Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Jóhanna Sif Sigurðardóttir, 27 ára, og Þór-
dís Karen Þórðardóttir, 28 ára, eru báðar
með óþrjótandi áhuga á morðmálum og öðr-
um sakamálum og halda úti einu vinsælasta
hlaðvarpi Íslands um þessar mundir, Morð-
skúrnum, sem fjallar, eins og nafnið gefur til
kynna, um morð og önnur sakamál; manns-
hvörf og dularfull dauðsföll svo eitthvað sé
nefnt.
Þekkt íslenskt mál kveikti áhugann
Áhuginn á sakamálum kviknaði hjá vin-
konunum báðum á unga aldri.
„Ég hef verið forfallinn aðdáandi bókanna
„Öldin okkar“ frá því ég var allt of ung og
rak þar augun í Guð-
mundar og Geirfinns-
málið. Það kveikti á
þessum áhuga sem
hefur bara aukist í
gegnum árin – enda
var ég 12-13 ára
gömul handviss um
að ég gæti leyst þetta
þjóðþekkta mál,“
segir Jóhanna sem er jafnframt tveggja
barna móðir búsett í Garðabæ.
Fór í lögreglufræði
Þórdís segir áhugann líklega hafa kviknað
út frá ýmiss konar glæpaþáttum á við CSI
og Forensic Files sem hún horfði mikið á.
„Pabbi er líka fyrrum lögreglumaður og
mér fannst það hrikalega spennandi starf,
svo ég fór sjálf í skólann og útskrifaðist með
gráðu í lögreglufræði þar sem áhuginn
kviknaði fyrir alvöru,“ segir Þórdís sem
kveðst vera eilífðarstúdent og leggur nú
stund á meistaranám í lögfræði.
„Lúmskur áhugi í okkur öllum“
Vinkonurnar eru sammála um að Íslend-
ingar hafi gríðarlegan áhuga á glæpum. Þær
tóku meðvitaða ákvörðun um að fjalla ekki
um íslensk mál í hlaðvarpinu en þó nokkur
íslensk hlaðvörp um sakamál eru meðal vin-
sælustu hlaðvarpanna hérlendis. Eftirspurn
og áhugi Íslendinga á þessu málefni virðist
því vera gífurlegur.
„Ég held að það sé lúmskur áhugi fyrir
þessu í okkur öllum. Þessi forvitni fylgir
okkur Íslendingum hvert sem við förum.
Það eru þessi erlendu mál sem kannski rata
ekki beint í fjölmiðla hér sem við fjöllum
helst um. Við ákváðum strax í upphafi að við
ætluðum ekki að fjalla um íslensk mál enda
getur það verið mjög viðkvæmt. En ég held
að við liggjum samt flestöll yfir fréttunum
þegar slík mál koma upp,“ lýsir Þórdís og
Jóhanna tekur undir.
Fjalla ekki um íslensk mál af ástæðu
„Íslensk mál rata ekki í okkar þætti ein-
faldlega af því að við gerum okkur grein fyr-
ir því hversu lítið landið okkar er og það eru
allar líkur á að hlustendur okkar þekki til
málsins – til þolenda eða gerenda málsins
persónulega eða þekkja einhvern sem þekk-
ir einhvern sem tengist málinu beint. Það er
upplifun sem við viljum ekki að hlustendur
okkar lendi í,“ bætir Jóhanna við.
Gríðarlegur áhugi og viðbrögð
Báðar segjast þær hafa fundið fyrir gríð-
arlegum áhuga hlustenda sinna.
„Við reynum að eiga í samskiptum við
hlustendur okkar um málin sem við tökum
fyrir og viðbrögðin eru undantekningarlaust
sterk.
Fólk hefur skoðanir á atburðum og hug-
myndir og vangaveltur um hvað kom fyrir
Við fáum skilaboð upp á hvern einasta dag
um málin sem við tökum fyrir og ábendingar
um önnur mál, þannig að áhuginn er mjög
mikill,“ segja vinkonurnar.
„Ég held að það sé að stórum hluta tengt
þessari forvitni – ástæða þess að ég dembi
mér ofan í mál er bara hnýsni og að reyna
að fá svör við einhverjum spurningum sem
fást nú sjaldnast svör við samt eins og má
heyra í þáttunum hjá okkur,“ segir Jóhanna.
Vinkonurnar, sem segjast hafa verið
nokkurn veginn óaðskiljanlegar frá mennta-
skóla, sögðu frá því hvernig Morðskúrinn
varð til á svipstundu eftir afdrifarík skilaboð
sem Þórdís sendi Jóhönnu í október 2020.
