Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 28
VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Norsku hjónin Knut Øines og Marte Lian Øines eru búsett í Porsgrunn í Suður-Noregi, bæði vel sjóaðir kepp- endur og meistarar í vaxtarrækt og body fitness um allan heim. Þau skemmta sér vel í tómstundum við að sigla frístundafleyi sínu milli huggu- legra hafnarbæja við suðurströnd Noregs þar sem þau hittust fyrir í síðustu viku, þjóðhátíðardaginn 17. maí, er þau lögðu að bryggju í Tøns- berg, sem er vinsæll áningarstaður norsks siglingafólks á sumrin. Blaðamaður þekkir lítillega til Knut og Marte gegnum menningar- kima líkamsræktarfólks í Tønsberg og nágrenni þar sem íturvöxnum mönnum og konum þykir margt leið- inlegra en að rífa í kalt stálið sér til yndisauka. Var þeim hjónum boðið í spjall um lífið og keppnismennskuna og brugðust vel við. Margt er um manninn á bryggj- unni í Tønsberg 17. maí, sólskin og hiti, sem ekki er nú alveg föst regla í Noregi á þjóðhátíð. Knut og Marte sitja í makindum um borð, hann í jakkafötum en hún klædd hefð- bundnum norskum þjóðbúningi, bunad, enda láta fæstir Norðmenn sjá sig óspariklædda 17. maí. Eins syndsamlega og það hljómar þurfa hjónin og gestur þeirra að leita inn úr sólinni og í setustofu bátsins svo taka megi samtalið upp án skarkalans frá bryggjunni. Hefur þetta helmassaða fólk gert nokkuð annað en að lyfta lóðum um sína daga eða hvað? Fer út með ruslið „Já já, ég byrjaði nú í frjálsum íþróttum og keppti heilmikið í þeim og eins á skíðum og bobsleða,“ svarar Knut sem er menntaður verkfræð- ingur frá Glasgow í Skotlandi og ber auk þess gráðu í viðskiptafræði frá BI-viðskiptaháskólanum í Sande- fjord. Þá kenndi hann stærðfræði og eðlisfræði um árabil en hefur nú helgað sig rekstri fasteigna, á fjölda íbúða í Tønsberg og nágrenni sem hann leigir út. „Ég kem og fer út með ruslið,“ segir Knut og hlær, og á við að hann rekur þetta fyrirtæki sitt einn, annast bókhald, viðhald, sam- skipti við leigjendur og jafnvel þrif. Marte er hins vegar frá Þránd- heimi, útstillingahönnuður þótt hún starfi ekki við það nú. „Ég vinn við að þrífa vörubíla núna,“ segir hún frá og ljóst af mæli hennar að hún hefur varðveitt hinn sérstaka Þrándheims- framburð vel, enda aðeins búsett um fárra ára skeið á Suðurlandinu. Enn fremur hefur frammistaða Marte á sviðinu skilað henni stöðu sem at- vinnukeppnismanneskja í body fit- ness, eins konar mýkri og kvenlegri útgáfu af gömlu hefðbundnu vaxtar- ræktinni. „Ég var nú maraþonhlaupari til að byrja með en fór svo að lyfta lóðum og þar kom að ég fór að heyra út und- an mér að ég ætti nú að prófa að keppa,“ segir hún frá. Teningunum hafi svo verið kastað þegar vinkona hennar steig á sviðið árið 2011 og Marte fékk örlitla innsýn í blákaldan raunveruleika keppandans. Sjálf tók hún skrefið þó ekki fyrr en árið 2016 og keppti þá í fyrsta sinn í body fit- ness. Örlagavaldurinn Opheim „Þetta fór nú rólega af stað hjá mér, ég lenti í svona fimmta til sjötta sæti á fyrstu mótunum en svo gerðist það að ég hreppti fyrsta sætið í Sand- efjord 2017,“ heldur Marte áfram. Það var svo árið 2018 sem heilladís- irnar skælbrostu við Þrándinum og hún varð Noregsmeistari í body fit- ness, Norðurlandameistari í Finn- landi sama ár auk þess að keppa á mjög eftirminnilegu atvinnumanna- móti í Kína 2019 þar sem hún hreppti 3. sætið. Síðasta afrek hennar sem leikmanns (e. amateur) var hins veg- ar 3. sæti á HM leikmanna í Póllandi. Þau Knut nefna bæði í kór að hrein vatnaskil hafi orðið á keppnisferli Marte þegar nýr þjálfari, Tone Op- heim, tók við þjálfun hennar. Hafi Opheim þessi af hreinu listfengi náð að draga það besta fram hjá Marte og lyfta henni með glans úr sjötta sæti til æðstu metorða enda hrein- lega þjálfari á heimsmælikvarða að sögn hjónanna og nefna þau til jar- teikna að Marte varð atvinnukeppn- ismanneskja í body fitness árið 2018. Knut var hins vegar orðinn fertug- ur þegar hann gekk