Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 32
32 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið Þrátt fyrir erfið veðurskilyrði veiddu uppsjávarskip útgerðarfélagsins Brims rúmlega 66 þúsund tonn af loðnu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en þá var verð á botnfiskafurðum gott á tímabilinu. Þetta tvennt skýrir að miklu leyti hagnað félagsins á tímabilinu, en Brim hagnaðist á fyrsta ársfjórðungi um 26,4 milljónir evra, samanborið við 10,9 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Miðað við meðalgengi á tímabilinu nemur hagnaðurinn 3,8 milljörðum króna. Tekjur félagsins hækkuðu um rúm 30% á milli ára, og námu á fyrsta ársfjórðungi 94 milljónum evra, sem eru um 13,5 milljarðar króna, samanborið við 71 milljón evra í fyrra. Eignir félagsins hækk- uðu um 55 milljónir evra frá áramót- in og námu í lok fyrsta ársfjórðungs 851 milljón evra. Eigið fé í lok tíma- bilsins var 398 milljónir evra og eig- infjárhlutfallið 46,8%. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam um 32 milljónum evra, samanborið við 14 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Félagið greiðir um sex millj- ónir evra í tekjuskatt fyrir tímabilið, eða rúmlega 860 milljónir króna. Gefa starfsmönnum hlutabréf Stjórn Brims ákvað fyrr á árinu að afhenda starfsmönnum eignarhluti í félaginu. Heildarfjöldi þessara hluta er um 4,4 milljónir og var þeim skipt á milli starfsmanna eftir starfsaldri. Auk þess greiddi Brim launabónus til að mæta tekjuskatti starfsmanna vegna hlunnindanna. Samtals eru þetta um 580 milljónir króna sem eru gjaldfærðar í árshlutareikningnum. Að frádregnum kostnaði við af- hendingu hlutabréfa til starfsmanna er ekki mikil breyting í launa- kostnaði félagsins á milli ára. Mark- aðsvirði Brims var í lok tímabilsins um 183 milljarðar króna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppgjör Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, sagði á uppgjörsfundi í gær fyrsta ársfjórðung þessa árs hafa verið þann besta í sögu félagsins. Brim hagnast um 3,8 milljarða króna - Starfsmenn fá hlutabréf fyrir 600 m. kr. 26. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.94 Sterlingspund 162.45 Kanadadalur 101.58 Dönsk króna 18.72 Norsk króna 13.539 Sænsk króna 13.265 Svissn. franki 134.8 Japanskt jen 1.0206 SDR 175.51 Evra 139.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.0081 að hafa dregið úr hvatanum til að leigja íbúðir til skamms tíma með öllu því umstangi sem því fylgi. Sömuleiðis geti hærra fasteignaverð þýtt að ekki borgi sig að kaupa íbúðir gagngert fyrir skammtímaleigu. „Mönnum ber saman um að um- svif heimagistingar séu nú mjög lítil og að markaðurinn sé að fara hægt af stað á ný,“ segir Jóhannes Þór sem kveðst ekki hafa gögn um hvað framboð Airbnb vegur nú þungt í seldum gistinóttum á Íslandi. Fyrir faraldurinn hafi kannanir bent til að um fimmta hver gistinótt væri seld á Airbnb-síðum, borið saman við 5-6% hlutfall hennar á Norðurlöndum, en hlutfallið sé nú ekki þekkt. Með hlið- sjón af vægi skammtímagistingar fyrir faraldurinn muni það hafa mikil áhrif ef hún dregst saman, samhliða stórauknu flugframboði. „Það er líklegt að það muni skorta framboð af gistirými á vissum svæð- um á landinu, þar sem framboðið er minna en hér á höfuðborgarsvæðinu. Sú staða er til dæmis að koma upp á Austurlandi og Norðurlandi en þar fer saman minna framboð gistingar og lengri dvalartími ferðamanna. Sú þróun getur leitt til þess að það verði ekki nægt framboð á einhverjum tíma yfir háönnina frá seinni hluta júlí og fram í fyrstu vikuna í sept- ember. Það þýðir aftur að verðið hækkar væntanlega en ef bókunar- síður eru skoðaðar kemur í ljós að verðið hefur hækkað meira á Aust- urlandi og á Norðausturlandi en til dæmis á Suðurlandi og Vesturlandi.