða hvort þetta sé hrein gæðavara sem skarar fram úr,“ segir Hákon og ítrekar aftur áhuga landsmanna á kokteilagerð og hvernig mismun- andi áfengistegundir passa við ákveðnar bragðtegundir og þess háttar. Það séu heilmikil vísindi á bak við góðan drykk og áhugafólki fari sífellt fjölgandi. Stuðlabergið vinsælast Aðspurður hver vinsælasta varan sé segir Hákon að Stuðlabergs-gin sé langvinsælast. Þar á eftir sé kart- öfluvodkinn Loki, sem hefur unnið þó nokkur verðlaun fyrir gæði og mýkt. „Svo kemur Rökkvi, kald- bruggaði kaffilíkjörinnn, sem hefur slegið í gegn, og loks er það ljósa rommið okkar, Hvítserkur, en væntanlegt er dökkt og kryddað romm í ár. Einnig erum við með yndislegt bleikt gin með jarð- arberja- og hindberjabragði,“ segir Hákon. Hvernig er rekstrarumhverfi fyr- ir brugghús hér á landi? „Eftir að ÁTVR lokaði fyrir und- anþágu íslenskra framleiðenda í verslunum þeirra er heldur betur farið að þrengja að okkur. Ef við viljum koma með nýja vöru á mark- að í dag þurfum við að bíða í 6-12 mánuði eftir að þeir setji hana í hill- urnar. Áfengisgjöldin hækka svo á hverju ári og enda alltaf beint á kaupanda vörunnar,“ segir Hákon, sem vill gjarnan sjá áfengislöggjöf- ina endurskoðaða í heild. „Það væri góð byrjun til að ýta undir og hjálpa litlum eimingarhúsum eins og okkur að leyfa sölu áfengis „beint frá bónda“ eins og er þekkt í öðrum löndum, það færi vel við heimsókn- irnar sem við bjóðum upp á.“ Vert sé jafnframt að geta þess að aðilar sem flytja inn áfengi geti nýtt sér frílager þar sem engir tollar séu greiddir af vörunni fyrr en hún er leyst út. „Þetta getum við framleið- endur ekki nýtt okkur þegar við seljum vöru frá okkur. Þegar varan er tilbúin á flösku eftir pökkun skuldum við í raun áfengisgjald af vörunni í stað þess að geta sett vör- una inn á frílager og selt hana það- an til dæmis til dreifingaraðila án gjalda,“ segir Hákon. Íslenskt áfengi samkeppnishæft „Við keppum kannski ekki við ris- ana en ef þú kannt að meta gæði og handverk þá erum við vel sam- keppnishæf á því sviði,“ segir Há- kon en hann segir stærsta sölu- punktinn ávallt vera hreina íslenska vatnið. „Svo er sérstaða okkar hjá Hovdenak Distillery sú eiming- araðferð sem við notum við fram- leiðsluna okkar sem skilar sér í ótrúlegri mýkt og áferð í glasinu þínu. Eiming á sér stað við lofttæmi við mun lægra hitastig en hefð- bundnar aðferðir. Þetta kemur í veg fyrir að bragð skemmist við eim- inguna. Tækin eru einnig alsjálfvik og geta unnið mannlaus allan sólar- hringinn allt árið um kring. Af- kastageta þessara tækja er um 40.000 lítrar á mánuði, sem gerir tækin með þeim afkastamestu á landinu í áfengisgerð.“ Útflutningur er á dagskránni hjá Hovdenak Distillery en hann var kominn á ágætis skrið. „Við vorum byrjuð í útflutningi korter fyrir Covid og erum að byrja það ferli aftur. Í dag höldum við uppi vef- verslun fyrir þá sem eru erlendis og vilja nálgast vörurnar okkar. Þar er töluverð eftirspurn frá ferðamönn- um sem hafa komið til Íslands og fengið vörurnar okkar á hóteli eða veitingastað sem þeir sóttu og vilja fá sömu góðu íslensku vöruna heim til sín,“ segir Hákon. „Fyrir Covid vorum við komin á gott ról í Kína, Singapúr, Þýskalandi, Sviss, Aust- urríki og Danmörku. Bjóða áhugasömum í heimsókn Við höfum verið að fá í auknum mæli fyrirspurnir um heimsóknir til okkar frá fróðleiksfúsum Íslend- ingum sem og ferðamönnum sem vilja koma og skoða eimingarhúsið. Við tökum á móti fólki og fyr- irtækjum og öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast þessari skemmtilegu framleiðslu. Þá er fræðst um hvernig varan er gerð, allt framleiðsluferlið, og að sjálf- sögðu er það gert með glas í hendi. Oft kemur líka fyrir að smakkað er á vörum sem eru ekki enn komnar á markað, sem er alltaf skemmtilegt,“ segir Hákon. Fyrir áhugasama er tekið á móti bókunum í heimsóknir á info@distillery.is. Byrjaði að brugga í bílskúrnum Í Hafnarfirðinum er að finna eimingarhúsið Hovdenak þar sem Hákon Freyr Hovdenak stundar sína iðju af miklu kappi. Vörur frá Hovdenak Distil- lery eru margverðlaun- aðar um heim allan en nafnið er komið frá fjöl- skyldu Hákonar og á ræt- ur að rekja til Molde í Nor- egi. Í dag rekur Hákon fyrirtækið ásamt eig- inkonu sinni, Brynju Hjaltalín. Að þeirra sögn eru ekkert nema tækifæri fram undan. Vinsæll Kaffilíkjörinn Rökkvi er unninn í samstarfi við Te & Kaffi en hann hefur notið mikilla vinsælda. Handgert Rétt eins og listina á bak- við handsmíðuðu Oloroso tunnurnar frá Tolenería Del Sur, gerir eiming- armeistari Hovdenak Distillery allt í höndunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.