Morgunblaðið - 26.05.2022, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, skýrði frá því á frétta-
mannafundi í gær að góðar líkur
væru á að spænski miðjumaðurinn
Thiago gæti spilað úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu gegn Real
Madrid á laugardagskvöldið.
Thiago meiddist í leik liðsins við
Wolves á sunnudaginn en í ljós kom
í gær að meiðslin væru ekki eins al-
varleg og óttast var. Þá æfðu bæði
Fabinho og Joe Gomez með Liver-
pool í gærmorgun en þeir hafa báð-
ir verið frá vegna meiðsla í síðustu
leikjum.
Thiago líklegur
á laugardaginn
AFP/Oli Scarff
Góður Thiago hefur unnið keppn-
ina með Bayern og Barcelona.
Stórleikur hjá Slóvenanum Luka
Doncic varð til þess að Dallas Ma-
vericks eygir enn veika von um að
vinna einvígið við Golden State
Warriors í úrslitum Vesturdeildar
NBA í körfubolta. Doncic skoraði
30 stig, tók 14 fráköst og gaf 9 stoð-
sendingar fyrir Dallas í heimasigri
gegn Golden State í fyrrinótt,
119:109.
Von Dallas er samt afar veik,
staðan er 3:1 fyrir Golden State
sem getur tryggt sér sigur í einvíg-
inu á sínum heimavelli í San Franc-
isco þegar liðin mætast þar í kvöld.
Doncic gaf Dall-
as veika von
AFP/Tom Pennington
Dallas Luka Doncic tryggði góðan
sigur gegn Golden State.
Nökkvi skoraði líka fyrsta mark
síðari hálfleiks og kom ÍBV yfir í
fyrsta skipti í leiknum. Valur
komst í 22:20 en þá kom magn-
aður kafli Eyjamanna sem skor-
uðu sjö mörk gegn einu og voru
komnir í 27:23 þegar níu mínútur
voru eftir.
Valsmenn voru aðeins fjórar
mínútur að jafna metin í 27:27 og
við tók æsispennandi lokakafli þar
sem jafnt var á öllum tölum. Arn-
ór Snær Óskarsson kom Val yfir,
31:30, og ÍBV tók leikhlé í kjölfar-
ið. Eyjamenn nýttu ekki lokasókn-
ina og Valsmenn fögnuðu sætum
sigri.
Benedikt Gunnar Óskarsson
skoraði 6 mörk fyrir Val, Róbert
Aron Hostert 5, Arnór Snær Ósk-
arsson 5, Magnús Óli Magnússon
5, Finnur Ingi Stefánsson 4, Sti-
ven Tobar Valencia 3, Vignir Stef-
ánsson 2 og Þorgils Svölu Bald-
ursson eitt. Björgvin Páll
Gústavsson varði 10 skot.
Arnór Viðarsson skoraði 5 mörk
fyrir ÍBV, Elmar Elingsson 4,
Kári Kristján Kristjánsson 4,
Theodór Sigurbjörnsson 3, Dagur
Arnarsson 3, Ásgeir Snær Vign-
isson 2, Sveinn Jose Rivera 2,
Nökkvi Snær Óðinsson 2, Dánjal
Ragnarsson 2, Sigtryggur Daði
Rúnarsson 1, Róbert Sigurðarson
1 og Gabríel Martinez Róbertsson
1. Björn Viðar Björnsson varði 6/1
skot og Petar Jokanovic 3.
Valur meistari á laugardag?
- Valsmenn lögðu ÍBV í stórkostlegum
handboltaleik á Hlíðarenda, 31:30
Morgunblaðið/Eggert
Hlíðarendi Valsmaðurinn Róbert Aron Hostert tekinn föstum tökum af
Friðriki Hólm Jónssyni í leiknum á Hlíðarenda í gærkvöld.
