Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
30 ÁRA Eyrún er Reykvík-
ingur, ólst upp í Vogahverfinu en
býr í Mosfellsbæ. Hún er hjúkr-
unarfræðingur á bráðamót-
tökunni á Landspítalanum í Foss-
vogi. Áhugamál eru Eyrúnar eru
hreyfing, eldamennska og fjöl-
skyldan.
FJÖLSKYLDA Eyrún er í sam-
búð með Sigurði Gísla Bond
Snorrasyni, f. 1995, fótboltamanni
hjá Aftureldingu. Sonur þeirra er
Kristófer Bond, f. 2021. For-
eldrar Eyrúnar eru Kristbjörg
Helga Árnadóttir, f. 1961, vinnur
hjá Eimskip, og Jón Sigurður
Snorrason, f. 1956, bifvélavirki
hjá Eimskip. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Eyrún Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Einhverjir eru að reyna að rugla þig í
ríminu. Farðu eftir sannfæringu þinni því svo
mikið veistu um málin að þú þarft ekki að
elta fjöldann.
20. apríl - 20. maí +
Naut Allir sem umgangast þig eru þér vel-
viljaðir þessa dagana og þú undrast það og
finnst lífið ævintýri líkast. Kynntu þér menn
og málefni áður en þú myndar þér skoðanir.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er engin ástæða fyrir þig til
þess að hægja á þér, þótt einhverjar gagn-
rýnisraddir heyrist. Hættu að láta reka á
reiðanum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Rótin að vanda dagsins í dag felst í
eðlislægri skoðun sem þarf ekki endilega að
henta þér. Mundu að það tekur langan tíma
að byggja upp traust en skamman tíma að
brjóta það niður.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að halda vel utan um sam-
bönd þín við aðra svo þau trosni ekki og þú
standir uppi vinalaus fyrr en varir. Reyndu
að vera örlítið jákvæðari.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það tekur á taugarnar þegar þeir
sem manni eru kærir sýna þrjósku og af-
neita staðreyndum. Eitthvað óvænt gerist
sem mun veita þér mikla ánægju.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Forðastu deilur við maka og nákomna í
dag. Hlutirnir eru sjaldnast eins einfaldir og
við viljum hafa þá.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert svo næmur á líðan ann-
arra að þú verður að gera eitthvað til að
verjast því svo að það dragi ekki úr þér allan
mátt.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Samstarfsmenn þínir munu
hugsanlega koma þér á óvart í dag. Reyndu
að vera í þægilegu umhverfi því það mun
létta lund þína.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Eitthvað á eftir að koma þér á
óvart en láttu það ekki trufla þig. Vertu já-
kvæður og skemmtu þér í návist vina þinna.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Gefið ykkur tíma til að njóta fé-
lagsskapar vina og vandamanna því fátt er
dýrmætara en góðar stundir í þeim ranni.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þótt þér séu allir vegir færir þarftu
eins og aðrir að fá hrós og uppörvun af og
til. Mundu að sönn vinátta byggist á gagn-
kvæmu trausti.
aftur. Við förum árlega í ferðir á slóð-
ir Sturlunga en einna eftirminnileg-
ast er þegar við sóttum heim Ásbirn-
inga í Skagafirði. Áþekkur hópur er
að störfum í Skagafirði og hittist á
sunnudagsmorgnum með hressingu,
eins og sunnudagaskólinn.“
Hestamennsku stundar Magnús í
frístundum. „Ég hef sjálfsagt orðið
fyrir áhrifum í Skagafirði að hafa
gaman af hestum, en ég hef farið á
hestum um meira eða minna allt land.
Eftirminnilegust er ferð frá Bjarg-
töngum að Dalatanga 2012-13. Við
hittum fjölmarga og nutum alltaf
greiðvikni bænda og annarra. Ég hef
farið dálítið á hjóli með konu minni
sem er mikill hjólagarpur langt um-
fram mig. Við höfum farið um í Belg-
orðuna fyrir störf í þágu hins opin-
bera árið 2015.
Magnús er stjórnarformaður hjá
Stofnun Wilhelms Beckmann. „Hann
var einfari í íslenskri listasögu. Við
gáfum út bók um manninn 2020 og
unnið er að kvikmynd um sögu hans.
Ég hef tekið þátt í ýmsu starfi í
Skagafirði, s.s. í Gangnamannafélagi
Austurdals og Lionsklúbbi.“
Magnús skrifaði bók um föður
sinn, Pétur Pétursson, Lífshlaup at-
hafnamanns, 2020. „Ég hafði gaman
af og kynntist manninum frá nýjum
sjónarhóli. Ég vinn nú að grein um
ömmu mína, Önnu Jóhannesdóttur.
Ég hef lesið Sturlungu í yfir 20 ár í
góðum hópi manna í Reykjavík. Þeg-
ar lestri sögunnar lýkur er byrjað
M
agnús Pétursson er
fæddur 26. maí 1947
í Reykjavík, fór 4
ára norður í Skaga-
fjörð til skammrar
dvalar en ólst þar upp. „Fyrst var ég
hjá afa og ömmu, síðar Sigmundi
móðurbróður á Vindheimum. Ég á
því mínar rætur þar. Ég hef átt sum-
arbústað í landi Vindheima frá 1979.