„Langar þig ekki að gera „podcast“ með
mér,“ spurði Þórdís en Jóhanna svaraði því
umsvifalaust játandi.
Áttu ekki von á því sem koma skyldi
„Í sömu viku var fjárfest í hljóðnema sem
við lærðum ekkert á og fyrsti þátturinn var
gefinn út mánuði síðar,“ sögðu vinkonurnar
sem segja að fyrstu fimm þættirnir hafi ver-
ið með hræðileg hljómgæði, einfaldlega
vegna þess að nýi fíni hljóðneminn var ekki í
sambandi.
„Við fórum inn í þetta með nákvæmlega
engar væntingar. Bara góða afsökun til að
hittast reglulega Við áttum svo sannarlega
ekki von á því sem koma skyldi!“ segja þær
Jóhanna og Þórdís.
Stöllurnar skipta þáttunum sínum í
nokkra flokka; manndráp, óupplýst mál,
mannshvörf, raðmorðingja og dularfull
dauðsföll, auk þess sem mál sem fjalla um
fjöldamorð hafa ratað á borð þeirra. Þær
eru einnig duglegar að deila upplýsingum og
myndum í tengslum við málin á Instagram-
síðu sinni, Morðskúrinn og á Facebook þar
sem er bæði virkur umræðuhópur (Morð-
skúrinn – umræðuhópur) og síða tileinkuð
hlaðvarpinu.
Morðáhugi Íslendinga óþrjótandi
Óbilandi áhugi Jóhanna er tveggja barna
móðir og skrifstofustjóri með óbilandi áhuga
á öllu sem tengist morðum og glæpum.
Eilífðarstúdent Þórdís er eilífðarstúdent, að
eigin sögn, með gráðu í lögreglufræði og býr
ásamt kærasta sínum og hundi í Hafnarfirði.
Upphafið Hér má sjá upphaf Morðskúrsins
sem varð formlega til mánuði síðar.
Jóhanna og Þórdís halda úti
vinsæla sakamálahlaðvarpinu
Morðskúrinn þar sem þær
fjalla um sakamál af ýmsu tagi
og segja áhuga Íslendinga á
þessu málefni gríðarlegan.
Morbid
„Sakamálahlaðvarp, mjög vel unnið efni og stóru málin eru
mikið tekin fyrir í þáttunum.
Þáttastjórnendur eru tvær konur sem eru báðar mjög léttar
á því en alvarleiki glæpsins skilar sér engu að síður til hlust-
enda.“
Trace evidence
„Hlaðvarp sem fjallar um óupplýst mál sem fær hausinn á
manni til að fara á flug. Maður fær undantekningalaust saka-
máladelluna eftir nokkra þætti.“
Killer Queens
„Tvær eldhressar, jafn málglaðar og við stöllur en töluvert
orðheppnari en við. Eins og nafnið gefur til kynna er um saka-
málahlaðvarp að ræða.“
MILE HIGHER
„Alls konar mál; morðmál, mannshvörf og dularfullir at-
burðir. Langir þættir og smáatriðin upp á tíu, sem er alltaf
skemmtilegt.“
Betri helmingurinn með Ása
„Þessir þættir eru alveg frábærir fyrir þá forvitnu.
Skemmtilegar sögur og Ási nær að gera þetta svo áhugavert
með alls konar einstaklingum úr þjóðfélaginu.“
Áhugaverð
hlaðvörp
Þórdís og Jóhanna í Morðskúrnum gefa álit
Jóhanna og Þórdís, stjórnendur Morðskúrsins, hlusta
reglulega á hlaðvörp og eru sakamálahlaðvörp í miklu
uppáhaldi. K100 fékk vinkonurnar til að segja les-
endum frá sínum uppáhaldshlaðvörpum.
GRÍMSEY hanskar
Kr. 2.990.-
GÍGUR unisex regnbuxur
11.990 Kr.
HVÍTANES
Merínó húfa
Kr. 3.990.-
Þín útivist - þín ánægja
ASOLO
Angle GV
Kr. 25.990.-
FAGRADALSFJALL
ullarpeysa
14.990 Kr.
ARCTIC EXPLORER
göngustafir
Kr. 5.990.-
LANGJÖKULL ullarjakki
28.990 Kr.
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
MICROFIBER handklæði
Kr. 1.490.-
SKÓGANES
Merino ullarbolur
Kr. 11.990.-
DÖGG regnkápa
11.990 Kr.