Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið vorum alltaf að leika okkur þegar við vorum í Myndlistarskólanum snemma á níunda ára- tugnum og það hefur allar götur síð- an verið eðlilegur hluti af lífi okkar að leika sér. Við erum ekkert að rembast við þessar myndatökur, við bara finnum eitthvað og sjáum að það er hægt að gera eitthvað með það, förum svo af stað og þá kemur eitthvað út úr því. Þetta var bara okkar einkagrín sem við leyfðum öðrum að hlæja að. Við erum aðal- lega að skemmta okkur og þetta er mjög einlægt og barnslegt í grunn- inn hvernig þetta verður til. Við för- um aldrei af stað með fyrirfram- gefnar hugmyndir, þetta er alltaf eitthvað sem kviknar út frá því sem við finnum. Svo bætist okkar lífs- reynsla og bakgrunnur við með ein- hverjum hætti,“ segja þeir Hrafn- kell Sigurðsson myndlistarmaður og Óskar Jónasson kvikmyndagerðar- maður, en þeir ásamt Stefáni Jóns- syni, leikara og leikstjóra, opna myndlistarsýninguna Arctic Creat- ures nk. laugardag í Pop Up Gallery í miðbæ Reykjavíkur og fagna einn- ig útgáfu bókar með sama nafni. Á sýningunni eru ljósmyndaverk og skúlptúrar úr því sem þeir æskuvin- irnir hafa fundið í fjörum landsins í árlegri gönguferð um óbyggðir. Rispast stundum og merjast „Undanfarin tólf ár höfum við farið þrír saman í vikuferð sem reynir á úthald, með allt á bakinu og naumt skammtaðan mat. Krafturinn og listin í náttúrunni opnast fyrir okkur í þessum gönguferðum. Upp- haf þessara uppstillinga okkar fyrir myndatökur liggur í því að þegar við fundum einhvern hlut, horfðum á hann, snerum honum og skoðuðum og settum hann kannski á hausinn, þá endaði það stundum með að við gerðum heilan búning úr því drasli sem tíndist til. Við eigum til að gleyma alveg hvað tímanum líður, sem er svo gaman, okkur hefur rek- ið inni í firði þar sem við misstum af sjávarföllum af því að við vorum að leika okkur með rusl. Tími er svo af- stæður og af hverju þarf maður allt- af að vera að ganga frá A til B?“ spyrja þeir Óskar og Hrafnkell og bæta við að mikil samvinna og flæði sé ævinlega í því hvernig uppstilling verður til, því misjafn sé styrkur hvers og eins í hópnum. „Við finnum fyrir barnslegri og fölskvalausri gleði þegar við finnum til dæmis plastbrúsa sem lítur út eins og leirker, og hlaupum af stað með hann til að sýna hinum og finna út hvað sé hægt sé að gera við hann. Myndin The Betrayal varð til í framhaldi af því að við rákumst á smáhluti í fjörunni sem minntu á brauð og ávexti. Hugmyndin var að búa til litla ávaxtakörfu, en svo breyttist það í hlaðborð og loks bættust gestir við hlaðborðið, við sjálfir. Allur dagurinn fór í að skapa þetta verk. Þetta gerist bara og við vitum aldrei hvernig þetta endar. Fólk hatar ljótt rusl í fjörum, en við sjáum það sem efnivið til að skemmta okkur og skapa listaverk. Ruslástandið í fjörum landsins er vissulega ömurleg staðreynd, en með þessum verkum erum við ekk- ert endilega að benda á það vanda- mál. Um leið og við notum plastrusl í verkin okkar er það sjálfkrafa orð- ið pólitískt, en það er ekki okkar upplegg. Við lögðum ekki upp með umhverfisáróður, enda eru mörg verkanna ekki um plast og rusl, við erum líka að leika okkur með gróð- urinn,“ segja þeir félagar og benda á mynd sem dæmi þar um, End- angered Species, þar sem Óskar og Stefán eru þaktir þangi, líkastir fjörulöllum. „Þarna erum við þang- kynhneigðir.