Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 SMÁRALIND – KRINGLAN – DUKA.IS UMHVERFISVÆN LEIÐ 100% SILÍKON (án-BPA) Má fara í uppþvottavél, bakaraofn, örbylgjuofn og frysti. TIL AÐ GEYMA MATVÆLI VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hestafræðinámið við Háskólann á Hólum er í sífelldri þróun, að sögn Sveins Ragnarssonar deildarstjóra. Stöðugt er verið að taka inn nýja þekkingu úr vísindum og mismun- andi skólum reiðmennsku og reið- kennslu, ekki síst erlendis frá. Þá sé einnig verið að búa til nýja þekkingu með starfinu á Hólum. Kröfurnar voru auknar verulega þegar hestafræðinámið færðist á stig fulls þriggja ára BS-náms fyrir tólf árum. Reiðkennaranámið sem hófst 1996 var þó á háskólastigi frá upphafi. „Það var mikil viðurkenn- ing fyrir hestamennskuna,“ segir Sveinn um þann áfanga. Markmið námsins er að mennta úrvals þjálfara, tamningamenn og reiðkennara. Sveinn telur að þeir sem starfa við uppbyggingu og þró- un námsins hafi verið lánsamir og getað verið á undan þróuninni í hestamennskunni. Þegar nemendur útskrifast hafi þeir tileinkað sér nýj- ustu þekkingu og séu tilbúnir til að láta til sín taka á markaðnum. Mikil eftirspurn er eftir starfs- kröftum fólks sem útskrifast úr BS- náminu. „Þau eru mjög áberandi í Íslandshestaheiminum um allan heim. Það sýnir sig í reiðkennslu, keppni og hvers konar úrvinnslu á hestum. Það sést hvert sem maður kemur í hestaheiminum að okkar fólk er þar leiðandi,“ segir Sveinn. Einbeittir í verkefni sínu Sveinn var atvinnumaður í hesta- mennsku á sínum yngri árum en fór í háskólanám og tók doktorsgráðu í fóðurfræði hesta. Hann hefur verið við kennslu á Hólum í um 20 ár og síðustu níu árin sem deildarstjóri hestafræðideildar. Mikil ásókn er í að komast í nám- ið. Teknir eru inn 20 nemendur á hverju hausti en yfirleitt sækja tvö- falt fleiri um. Valið fer fram með inn- tökuprófi. Sveinn segir að með því móti hefjist námið strax á talsvert háu stigi í reiðmennsku. Þá hafi það einnig þau áhrif að þeir sem sækjast eftir að komast í námið séu iðulega fólk sem þegar sé farið að láta til sín taka í hestamennskunni. Í skólanum séu því metnaðarfullir einstaklingar, einbeittir í verkefni sínu. Stúlkur hafa lengi verið í meiri- hluta útskrifaðra nemenda en piltar þó verið um fjórðungur að meðaltali síðustu árin. Við brautskráningu í vor bregður þó svo við að í fyrsta skipti útskrifast eingöngu stúlkur. Stuðlar að viðskiptum Sveinn bendir á að hestafræði- námið sé þjóðhagslega hagkvæmt og gjaldeyrisskapandi. Aukin fag- mennska við tamningar, þjálfun og reiðkennslu stuðli að auknum áhuga og útbreiðslu hestamennskunnar og þar með auknum viðskiptum í grein- inni. Einnig vísar hann til þess að fjöldi erlendra nemenda sé ávallt í deildinni. Nemendurnir komi yfir- leitt ári fyrr til landsins til að læra málið og vinna við hesta. Þeir leigi húsnæði og kaupi hesta og þjónustu á meðan á náminu stendur og flug- félögin fái sínar tekjur vegna ferða þeirra og aðstandenda á milli landa. Erlendu nemendurnir kynnist menningunni í kringum hestinn og verði ævilangt sendiherrar fyrir ís- lenska hestinn. Þeir séu oft í lykil- hlutverki við sölu á hestum erlendis, reiðtygjum og annarri þjónustu sem fylgi. Ekki megi gleyma þessum verðmætum sem námið á Hólum eigi sinn þátt í að skapa. Stöðugt tekin inn ný þekking - Mikil eftirspurn er eftir starfskröftum fólks sem útskrifast úr BS-námi í hestafræði frá Hólum - Hvert sem maður kemur er okkar fólk leiðandi, segir deildarstjórinn - Gjaldeyrisskapandi nám Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reiðsýning Brautskráningarnemar sýna gestum hluta af því sem þeir hafa lært á reiðsýningu á vorin. Sýndar eru reiðkúnstir og einnig hópreið með fána. Deildarstjóri Sveinn Ragnarsson stýrir hestafræðideildinni. Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs hinn 10. maí síðastliðinn var samþykkt að nýju að veita takmarkað leyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við breikkun Suðurlandsvegar (Hring- vegar 1) milli Fossvalla og Lögbergs- brekku. Þegar leyfið lá fyrir hófust framkvæmdir að nýju, upplýsir Vega- gerðin. Framkvæmdir voru stöðvaðar í síð- asta mánuði eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafði fellt úr gildi framkvæmdaleyfi Kópavogs- bæjar, sem gefið var út í október í fyrra. Þetta var gert að kröfu Wal- dorf-skólans í Lækjarbotnum. Nýja leyfið takmarkast við fyrri hluta framkvæmdarinnar og enn fremur aðeins við lagningu vegarins sjálfs en ekki hliðarvega. Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 20. júní n.k. Þeir einir geta kært ákvörðunina sem eiga lög- varða hagsmuni tengda henni. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Vegalagning Starfsmenn verktakans Jarðvals sf. og Bjössa ehf. hófu vinnu sína á Suðurlandsvegi þegar framkvæmdaleyfið var gefið út að nýju. Breikkun hafin á Suðurlandsvegi - Kópavogsbær veitti takmarkað leyfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.