Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rússneskar hersveitir sóttu í gær að úthverfum borgarinnar Severo- donetsk, austustu borgarinnar sem Úkraínumenn hafa enn á valdi sínu. Heyrðist orrustugnýr í útjöðrum borgarinnar, en með falli hennar yrði Lúhansk-hérað allt komið undir vald Rússa. Sagði Sergí Gaídaí, héraðsstjóri Lúhansk, að aðstæður í nágrenni Severodonetsk væru mjög erfiðar og að Rússar væru nú komnir nógu ná- lægt borginni til þess að skjóta með sprengjuvörpum á hana. Vladimír Pútín Rússlandsforseti undirritaði í gær tilskipun sem gerir íbúum í Kerson- og Saporisja-héruð- unum auðveldara fyrir að sækja um rússneskan ríkisborgararétt. Hefur herstjórn Rússa í héruðun- um stigið ýmis skref sem benda til þess að stefnt sé að innlimun þeirra, eins og að taka upp rússnesku rúbl- una í stað úkraínsku hryvníunnar. Stjórnvöld í Kænugarði sögðu að tilskipun Pútíns væri „gróft brot“ á fullveldi Úkraínu. „Skýr fjárkúgun“ Andrei Rúdenkó, aðstoðarutan- ríkisráðherra Rússlands, sagði að af- létta yrði refsiaðgerðum vesturveld- anna gegn landinu svo að koma mætti í veg fyrir alþjóðlega hungurs- neyð vegna innrásarinnar, en óttast hefur verið að matvælaskortur muni aukast mjög, sérstaklega í Afríku, þar sem Rússar hafa komið í veg fyr- ir að Úkraínumenn geti sent korn- birgðir sínar úr landi. Vesturveldin hafa sakað Rússa um að beita sér viljandi gegn kornsend- ingum frá Úkraínu til þess að grafa undan matvælaöryggi í heiminum. Þá hafa gervihnattamyndir bent til þess að Rússar steli korni frá Úkra- ínu og selja til bandamanna sinna. Rúdenkó neitaði þeim ásökunum. Dmítró Kúleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði á Davos-ráðstefnunni í gær að ummæli Rúdenkós væru skýrt dæmi um fjárkúgun, og hvatti vesturveldin til þess að láta ekki undan hótunum Rússa. Víkka aldurstakmörk hersins Rússneska dúman samþykkti í gær löggjöf sem nemur úr gildi ald- urstakmörk fyrir þá sem skrá sig í rússneska herinn. Samkvæmt fyrri lögum máttu einungis Rússar á aldr- inum 18-40 og erlendir ríkisborgarar á aldrinum 18-30 skrá sig í herinn í fyrsta sinn. Vjatséslav Volodín, forseti þings- ins, sagði að það þyrfti að styrkja herinn með öllum ráðum, en í skýr- ingum með frumvarpinu sagði að há- tæknivopn kölluðu á mikla sérþekk- ingu, og að í einhverjum tilfellum gætu þeir sem byggju yfir henni ver- ið á aldrinum 40-45. Þá myndi laga- breytingin einnig hjálpa til að fá óbreytta borgara sem nú starfa sem læknar, verkfræðingar eða fjar- skiptasérfræðingar til liðs við her- inn. Styðja ekki hryðjuverk Magdalena Andersson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að Svíar styddu ekki nein hryðjuverka- samtök, hvorki með fjármunum né vopnum, en stjórnvöld í Tyrklandi hafa sakað Svía um að styðja kúr- díska hryðjuverkamenn. Sendinefndir frá Finnlandi og Sví- þjóð hófu í gær viðræður við Tyrki í Ankara, höfuðborg Tyrklands, til að ræða þær mótbárur sem Recep Ta- yyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur sett fram við mögulegri aðild ríkjanna að Atlantshafsbandalaginu. Sagði Andersson viðræðurnar tæki- færi til þess að leiðrétta „misskiln- ing“ á milli ríkjanna. Forsetaembætti Tyrklands setti fram á mánudaginn fimm kröfur gagnvart Svíþjóð, en ein þeirra var sú að Svíar ættu að hætta að senda stuðning til Kúrda í Sýrlandi. Þá hafa Tyrkir lýst yfir vilja til að fá framselda rúmlega þrjátíu manns frá ríkjunum tveimur, sem þeir segja að hafi tengsl við annað hvort kúrd- íska vígamenn eða þá sem stóðu að valdaránstilrauninni gegn Erdogan árið 2016. Ætla að greiða í rúblum Rússnesk stjórnvöld lýstu því yfir í gær að þau myndu greiða erlendar skuldir sínar í rúblum, eftir að Bandaríkjastjórn nam úr gildi á þriðjudaginn undanþágu, sem heim- ilaði Rússum að greiða í bandaríkja- dölum. Anton Siluanov, fjármálaráðherra Rússlands, sagði að staðan nú væri „búin til af óvinaríki“, og að ákvörð- un Bandaríkjanna skaðaði aðallega réttindi erlendra fjárfesta sem keypt hefðu rússnesk skuldabréf. Með ákvörðuninni þykir líklegra að rússneska ríkið muni lenda í greiðslufalli með skuldir sínar, en á morgun, föstudag, eru skuldadagar á tveimur skuldabréfum. Annað þeirra heimilar að greitt sé með rúblum, en hitt krefst þess að greiðsla sé innt af hendi í dölum, evrum, sterlingspund- um eða svissneskum frönkum. Sagði Siluanov að ekki mætti líkja stöðunni við 1998, þegar ríkið lenti í greiðsluerfiðleikum. „Nú eigum við peningana og höfum vilja til að borga líka,“ sagði hann. Komnir að útjöðrum Severodonetsk - Pútín auðveldar íbúum í suðurhluta Úkraínu að fá rússneskt ríkisfang - Bjóða korn í skiptum fyrir afnám refsiaðgerða - Svíar og Finnar hefja viðræður við Tyrki - Rússar reyna að afstýra greiðslufalli AFP/Aris Messinis Kramatorsk Þessi drengur sat og virti fyrir sér skemmdirnar eftir eld- flaugaárás Rússa á borgina Kramatorsk í Donetsk-héraði í gær. Íbúar í bænum Uvalde í Texas syrgðu í gær eftir að byssumaður á táningsaldri myrti 19 börn á grunn- skólaaldri og tvo kennara í skotárás í bænum í fyrrinótt. Adolfo Hernandez, einn íbúa sagði við AFP-fréttastofuna að svart ský héngi nú yfir bænum. „Þú vilt bara klípa þig og vakna af þessari hrylli- legu martröð.