Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Ármann Kr. Ólafsson hélt sína síð-
ustu ræðu í bæjarstjórn Kópavogs á
fundi í fyrradag, en þetta var síð-
asti fundur kjörtímabilsins og sá
1.258. í röðinni frá upphafi. Ár-
mann á að baki 24 ár í bæjarstjórn
og 10 ár sem bæjarstjóri Kópavogs.
Ármann var kjörinn í bæjar-
stjórn árið 1998 og á að baki um
480 fundi, segir í tilkynningu frá
Kópavogsbæ. Á ferlinum hefur
hann setið í bæjarráði, atvinnu-
málanefnd, menntaráði og fram-
kvæmdaráði. Þá hefur hann verið
formaður skipulagsnefndar, félags-
málaráðs og skólanefndar Kópa-
vogs, og verið forseti bæjar-
stjórnar. Hann hefur setið í hafnar-
stjórn og verið hafnarstjóri frá
2018.
Í sinni síðustu ræðu nýtti Ár-
mann tækifærið og rifjaði upp ýms-
ar breytingar á bænum og starf-
semi hans en íbúar voru tæp 20.000
þegar hann náði kjöri og hefur
bærinn tvöfaldast að stærð síðan.
Fleiri bæjarfulltrúar sátu sinn
síðasta bæjarstjórnarfund í Kópa-
vogi, þau Birkir Jón Jónsson, Jón
Finnbogason, Margrét Friðriks-
dóttir, Pétur Hrafn Sigurðarson og
Einar Þorvarðarson.
Ármann bæjarstjóri
kvaddur í Kópavogi
Ljósmynd/Kópavogsbær
Kópavogur Margrét Friðriksdóttir
og Ármann Kr. Ólafsson eru hætt.
Ásmundur Einar Daðason mennta-
og barnamálaráðherra hefur ákveð-
ið að styrkja samskiptaráðgjafa
íþrótta- og æskulýðsstarfs um átta
m.kr. á árinu til að bregðast við auk-
inni eftirspurn eftir þjónustu. Sig-
urbjörg Sigurpálsdóttir gegnir
þessu starfi.
Reynslan sýnir að þörf er á þjón-
ustunni og að bæði iðkendur og
íþróttafélög nýta sér þennan vett-
vang í auknum mæli við úrlausn
mála sem tengjast áreitni, ofbeldi,
einelti og samskiptavanda í íþrótta-
og æskulýðsstarfi, segir í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu.
Sigurbjörg hefur afhent ráðherra
ársskýrslu yfir starfsemina á síðasta
ári. Tilkynningum til ráðgjafans
fjölgaði úr 24 árið 2020 í 79 árið 2021.
Það sem af er árinu hefur 51 tilkynn-
ing borist. Flestar tilkynningar varða
kynbundna eða kynferðislega áreitni
eða ofbeldi. Næstflestar tilkynningar
eru vegna eineltis. Berast þær bæði
frá iðkendum og íþróttafélögum.
Samskiptaráðgjafi
fær átta milljónir
Ásmundur Einar og Sigurbjörg.
Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100
www.spennandi-fashion.isOpið: Mán-fös: 11-18 Lau: 12-15
LURDES BERGADA BARCELONA
FYRIR VEISLUR SUMARSINS!
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is
20%
afsláttur
af völdum
vörum frá
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Nýjar vörur streyma inn
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
Point Neuf kjóll
16.900,-
Freequent kjóll
8.900,-
GO WALK SMART 2
13.995 kr./ St. 36-41
with Goga
Mat™
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
SUMARSKÓR