Kona mín á heiðurinn að því að hafa
bætt landið og ræktað skóg með
nokkurri aðstoð minni. Það er með
ólíkindum hvað hægt er að gera á 40
árum í ræktun. Ég keypti nýlega
ásamt bróður mínum litla jörð, Lauf-
tún, skammt frá Varmahlíð, þar sem
við erum að lagfæra íbúðar- og útihús
og umhverfi.“
Magnús gekk í Steinsstaðaskóla í
Lýtingsstaðahreppi og Lindargötu-
skóla, varð stúdent frá Verzlunar-
skóla Íslands 1968, lauk BA-gráðu í
hagfræði frá Háskólanum í York á
Englandi 1971 og var í framhalds-
námi í hagfræði og skipulagsfræði við
Lundarháskóla og Háskólann í
Umeå, Svíþjóð 1973-76. Meðfram
námi vann Magnús m.a. við brúar-
smíði 1962-63, á bílaverkstæði í
Middlesbrough 1964, við járnsmíðar í
Nürnberg 1965 og við hvalskurð
1966-67.
Eftir nám var Magnús kennari við
Gagnfræðaskólann á Ísafirði og
Menntaskólann á Ísafirði 1971-73.
Hann vann hjá Fjárlaga- og hag-
sýslustofnun 1976-88, og frá 1981 sem
hagsýslustjóri. Hann var ráðgjafi og
aðstoðarforstjóri á skrifstofu Norður-
landanna í stjórn Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins 1988-89. Magnús var ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu
1991-98, og var síðan skipaður for-
stjóri Ríkisspítala og Sjúkrahúss
Reykjavíkur í ársbyrjun 1999.
„Meginverkefnið þar var sameining
sjúkrahúsanna í eina stofnun.“
Magnús var síðan skipaður forstjóri
Landspítala – háskólasjúkrahúss og
gegndi því embætti til 2008. Hann var
síðan ríkissáttasemjari 2008-2015.
„Hið opinbera hefur verið minn vett-
vangur í starfi og ég er ánægður með
það. Síðasta formlega starf mitt var
seta í bankaráði Landsbankans og í
gerðardómi í kjaradeilu flugvirkja og
ríkisins 2021.“ Magnús hlaut fálka-
íu, Frakklandi og Englandi. Einnig
um Skagafjörðinn og Merkigilið er
ekki fyrir hvern sem er á reiðhjóli.
Þessa dagana er ég að kynna mér
sögu landpóstanna og feta í slóð norð-
anpóstsins frá Reykjavík til Akureyr-
ar en ég fer ekki lengra en að Víði-
mýri í Skagafirði. Ég er kominn
gangandi að Hesti í Borgarfirði og
held áfram í sumar.“
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Hildur
Eiríksdóttir, f. 30.3. 1947, fv. kennari
á Ísafirði og við Álftamýrarskóla í
Reykjavík. „Við kynntumst fyrir
sameiginlegan kunningja 1968 og
starf í Hjálparsveit skáta í Reykjavík.
Giftum okkur 1970 og höfum verið
samferða í yfir hálfa öld. Nú búum við
í Ártúnsholti í Reykjavík en höfum
búið á nokkrum stöðum í Reykjavík.
Einnig höfum við átt heima á Ísafirði,
Englandi, í Svíþjóð og Bandaríkj-
unum.“ Foreldrar Hildar voru hjónin
Eiríkur Ásgeirsson, f. 1.7. 1921, d.
13.10. 1983, forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur, og Katrín Oddsdóttir, f.
17.3. 1923, d. 27.4. 1982, verslunar-
skólagengin eins og Eiríkur.
Börn Magnúsar og Hildar eru: 1)
Eiríkur Tómas, f. 29.3. 1971, bifvéla-
virki í Drammen, Noregi. Maki: Guð-
rún Björg Stefánsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, f. 30.10. 1980. Börn: Selma
Katrín, f. 2006, Karen Ósk, f. 2008,
Magnús Pétursson, fv. ráðuneytisstj., forstj. Landspítala og ríkissáttasemjari – 75 ára
Stórfjölskyldan Aron Örn, Eiríkur Tómas, Karen Ósk, Guðrún Björg, Eiríkur Örn, Magnús, Selma Katrín, Katrín
Magg, Hildur, Sigurjón Axel, Rún, Guðrún vinkona Sigurjóns, Anita Rut, hvolpurinn Natan, Helena Sif, Hildur
Inga, Kári Fannar, Helga Björk og Jón Ragnar.
Fer á slóðir Sturlunga og landpósta
Farinn norður Magnús
með fjóra til reiðar.
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Kristófer Bond Sigurðs-
son fæddist 8. desember 2021 kl.
17.15 á fæðingardeildinni í Reykjavík.
Hann vó 4.020 g og var 59 cm langur.
Foreldrar hans eru Eyrún Jónsdóttir
og Sigurður Gísli Bond Snorrason.
Nýr borgari
SPORTÍS
SKE I FAN 1 1
1 08 REYKJAV ÍK
spo r t i s@spo r t i s . i s
S P O R T I S . I S
520-1000
CARETTA FERÐAVAGN - FERÐAFÉLAGI ÁRSINS!
AUKASENDING KOMIN Í SÖLU - TRYGGÐU ÞÉR EINTAK!