Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Snertanlegar gersemar – Kvenna Ljósmynd/Silja Björk Huldudóttir Stefnumót Í Skálholtskirkju kallast mósaík-altaristafla Nínu Tryggvadóttur (1964-65) fallega á við steinda glugga Gerðar Helgadóttur (1960). bara Árnason merkilegan þátt. Bar- bara var afar fjölhæfur listamaður og frumkvöðull á sviði grafíkur og textíl- listar hér á landi. Hún var vel kunnug veggmyndahefðum og á árunum 1952-1961 vann hún nokkur slík verk í samstarfi við arkitekta nýbygginga í Vesturbæ Reykjavíkur. Nemendur og starfsfólk Melaskóla þekkja vel veggmyndir hennar í anddyri skólans sem teiknaður var af Einar Sveins- syni húsameistara ríkisins en þar not- ar Barbara meðal annars kaðal í verkum sínum. Margir muna eftir stílhreinu verki hennar, „Grasakon- ur“, í Apóteki Vesturbæjar, sem mál- að var með olíulitum á viðarspón og kallaðist á við innréttingar og skápa í apótekinu sem Hannes Kr. Davíðsson hannaði í módernískum stíl. Verkið er nú varðveitt í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni líkt og um 100 önnur verk Kópavogsbúans Barböru en hún áleit Gerði fremstan meðal jafningja á sviði íslenskrar höggmyndalistar. Þess má geta að Gerðarsafn er eina listasafnið hérlendis sem heitir eftir listakonu en það var opnað árið 1994. Mynd Barböru af straumlínulaga mannverum á sundi prýðir loftið í anddyri Vesturbæjarlaugar og annað verk hennar, sem upprunalega var í sama rými, er veggmyndin „Helgu- sund“, unnin með casein-litum á masónít. Myndin varð fyrir miklum rakaskemmdum og er nú varðveitt í Listasafni Reykjavíkur og er viðgerð talin hugsanleg, fáist til þess nægi- legt fjármagn. Myndefnið er sótt til hetjunnar Helgu Haraldsdóttur sem bjargaði lífi sona sinna með því að synda úr Geirshólma til lands í Hval- firði, eins og segir frá í Harðarsögu og Hólmverja, auk þess sem verkið minnir á almenna sundkunnáttu Íslendinga til forna. Þess má geta að Gísla Halldórssyni arkitekt, sem hannaði útisvæði laugarinnar, varð einnig hugsað aftur í tímann, til Snorralaugar í Reykholti, þegar hann teiknaði heita potta fyrir sundlaugar- gesti – sem þá var mikil nýjung. Tollhús og andans hús Gísla var umhugað um göfgun and- ans í víðum skilningi. Tollstöðvar- húsið er eitt af þekktari verkum hans, en það reis á árunum 1967-70. Þar var gert ráð fyrir stórri, gluggalausri hafnarskemmu og mun Gísli hafa lagt áherslu á að skilja ytra byrði hússins, Tryggvagötumegin, eftir ópússað til að þrýsta á um gerð vegglistaverks. Gerður var fengin til verksins eftir að hafa skilað inn ýmsum tillögum sem í fyrstu byggðust á samleik frum- formanna, eins og sjá má á teikn- ingum og skissum sem varðveittar eru í Gerðarsafni. Hins vegar var gerð krafa um að myndmál listaverks á húsinu tengdist starfsemi Reykja- víkurhafnar og að lokum varð fyrir valinu tillaga Gerðar þar sem skipa- möstur og skipsstefni ber við sundin blá; höfnin kallast á við hafið, útlínur fjalla og alltumlykjandi geisla sólar- innar. Hálfhringlaga form sólarinnar fyrir miðri mynd er aflgjafi verksins, hún á samleik við hringform og boga- línur og geislar hennar binda saman þéttofinn myndflötinn. Þar eru lárétt- ar áherslur brotnar upp reglubundið með lóðréttum möstrum og skálínum sem skapa þríhyrnd form, hrynjandi og dýpt. Verkið hefur táknræna, and- lega merkingu í ætt við hugmyndir um alheimsorku. Gerður kynnti sér trúarbrögð og andleg málefni og hluti af aðdráttarafli verka hennar, sem einkennast af öguðum, formrænum áherslum, tengist þeirri innri spennu og leyndardómi sem í þeim býr. Veggmyndin er mónúmentalísk víðmynd en umhverfis hana eru flög- ur af íslensku gabbrói. Við útfærslu verksins fékk Gerður færustu sér- fræðinga til liðs við sig, eða bræðurna á Oidtmann-verkstæðinu í Linnich í Þýskalandi. Á verkstæði þeirra und- irbjó Gerður uppsetninguna sem þeir sáu svo um, en alls tók gerð verksins um tvö ár. Það samanstendur af um þremur tonnum af tilhöggnu grjóti, aðallega frá Feneyjum, en auk þess má sjá þar fallegt agat og fornan steingerving af smáfiski