“ Skotárásin hefur ýtt undir frekari umræðu um byssulöggjöf í Banda- ríkjunum, en þetta var áttunda stóra skotárásin þar í landi á þessu ári. Þá átti hún sér stað einungis um tíu dögum eftir að annar byssumaður á táningsaldri myrti tíu blökkumenn í borginni Buffalo í New York-ríki. Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í fyrrinótt að það væri tímabært að grípa í taumana og herða á byssulög- gjöf Bandaríkjanna. „Það er kominn tími til að þeir sem standa í vegi fyrir eða tefja byssulög sem byggja á al- mennri skynsemi fái að vita að við munum ekki gleyma því,“ sagði Bi- den í ávarpi sínu. Sagði hann að Bandaríkin sem þjóð þyrftu að spyrja sig hvenær í Guðs nafni myndu þau gera það sem allir vissu innst inni að þau þyrftu að gera og taka upp herta löggjöf. Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, sagði að byssumaðurinn hefði heitið Salvador Ramos, en hann var felldur af lögregluþjónum. Ramos, sem var í skotheldu vesti, skaut ömmu sína áð- ur en hann hélt til Robb-barnaskól- ans í Uvalde og framdi ódæðisverk sitt. Amma hans var í gær sögð á lífi, en í alvarlegu ástandi. Börnin 19 sem féllu í árásinni voru á aldrinum sjö til tíu ára, en að minnsta kosti fjórtán önnur börn voru flutt á sjúkrahús vegna skot- sára. Þá særðist einn lögregluþjónn úr landamæraeftirliti Bandaríkj- anna, sem svaraði útkallinu. Sendu samúðarkveðjur Ýmsir þjóðarleiðtogar sendu sam- úðarkveðjur sínar til aðstandenda í gær. Þar á meðal var Frans páfi, sem sagði að hjarta sitt hefði brostið vegna voðaverksins, og Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, sem sagði það vera hræðilegt þegar skotárásir sem þessar gerðust á friðartímum. Emmanuel Macron Frakklands- forseti sagði að franska þjóðin deildi hryllingi og sorg með Bandaríkja- mönnum, sem og „reiði þeirra sem vildu binda endi á ofbeldið“. Þá sendu bæði Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, og Olaf Scholz Þýskalandskanslari samúðar- kveðjur. Sagði Sanchez að það væri tímabært að binda endi á „þennan daglega hrylling í Bandaríkjunum“. AFP/Allison Dinner Sorg Stúlka í bænum Uvalde grætur í kjölfar árásarinnar í fyrradag, þar sem nítján börn og tveir kennarar féllu. „Hryllileg martröð“ - Nítján börn á aldrinum 7-10 ára myrt í skotárás í Texas - Byssumaðurinn felldur - Kallað eftir hertri byssulöggjöf Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að hann tæki á sig fulla ábyrgð gagnvart öllu sem gerst hefði í Downingstræti 10 á sinni vakt, eftir að harðorð skýrsla um veisluhöld þar á tímum sóttvarna- ráðstafana kom út. Johnson neit- aði þó með öllu að segja af sér vegna veisluhaldamáls- ins, og sagðist vona að með útgáfu skýrslunnar væri hægt að einbeita sér að mikilvægari málum. Í skýrslunni, sem embættismað- urinn Sue Gray ritaði, kemur meðal annars fram að í forsætisráðuneyt- inu hafi þrifist „menning“ sem ýtti undir veisluhöldin, og að starfsfólk ráðuneytisins hafi meðal annars flogist á undir áhrifum áfengis. „Margir af þessum viðburðum hefðu aldrei átt að fá leyfi,“ sagði Gray í skýrslu sinni, og bætti við að gert hefði verið grín að öryggisvörðum og ræstingafólki sem gerðu athuga- semdir við veislurnar. Johnson for- dæmdi þá hegðun, og sagði að þeir sem slíkt hefðu gert yrðu í það minnsta að biðjast afsökunar. Keir Starmer, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði skýrslu Gray sýna að starfsfólk ráðuneytisins hefði sýnt almennum Bretum lítils- virðingu og ítrekaði kröfu sína um að Johnson segði af sér. „Þú getur ekki samið lög á sama tíma og þú brýtur þau,“ sagði Starmer. Johnson hyggst ekki segja af sér - Veisluhöldin gagnrýnd harðlega Boris Johnson Hreint loft –betri heilsa Honeywell gæða lofthreinsitæki Láttu þér og þínum líða vel - innandyra Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. HFD323E Air Genius 5. Hægt að þvo síuna. Verð kr. 39.420 HPA830 Round Air Purifier. Mjög hljóðlát. Verð kr. 29.960 S. 555 3100 · donna.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.