vaxtarræktinni á hönd, en til gamans má geta þess að aldursmunurinn á þeim hjónum er 20 ár, hann fæddur 1965 og hún 1985. Vettvangur kynna þeirra var sam- félagsmiðillinn Instagram. Knut hóf ferilinn árið 2005 og átti hann þá þeg- ar Noregsmeistaratitla í langstökki, bobsleða og róðri. „Það er nú dálítið gaman að segja frá því hvernig þetta hófst,“ segir norski bergrisinn og hagræðir sér í sætinu svo myndar- legur bátur þeirra hjóna tekur grein- anlega dýfu á stjórnborða. Ætlaði bara að keppa einu sinni „Við vorum þrír vinir sem urðum allir fertugir þetta ár og ákváðum að halda keppni innbyrðis, taka myndir af okkur og útnefna þann svo sigur- vegara sem væri í besta forminu. Svo guggnuðu þeir báðir á þessu og ég stóð einn eftir,“ rifjar Knut upp og segist þá hafa verið kominn í þokka- legasta form. Hann hafi þá látið kylfu ráða kasti og stigið á sviðið um haust- ið á meistaramótinu í Larvik. „Þar lenti ég í neðsta sæti,“ segir verkfræðingurinn sem síðar átti eftir að verða heimsmeistari í vaxtarrækt enda altalað að fall sé fararheill. Næsti vettvangur var Noregsmeist- aramótið þar sem hann hafnaði í þriðja sæti. „En við vorum bara fjór- ir í mínum þyngdarflokki,“ bætir hann við og seyrið glott leikur um varirnar. „Ég ætlaði bara að keppa einu sinni í vaxtarrækt og þá væri maður búinn að prófa það en hugsaði svo með mér „fjandinn hafi það“ og var ekkert sáttur við þessa byrjun.“ Hann hafi því keppt í þriðja sinn 2007 og náð þeim glæsilega áfanga að verða Noregsmeistari í mínus 100 kg flokki í vaxtarrækt bankahrunsárið 2008. Í kjölfarið varð Knut Norður- landameistari árið 2011, hafnaði í 5. sæti á HM 2013 og 3. sæti 2015, Nor- egsmeistari í flokki 40 ára og eldri 2019 áður en hann stóð með pálmann í höndunum sem heimsmeistari í flokki eldri en 50 ára á HM á Spáni árið 2020, í opnum þyngdarflokki, 101,7 kg við vigtun. Er hér aðeins stiklað á því stærsta af ógrynni móta á ferli hans en Knut hefur keppt alls sex sinnum á HM og lent í fyrsta, þriðja, fimmta, tvisvar í sjöunda sæti og í 10. sæti 2009. „Ég hef líka rosa- lega oft verið í öðru sæti á alls konar mótum,“ segir þessi stórvaxni Norð- maður frá. „Þannig að ég fór úr botnsætinu í Larvik árið 2005 í að verða heims- meistari 15 árum síðar, þá búinn að þyngja mig um tíu kíló, og þarna sérðu nú muninn á okkur Marte, hún var ekki nema tvö ár að verða at- vinnumanneskja frá því hún keppti fyrst,“ segir Knut og þessi vöðva- stæltu hjón hlæja dátt. „Hún er bara rosaleg frá náttúrunnar hendi, herðabreið og mjög mittismjó. Þegar hún er í keppnisformi þarf hún að fara í barnadeildina til að kaupa sér buxur,“ segir eiginmaðurinn og enn glymur hláturinn. Þið Íslendingar virðið sportið Talið berst að eftirminnilegum at- vikum á keppnisferli hjónanna og þau bera saman bækur sínar. „Það er Norðmenn frá helvíti - Heimsmeistari í vaxtarrækt 2020 - Kílógramm af kjöti á dag - „Maggi Bess er svakalega flottur“ - Sviðið 163 metra langt - Hjólbörufarmur af seðlum í Kína - Maturinn 90% og æfingarnar 10% Ljósmynd/Torbjørn Tanberg Hjónin í Porsgrunn „Rýrt mun verða fyrir honum smámennið ok eigi er ráð að hafa færri en þrjá tigu manna,“ sagði Sigurður svínhöfði er lögð voru á ráðin um fyrirsát Gunnars á Hlíðarenda og föruneytis hans við Knafahóla. Ósagt skal látið hvort þrír tugir manna fengju lagt Knut og Marte Øines. Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson Þjóðhátíð Knut og Marte um borð í fleyi sínu við bryggjuna í Tønsberg 17. maí. Undir spaks manns spjörum leynist vöðvamassi af öðrum heimi. 28 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 BIOM 2.1 X COUNTRY 21.995 kr. / St. 36-42 GÓÐIR OG LÉTTIR GÖTUSKÓR BIOM 2.1 X COUNTRY 21.995 kr. / St. 36-42 BIOM 2.1 X COUNTRY 21.995 kr. / St. 36-42 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS - Textíll og nubuck leður - Mikill stuðningur við fótinn - Góð dempun - Gúmmísóli með góðu gripi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.