“ Allt að 70% færri íbúðir En haft var eftir Kjartani Smára Höskuldssyni, framkvæmdastjóra Íslandssjóða, í Morgunblaðinu sl. laugardag að sérfræðingar telji að 70% af þeim íbúðum sem voru keypt- ar til að leigja þær út á Airbnb hafi verið seldar og séu í langtímanotkun. Jóhannes Þór segir að við sam- drátt íbúðagistingar bætist skortur á húsnæði fyrir starfsfólk fyrirtækja í ferðaþjónustu um allt land. Ljóst sé að margir ferðamenn hafi átt uppsafnaðan ferðasjóð eftir far- aldurinn og panti sér lengri og dýr- ari ferðir en áður. Það eigi eftir að koma í ljós hversu varanleg sú breyt- ing verður. Meðal óvissuþátta sé stríðið í Úkraínu en verðbólga af þess völdum kunni að skerða ráð- stöfunartekjur Evrópubúa, þ.m.t. Þjóðverja, og það geti aftur mögu- lega dregið úr eftirspurn á næsta ári. Réttur tími fyrir fjárfestingu Þrátt fyrir það séu horfur í ferða- þjónustu góðar, horft nokkur ár fram í tímann og almennt gert ráð fyrir kröfugum bata næstu misseri. Með það í huga sé tímabært að huga að fjárfestingu í ferðaþjónustu, þar með talið í hótelgistingu, til að mæta væntri eftirspurn. Þá þurfi ferðaþjónustan nýtt eigið fé en mörg fyrirtækin glími við skammtíma- skuldir og frestaðar skattaskuldir. Því sé fyrirséð með haustinu að bankar muni meta rekstrarhæfi fé- laga, ekki síst lítilla og meðalstórra, og hvort þau séu á vetur setjandi. Telur Jóhannes Þór fullt tilefni fyrir ríkisstjórnina til að leita fyrir- myndar í átaksverkefninu Beina brautin frá árinu 2010 sem var ætlað að flýta fjárhagslegri endurskipu- lagningu og úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Ef ríkið fari sömu leið gagnvart ferða- þjónustunni í haust muni það ekki fela í sér fjárútlát heldur aðeins ágóða fyrir ríkið til lengri tíma litið. Gæti þrýst upp verði á gistingu - Framkvæmdastjóri SAF segir fækkun Airbnb-íbúða geta leitt til skorts á gistirými yfir háönnina - Tölfræði skorti um markaðinn - Verðlagsáhrif stríðsins geti bitnað á eftirspurninni á næsta ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Aukin eftirspurn Herbergi á CenterHótelinu á Laugavegi 95-99. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Mjög hefur dregið úr framboði íbúða sem leigðar eru til ferðamanna í skammtímaleigu, til dæmis í gegnum vefsíðuna Airbnb, og gæti það leitt til skorts á gisti- rýmum. Þetta segir Jó- hannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, SAF, og vísar til fyrirspurna sem hann gerði meðal félagsmanna sinna, að beiðni Morg- unblaðsins. Á hinn bóginn skorti ábyggilega tölfræði um stöðuna á markaðnum til að fullyrða hversu mikill samdrátturinn er. Margar hafa verið seldar Jóhannes Þór bendir á að margar þessara íbúða hafi verið seldar eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst og margar farið í langtímaleigu. Vegna hækkandi leiguverðs kunni Jóhannes Þór Skúlason Tekjur Síldar- vinnslunnar nær tvöfölduðust á milli ára á fyrsta fjórðungi þessa árs, og námu um 100,5 milljónum Bandaríkjadala. Hagnaður á tíma- bilinu nam 27,5 milljónum dala, eða tæplega 3,6 milljörðum króna, og jókst um 30% milli ára. Eiginfjárhlutfall félagsins er 67,1%. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síld- arvinnslunnar, segir í uppgjörstil- kynningu að þrátt fyrir brösuga byrjun á loðnuvertíðinni hafi loðnu- vinnslan verið nánast samfelld frá áramótum. Þá kemur fram í kynn- ingu uppgjörsins að samið hafi verið um uppgjör á útistandandi við- skiptakröfu vegna stríðsins í Úkra- ínu. Um 800 þúsund dalir færast í niðurfærslu á fyrsta ársfjórðungi og nema heildaráhrif stríðsins því um 3,3 milljónum dala í töpuðum kröf- um, en áhrifin séu að fullu komin fram í reikningum félagsins. Tekjur tvö- földuðust á milli ára - Hagnaður jókst um 30% á milli ára Gunnþór Ingvason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.