sem Elín Pálmadóttir nefnir í bók sinni Gerð- ur. Ævisaga myndhöggvara að lista- maðurinn hafi „sníkt út úr Oidt- mannsbræðrum málefnisins vegna“. Mynd af mósaíkverkinu prýðir ein- mitt kápu bókarinnar sem kom út tíu árum eftir að Gerður lést árið 1975, aðeins 47 ára gömul. Séð úr fjarlægð hefur verkið blá- og blágrænan blæ og hlýja, rauðgula og brúna tóna til » Því má velta fyrir sér hvernig íslensk listasaga hefði þróast ef þessar hæfileika- manneskjur og frum- kvöðlar hefðu átt lengri starfsævi. AF MYNDLIST Anna Jóa annajoa@hi.is N ýtt mannlífstorg hefur lit- ið dagsins ljós í miðbæ Reykjavíkur og þar fær nú notið sín til fulls stór- brotið mósaíklistaverk Gerðar Helga- dóttur (1928-1975) á suðurvegg Toll- hússins við Tryggvagötu. Nýhreinsuð veggmyndin er miðlæg í allri hönnun torgsins sem stefnt er að því að ljúka nú í maí og er ánægjulegt að sjá myndlistarverki gert svo hátt undir höfði í skipulagi borgarinnar – verki sem opnar raunar sýn á sögu borgar- landsins. Endurgerð Tryggvagötu hefur miðast að því að efla ímynd hennar sem eins konar „listagötu“ sem hverfist um varðveislu, miðlun og sköpun listar í víðri merkingu. Byggingar sem áður voru vöru- skemmur og skrifstofur er tengdust uppbyggingu hafnarinnar hafa um- breyst í miðstöðvar orð- og mynd- listar og nýlega var tilkynnt að Toll- húsið verði framtíðarstaður Lista- háskóla Íslands en það stendur við hlið Hafnarhússins þar sem Listasafn Reykjavíkur hefur haft starfsemi í rúma tvo áratugi. Áform eru um að Hafnarhúsið hýsi einnig safn Nínu Tryggvadóttur (1913-1968), annars framúrskarandi listamanns sem markaði áhrifarík spor í sögu nútímamyndlistar. Gerður og Nína áttu það sameiginlegt að vera mikil- virkar á sviði opinberra listskreyt- inga, bæði hérlendis og erlendis, og sérhæfðu sig þar í gerð steindra glugga og mósaíkverka. Í tilefni af hinu nýja „Gerðartorgi“, eins og freistandi er að kalla það, er tilvalið að skyggnast eftir tilurð þessa magn- aða mósaíkverks, og rifja jafnframt upp öflugan þátt kvenna á vettvangi listskreytinga hér á landi. Í þessari grein verður fjallað um verk í almenningi eftir Gerði, Nínu og Barböru Árnason (1911-1975). Samsláttur myndlistar og byggingarlistar Um miðja síðustu öld hófst hér á landi metnaðarfullt samstarf lista- manna og arkitekta sem snúið höfðu heim eftir nám erlendis með nýjar og framsæknar hugmyndir í farteskinu. Samvinnan fólst í því að listamenn unnu verk beint á veggi innanhúss, í glugga eða utan á byggingar sem hér risu ört samfara hröðum vexti höfuð- borgarsvæðisins. Á meginlandi Evrópu hafði eftir eyðileggingu síðari heimsstyrjaldar átt sér stað mikil uppbygging og endurnýjun þar sem saman tvinnuðust nýir alþjóðlegir straumar í byggingarlist og myndlist og gamlar handverkshefðir eins og steint gler og mósaík. Svipmót og andi nýrra tíma, að stríði loknu, tók fyrst og fremst mið af óhlutbundnu formi og áhrifa þess gætti einnig mjög hér á landi. Íslenskir listamenn, ekki síst þeir sem fengust við afstraktmyndlist, sýndu ýmsum handverkshefðum talsverðan áhuga og tileinkuðu sér gamlar og nýjar aðferðir við gerð nýstárlegra list- skreytinga í nýreistum mannvirkjum. Raunar voru góð fordæmi um vel- heppnað samstarf arkitekta og myndlistarmanna; má þar nefna byggingar eins og Austurbæjarskóla og aðalbyggingu Háskóla Íslands. Fáum konum höfðu boðist slík tæki- færi, ef frá er talið þegar myndhöggv- arinn Nína Sæmundsson (1892-1965) sigraði í samkeppni um listskreyt- ingu við inngang Waldorf Astoria- hótelsins í New York með verki sínu „Afrekshugur“ (1931). Heiti verksins gaf tóninn fyrir breytta tíma þegar nýjar kynslóðir listakvenna fóru að láta til sín taka á opinberum vett- vangi. Kvenhetjur í Vesturbænum Á sjötta áratugnum fjölgaði verk- efnum í almenningsrými fyrir mynd- listarmenn. Bæði körlum og konum buðust nú stór verkefni og þar á Bar- Fjölhæf Verkið Grasakonur eftir Barböru Árnason sem prýddi Apótek Vesturbæjar (1956). Olía á viðarspón, 115 x 450 cm. Ljósmynd/Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.