Á HLÍÐARENDA
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Valsmenn geta orðið Íslandsmeist-
arar karla enn á ný á laugardag-
inn eftir að hafa sigrað ÍBV,
31:30, í stórkostlegum handbolta-
leik á Hlíðarenda í gærkvöld. Það
var þriðja viðureign liðanna í úr-
slitaeinvíginu og Valsmenn náðu
með því forystunni, 2:1.
Vinni þeir fjórða leikinn í Eyj-
um á laugardag eru þeir orðnir Ís-
landsmeistarar en ÍBV þarf sigur
til að knýja fram oddaleik. Hann
færi þá fram á Hlíðarenda á
mánudagskvöldið kemur.
Eftir jafnar upphafsmínútur
komust Valsmenn í 9:5. Þeir voru
tveimur til fjórum mörkum yfir
mestallan fyrri hálfleikinn, allt þar
til Eyjamenn jöfnuðu í 16:16 undir
lok hans og svo aftur í blálokin
með glæsilegu marki Nökkva
Snæs Óðinssonar þegar ein sek-
únda var eftir á leikklukkunni,
17:17. Leikurinn var fjörugur og
hraður í fyrri hálfleik eins og
markatalan ber með sér.
Sandra Sigurðardóttir landsliðsmarkvörður úr Val var besti leikmaðurinn
í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.
Sandra átti stórleik þegar Valur lagði Breiðablik 1:0 á þriðjudagskvöldið
en hún varði vítaspyrnu og nokkur erfið skot Blikanna að auki.
Sandra fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í Morgunblaðinu og þá ein-
kunn fengu tveir aðrir leikmenn í sjöttu umferðinni. Arna Sif Ásgríms-
dóttir, miðvörður Vals, sem skoraði sigurmarkið gegn Breiðabliki, og
Sandra María Jessen sem skoraði tvívegis fyrir Þór/KA þegar Akureyrar-
liðið tapaði 5:4 fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum.
Arna Sif og Elísa Viðarsdóttir úr Val eru báðar í úrvalsliðinu í þriðja
sinn í fyrstu sex umferðunum en lið sjöttu umferðar er hér fyrir ofan.
6. umferð
í Bestu deild kvenna 2022
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Sandra Sigurðardóttir
Valur
Arna Sif
Ásgrímsdóttir
Valur
Sædís Rún
Heiðarsdóttir
Stjarnan
Elísa Viðarsdóttir
Valur
Marcella Barberic
KR
Rasamee
Phonsongkham
KR
Murphy Agnew
Þróttur
Freyja Karín
Þorvarðardóttir
Þróttur
Jasmín Erla
Ingadóttir
Stjarnan
Sandra María Jessen
Þór/KA
Kristín Erna
Sigurlásdóttir
ÍBV
3 3
2
Sandra best í sjöttu umferð
Um leið og Arnar Þór Við-
arsson vinnur að því að stilla upp
eins sterku byrjunarliði og hann
getur í fyrsta leik karlalandsliðs-
ins í Þjóðadeildinni í fótbolta er
áhugavert að stilla upp öðru ís-
lensku landsliði.
Ellefu manna byrjunarlið,
skipað leikmönnum sem eru
meiddir, gefa ekki kost á sér eða
eru ekki gjaldgengir vegna nýrrar
viðbragðsáætlunar KSÍ gæti ver-
ið þannig skipað:
Í markinu væri Elías Rafn
Ólafsson sem handarbrotnaði í
mars og er úr leik í bili.
Í þriggja manna vörn væru
miðverðirnir Hjörtur Her-
mannsson, Hólmar Örn Eyjólfs-
son og Sverrir Ingi Ingason.
Á þriggja manna miðju væru
Guðlaugur Victor Pálsson, Aron
Einar Gunnarsson og Rúnar Már
Sigurjónsson.
Á köntunum væru Jóhann
Berg Guðmundsson og Arnór
Ingvi Traustason.
