Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Page 20

Morgunblaðið - 26.05.2022, Page 20
Álftir Eins og svanir eru vanir. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Dirrindí, hnegg og vell óma nú allan sólarhringinn í Friðlandi Svarfdæla, skammt frá Dalvík. Yfir 40 fuglateg- undir hafa sumarsetu á svæðinu, en það nær frá flæðarmáli og með bökkum Svarfaðardalsár og langt inn í dal. Hið friðlýsta svæði er alls um 540 hektarar og þykir um margt paradís líkast. „Allar þær fuglategundir sem verpa í friðlandinu eru nú komnar á svæðið,“ sagði Hjörleifur Hjartar- son landvörður þegar Morgunblaðið hitti hann nyrðra á dögunum. „Hér má sjá til dæmis jaðrakan, spóa, lóu, óðinshana, kjóa og kríu svo nokkrar tegundir séu nefndar og fjölmargar andartegundir eru einnig áberandi. Tilhugalíf þeirra er í miklum blóma og rómantíkin ráðandi. Þetta er skemmtilegasti tíminn í Friðlandinu. Svo þegar komið er fram í júní og fuglinn er lagstur á, dúrar allt niður og fuglasöngurinn verður ekki eins hömlulaus.“ Náttúruverndin mikilvæg Friðland Svarfdæla varð til árið 1972, eða fyrir hálfri öld. Á þeim tíma var á Íslandi að myndast vitund fyrir mikilvægi náttúruverndar og að ganga ekki á höfuðstól landsins. Frumkvæði að friðlýsingunni í Svarfaðardal kom frá bændum í sveitinni og er þetta elsta votlendis- friðland landsins. Náttúrufar svæð- isins er kjörlendi ýmissa fuglateg- unda en svæðið skiptist í þurra árbakka og blautar mýrar með star- arflóum, síkjum og gróðursælum seftjörnum. „Forðum daga höfðu bændur í Svarfaðardal haft miklar nytjar af óshólmunum og nærliggjandi svæð- um, svo sem við engjaheyskap og beit. Þegar komið var fram undir 1970 höfðu nytjar á landinu breyst nokkuð. Menn fóru þá að hugsa mál- in upp á nýtt,“ segir Hjörleifur og heldur áfram: „Frumkvæði að friðlýsingu kom frá föður mínum, Hirti Eldjárn Þór- arinssyni á Tjörn. Ný lög um nátt- úruvernd gengu í gildi árið 1971 og Hjörtur var í náttúruverndarráði. Hann fékk tíu aðra bændur til liðs við sig og með samstöðu þeirra var Friðland Svarfdæla stofnað. Þetta var á gullöld skurðgröfunnar á Ís- landi, þegar bændur kepptust við að ræsa fram mýrar og fengu hærri greiðslur eftir því sem meira var grafið. Á þessum árum voru árlega grafnir skurðir á Íslandi jafn langir og Hringvegurinn. Við vorum komin langleiðina með að grafa lengdina umhverfis hnöttinn. Þetta var hreint brjálæði. En friðun breytti hér öllu. Í dag er þetta svæði í dalnum nátt- úruperla og einstakt í sinni röð.“ Flórgoði og urmull af öndum Frá þéttbýli á Dalvík liggur göngustígur að Hrístjörn, en hún er innan marka Friðlands og við þjóð- veginn rétt áður en komið er úr suðri að brúnni yfir Svarfaðardalsá. Þar er meðal annars skýli til fuglaskoð- unar. Einnig liggur stikuð gönguleið að Húsabakka í Svarfaðardal. Þar fyrir neðan eru göngubrú yfir ána yfir í svonefndan Hánefsstaðareit, skógarlund í dalnum austanverðum. „Hvergi á Íslandi verpa fleiri teg- undir fugla en á óshólmasvæðum hér norðanlands, svo sem hér í Eyja- fjarðardölum og Skagafirði. Mér finnst það hrein forréttindi að fá að vinna við þetta og fylgjast með fuglalífinu. Á Hrísatjörn er mikið af flórgoða, urmull af öndum og máv- um, himbrimapar og tvenn svana- hjón á hreiðrum sínum með stuttu millibili. Í móunum í kring eru svo