“ Annað dæmi er andlitsmynd af Stefáni þar sem hann er þakinn gulri froðu sem myndast á stöðu- vötnum, og enn önnur þar sem Keli og Stefán eru umvafðir grænu slími í votlendi. „Ég manaði Stebba og Kela til að baða sig í þessu, en ég lét ekki bjóða mér það. Keli var frekar hik- andi, en ég sagðist verða fyrir mikl- um vonbrigðum ef þeir færu ekki of- an í. Sjálfur var ég löglega afsakaður af því ég var með kvef,“ segir Óskar og játar því að stundum leggi þeir þó nokkuð á sig við upp- stillingar myndanna, þar sem þeir eru ævinlega naktir, enda hver mynd ákveðin endurfæðing. „Auðvitað er oft ískalt og stundum rispast maður og merst, en Guð lofaði okkur aldrei rósagarði.“ Frumstæðar hvatir stjórna Þeir segja nöfn myndanna vera mikinn hluta af þeim, til dæmis mynd af Óskari þar sem hann líkt og flýgur í lausu lofti, eða fellur, út í vatn hjá Stórurð, en myndin heitir Íkarus. Fuglinn sá flaug jú of ná- lægt sólinni svo af honum bráðnuðu vængirnir. Önnur mynd heitir Ófelía, en þar liggur Óskar líkt og látinn í sefi með blóm yfir kynfær- um sínum. „Ég þurfti að halda niðri í mér andanum svo vatnið gáraðist ekki við myndatökuna.“ Þeir segja efniðviðinn vera gríðarlega fjölbreyttan sem þeir finni og kveiki hugmyndir að verk- unum. „Allir leikskólar ættu að fara í fjöruferðir til að finna drasl og ann- að til að leika með. Okkur hættir til að blindast fyrir þessum möguleik- um sem búa í ruslinu. Við vorum til dæmis lengi að paufast með hvað við gætum gert með stór steypubrot og járnabindingar úr húsarústum. Við vorum langt komnir með þá uppstill- ingu þegar við áttuðum okkur á að hún minnti á málverk eftir Picasso, Guernica, öskrandi munnhol og spenntir útlimir. Þannig virðist stundum að það sem við þekkjum og höfum lært í listasögunni komi óvart í gegn, alveg ómeðvitað, sem og önn- ur reynsla. Til dæmis minnir birtan í bláum himni myndarinnar á geisla- virka sól, og fyrir vikið vísar hún óvænt í blátt plötuumslag Utan- garðsmanna, Geislavirkir. Sennilega gerum við ekki neitt fyrir algera til- viljun, einhver eðlisávísun og frum- stæðar hvatir stjórna okkur.“ Ófelía Hér liggur Óskar líkt og látinn í sefi með blóm yfir kynfærum sínum. „Ég þurfti að halda niðri í mér andanum svo vatnið gáraðist ekki við myndatökuna,“ segir hann um uppstillinguna. Lifestyle Fjölbreytni efniviðs fyrir æskuvinina til að gera uppstillingar er ótrúlegur og fyrir vikið eru möguleikar á útkomu nær óendanlegir. Hér öðlast plast og drasl nýtt hlutverk. Þangkynhneigðir Óskar og Stefán leika sér með fjörugróður, á myndinni Endangered Species. Þeir leika sér ekki bara með rusl, líka jarðargróður. Erum aðallega að skemmta okkur „Við eigum til að gleyma alveg hvað tímanum líð- ur, sem er svo gaman, okkur hefur rekið inni í firði þar sem við misstum af sjávarföllum af því að við vorum að leika okkur með rusl,“ segja þeir æskuvinirnir Óskar, Keli og Stebbi, sem opna ljós- myndasýninguna Arctic Creatures nk. laugardag. The Betrayal „Hugmyndin var að búa til litla ávaxtakörfu, en svo breyttist það í hlaðborð og loks bættust gestir við hlaðborðið, við sjálfir. Allur dagurinn fór í að skapa þetta verk. Við vitum aldrei hvernig þetta endar.“ „Undanfarin tólf ár höfum við farið þrír saman í vikuferð sem reynir á úthald, með allt á bakinu og naumt skammtaðan mat. Kraft- urinn og listin í náttúr- unni opnast fyrir okkur í þessum gönguferðum.“ 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.