Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 48

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Verð 2.400.000,- Upplýsingar í síma 898 9479 Delta Euroline 4700 Árg. 2006 – skoðun til 2024 Einstaklega gott og vel skipulagt, létt kojuhýsi með hjónarúmi og sér borðkrók. TIL SÖLU HJÓLHÝSI VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Listahátíð í Reykjavík hefst eftir fá- eina daga, þann. 1. júní, og eru ýmsir góðir gestir væntanlegir til landsins. Þeirra á meðal er Taylor Mac, sann- kölluð stórstjarna í sviðslistaheim- inum sem sló í gegn árið 2016 með sýningu sinni A 24 Decade History of Popular Music. Þar fór Mac yfir sögu Bandaríkjanna frá árinu 1776 til dagsins í dag með því að flytja vinsæl lög frá hinum ýmsu tímum í heilan sólarhring. Mac mun koma fram á Stóra sviði Þjóðleikhússins 1. og 2. júní og mega gestir búast við tveggja tíma kons- ert-útgáfu af þessu sólarhringslanga verki. „Yfirleitt þegar við komum fram einhvers staðar í fyrsta sinn þá þá viljum við kynna verkefnið fyrir fólki á smærri hátt svo þetta sé ekki of yfirþyrmandi. Þegar ég sýni þessa styttri útgáfu af verkinu þá vel ég eitthvert þema sem mér finnst eiga vel við það sem er að gerast í heim- inum í augnablikinu,“ segir Mac í samtali við Morgunblaðið. Sýninguna í heild segir listamað- urinn nokkurs konar fórnarathöfn. „Við fórnum því úr fortíð okkar sem þjónar okkur ekki lengur,“ segir Mac og vísar í ýmsar hörmungar sem eiga sér stað í heiminum í dag; stríð Rússa í Úkraínu, skerðinguna á rétti til fóstureyðinga í Bandaríkjunum, takmörkun á réttindum transfólks þar í landi og ógnina við réttindi sam- kynhneigðra sömuleiðis. „Þannig mér datt í hug að við myndum fórna feðraveldinu, það verður lögmálið sem við miðum okk- ur við. En körlum er svo sannarlega boðið. Þeir eru velkomnir. Við ætlum bara að fórna þessu feðraveldis- hugtaki.“ Gagnkynhneigð ekki sjálfgefin Mac segir sýningu sína vera nokk- urs konar draumkennda og fjöruga bænastund fyrir betri heim og stund- um komi þessi betri heimur í ljós á staðnum. „Við erum ekki bara að kvarta yfir stöðunni í heiminum held- ur í raun og veru að breyta honum hér og nú. Ég er eins og ég er og þetta er líf mitt hér og nú, ekki eins og það gæti orðið. Hluti af því sem ég geri er að taka eitthvað sem fólk telur ekki vera hin- segin og gera það hinsegin. Ég reyni að finna það sem er „hinsegin“ í öllu til þess að sýna að gagnkynhneigð viðmið séu ekki alltaf það sjálfgefna. Það er stór hluti minnar vinnu. En svo er það hin hliðin á þessu. Við er- um ekkert endilega alltaf að gera eitthvað „hinsegin“, við bara erum eins og við erum. Mér finnst óþarfi að setja allt upp í andstæður.“ Mac segist reyna að finna jafn- vægið milli þess að sýna fram á hin- seginleikann í sögu Bandaríkjanna án þess að flokka allt eftir gagnkyn- hneigðum eða hinsegin viðmiðum. Í framhaldi af þessari umræðu um hinseginleika berst talið að því hvernig viðmælandinn vilji láta ávarpa sig. „Ég fagna öllum persónu- fornöfnum, það er mín persónulega nálgun á málið. Kvenleg orka getur falist orði þrátt fyrir að það hafi karl- kyns endingu. En ég kalla alla „hún“. Ég er gamaldags hinsegin. Það er heiður fyrir fólk að vera kallað hún og það fjarlægir eitraða karlmennsk- una. En það eru ekki allir ánægðir með það.