Í fremstu víglínu væru síðan
Alfreð Finnbogason og Jón Daði
Böðvarsson.
Þá eru ónefndir leikmenn eins
og Ari Freyr Skúlason, Viðar Örn
Kjartansson og Jón Guðni Fjólu-
son, sem og þeir Gylfi Þór Sig-
urðsson og Kolbeinn Sigþórsson
sem hafa ekki spilað fótbolta frá
síðasta sumri.
Fámennri þjóð eins og þeirri
íslensku veitti ekki af því að geta
nýtt alla sína bestu leikmenn.
Það er hins vegar ekki í boði sem
stendur. Arnar Þór freistar þess
að byggja upp nýtt landslið við
erfiðar aðstæður. Það verður af-
ar áhugavert að sjá hvernig til
tekst í leikjunum gegn Ísrael og
Albaníu en þeir munu gefa góða
mynd af stöðu liðsins í dag.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 32ja liða úrslit:
Safamýri: Fram – Leiknir R .................... 14
KA-völlur: KA – Reynir S......................... 16
Ásvellir: Haukar – Víkingur R ............ 19.15
Kópavogur: Breiðablik – Valur ........... 19.45
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Grindavík: Grindavík – FHL.................... 14
2. deild kvenna:
Skessan: ÍH – Hamar................................ 14
Vopnafjörður: Einherji – Grótta.............. 14
Höfn: Sindri – Álftanes ............................. 16
Valsvöllur: KH – Völsungur ..................... 17
HANDKNATTLEIKUR
Þriðji úrslitaleikur kvenna:
Safamýri: Fram – Valur (1:1) .............. 19.30
Í DAG!
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, fjórði úrslitaleikur:
Dallas – Golden State....................... 119:109
_ Staðan er 3:1 fyrir Golden State og
fimmti leikurinn fer fram í San Francisco í
kvöld.
086&(9,/*"
Líklegt er talið að ferli sænska
knattspyrnumannsins Zlatans Ibra-
himovic sé lokið. Hann gekkst und-
ir uppskurð á hné í gær og verður
frá keppni næstu 7-8 mánuðina.
Zlatan verður 41 árs í október en
hann skoraði átta mörk fyrir
ítölsku meistarana AC Milan á ný-
liðnu keppnistímabili.
Ferlinum lokið
hjá Zlatan?
Gríðarlega óvænt úrslit urðu í
Mjólkurbikar karla í fótbolta í gær-
kvöld þegar 2. deildar lið Njarðvík-
inga gjörsigraði nágranna sína í
Keflavík, 4:1, í 32ja liða úrslitum
keppninnar. Magnús Már Matthías-
son skoraði tvö mörk fyrir Njarðvík-
inga, Oumar Diouck og Kenneth
Hogg eitt hvor en Patrik Johann-
esen skoraði fyrir Keflavík.
Fylkismenn, sem leika í 1. deild,
slógu bestudeildarlið ÍBV út úr bik-
arnum með 2:1-sigri í viðureign lið-
anna í Árbænum. ÍBV missti Tómas
Bent Magnússon af velli með rautt
spjald á 36. mínútu og Fylkir komst í
2:0 á næstu ellefu mínútum með
mörkum frá Mathias Laursen og Ás-
geiri Eyþórssyni. Alex Freyr Hilm-
arsson minnkaði muninn fyrir ÍBV
seint í leiknum.
_ FH lenti í miklum vandræðum
með 3. deildar lið Kára frá Akranesi
en vann 3:0 í Kaplakrika þar sem
Steven Lennon (2) og Björn Daníel
Sverrisson skoruðu í síðari hálfleik.
Morgunblaðið/Eggert
Skoruðu Martin Laursen og Ásgeir Eyþórsson skoruðu mörk Fylkis gegn
ÍBV og fagna hér fyrra markinu sem danski framherjinn skoraði.
Njarðvík og Fylkir
skelltu Keflavík og ÍBV