rjúpur og mófuglar, lómar synda á ánni og allt bókstaflega iðar af lífi,“ segir Hjörleifur. Hann býr í Laug- asteini í Svarfaðardal með eiginkonu sinni, sem er Íris Ólöf Sigurjóns- dóttir. Vilja göngubrú og gestastofu Mörgum er Hjörleifur kunnur sem annar tveggja í dúóinu Hundur í óskilum, sem skemmt hefur Íslend- ingum síðustu áratugina með leik og söng. Að öðru leyti sinnir Hjörleifur ýmsum verkefnum, meðal annars í sinni heimasveit. Starfrækti á tíma- bili náttúrufræðisetur í gömlum byggingum Húsabakkaskóla. Þar vakti sérstaka athygli sýningin Frið- land fuglanna sem var nokkurs kon- ar gestastofa Friðlands Svarfdæla. Sú starfsemi lagðist af þegar skóla- húsin voru seld, þó svo hún yrði upp- taktur þess að Umhverfisstofnun stofnaði til starfs landvarðar í Frið- landi Svarfdæla. Því embætti er haldið úti tvo mánuði á ári; það er frá í byrjun maí og fram í júní – og til- fallandi utan þess tíma. „Landvarslan er fjölbreytt starf og mörgu þarf að sinna,“ segir Hjör- leifur. „Einmitt núna huga ég að endurnýjun snjáðra upplýs- ingaskilta niður við þjóðveg. Síðan fer mikil vinna í að endurbæta göngustíga, merkingar og fleira slíkt. Einnig dreymir okkur um að reisa aðra göngubrú yfir Svarfaðar- dalsá innan marka Friðlandsins, en sú yrði þá hér niðu r við ósa og nærri sjó. Þá eru uppi áform um að koma upp gestastofu fyrir Friðlandið í gamla barnaskólahúsinu á Dalvík. Sú bygging stendur tóm í dag en ætlunin er að þar verði í framtíðinni byggðasafn og ýmsar fleiri stofn- anir.“ Hömlulaus fuglasöngur - Vor í Svarfaðardal - Lómar, rjúpur og rómantíkin - Friðland í fimmtíu ár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landvörður Starf þar sem mörgu þarf að sinna, segir Hjörleifur sem vill skipta út snjáðu upplýsingaskilti fyrir nýtt. Norðurland Horft yfir Friðlandið og inn dalinn með stólinn fyrir miðju. Heiðlóa Í loftinu bláu dirrindí. 20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Mannlífið á Skólavörðustíg er jafn- an líflegt og ekki síður á þeim hluta sem göngugatan er í regnbogalit- unum. Stemningin er enn meiri þegar vel viðrar og þannig háttaði einmitt til í vikunni þegar vinirnir Hlynur, Birgir, Bragi og Beggi seldu heimatilbúið límonaði. Vegfarendur um Skólavörðustíg kunnu vel að meta framtakið, eink- um erlendir ferðamenn, og seldist límonaðið grimmt. Tóku þeir félagar við hvaða gjaldeyri sem er, hvort sem það voru dollarar, evrur eða íslenska krónan. Morgunblaðið/Hákon Skólavörðustígur Félagarnir Hlynur, Birgir, Bragi og Beggi seldu heima- tilbúið límonaði í vikunni og fengu góðar viðtökur hjá vegfarendum. Seldu vel af límonaði á Skólavörðustíg Sýningarsalur - Draghálsi 4 - 110 Reykjavík - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is Uppþvottavélar fyrir allar stærðir eldhúsa T a k ti k 5 7 3 9 # MBM húddvél LK626 Aukin framlegð í stóreldúsinu. Húdd uppþvottavél með 45 cm opnun. Þrjú kerfi 60/120/150 sek. 3 fasa 400 V. Ytra mál BxDxH 63,5 x 74,5 x 153 Stærð á körfu 50 x 50 cm Vatnsmagn 20 ltr Hurðaop 45 cm Aristarco Undirborðs uppþvottavél AF50.35 DP DDE V400 Ytra mál BxDxH: 57,2 x 63,0 x 81,4 Stærð á körfu 45 x 45 cm Tveir þvottaspaðar - efst og neðst Innbyggður skammtari fyrir gljáa - Heit skolun Vatnsmagn 18 ltr Hurðaop 30,5 cm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.