“ Persónufornafnið „judy“ Mac hefur þó valið að nota per- sónufornafnið judy sem er vísun í leikkonuna Judy Garland. „Ég er ekki trans en þegar ég stíg á svið og einhver kallar mig „hann“ þá finnst mér það ekki alveg fanga heild- armyndina og það sama má segja um „hún“. Svo ég fann bara upp mitt eig- ið. Það er gjöf og ég segi við fólk: „Notaðu það, eða ekki, það er undir þér komið.“ Það segir meira um manneskjuna sem velur að nota það eða neitar að nota það en um mig. Sumir halda að þetta sé brandari en það er það ekki. Það þýðir samt ekki að þetta sé ekki fyndið. Það felst auðvitað ákveðinn aktívismi í þessu því fólk á það til að ranghvolfa aug- unum yfir fólki sem notar önnur per- sónufornöfn en „hann“ eða „hún“. Svo ég valdi persónufornafn sem gerir það að verkum að þegar þú seg- ir það upphátt, „judy“, og ranghvolfir augunum samtímis þá dregur það strax úr karlmennskunni. Þú verður hommalegur um leið og þú dæmir mig,“ segir Mac, eða judy, og hlær. „Þetta er gáskafull leið að efninu, umræðan um persónufornöfn er svo alvarleg. Ég vil frelsa okkur undan því að þurfa að velja og hafna, þurfa að skilgreina okkur,“ segir judy. „Fólk áttar sig líka ekki endilega á því að fatastíll hefur ekkert með kyn- gervi að gera. Það spyr mig: „Hvern- ig geturðu verið kynsegin ef þú klæð- ist gallabuxum og stuttermabol?“ Hversdags gengur Mac í fötum sem judy kallar karlmannlegt drag, föt- um sem hinum ósköp hversdagslega gagnkynhneigða karlmanni liði lík- lega vel í. „Það er eins og fólk ætlist til að maður klæðist einhverjum bún- ingi sem ætti heima í Star Wars mynd til þess að geta talist hinsegin. Það er svo heimskulegt.“ Mac lagar hverja sýningu að að- stæðum hverju sinni og að því hvern- ig áhorfendahópurinn bregst við. „Ég veit líka ekkert fyrir fram hvað mun gerast í rýminu. Hvert kvöld er einstakt svo ég verð að hlusta á rým- ið og finna hvar listin liggur og elta hana uppi. Ég reyni að benda fólki á hvar dýptina er að finna en það verð- ur sjálft að elta hana uppi.“ Venjulega taka áhorfendur ríkan þátt í sýningunni en Mac hefur að- eins lagað sig að heimsfaraldinum, t.d. eru áhorfendur ekki lengur beðnir að dansa vangadans við ókunnuga. „Þessi sýning hefur alltaf talað inn í samtímann í samtali við söguna, svo hún er síbreytileg. Svona er samtím- inn, við erum að glíma við Covid og við drögum þær hörmungar inn í sýninguna. En ég hef ýmis ráð til þess að fá áhorfendur til að taka þátt með öðrum hætti.“ Íslenskir leynigestir taka þátt Þá lagar Taylor Mac sýninguna að hverjum stað fyrir sig. „Við bjóðum oft listamönnum frá þeim stað sem við erum að heimsækja til þess að taka þátt í sýningunni svo það verða einhverjir leynigestir. Við æfum með þeim kvöldið áður og köstum þeim út í þetta með okkur.“ Þá verða einnig haldnar nokkrar vinnusmiðjur hér á landi þar sem Mac fær tækifæri til þess að ræða við heimamenn. „Mér finnst líka bara gaman að tala við bílstjórann og húsvörðinn. Ég vil tala við alla til þess að átta mig á því hvað er að gerast í borginni, kynnast slúðrinu og áhyggjunum. Ég reyni að grafast fyrir eins mikið og ég get áður en ég fer á svið svo ég geti tekið sögurnar með mér á sviðið. Það er alltaf hluti af gleðinni.“ Mac hvetur fólk til þess að heilsa upp á sig á götum borgarinnar og segja sér frá lífinu á Íslandi. Mac kemur fram með tónlistar- stjóranum Matt Ray og hljómsveit, auk þess sem búningahönnuðurinn Machine Dazzle stígur á svið. Búningar Machine Dazzle spila stórt hlutverk í sýningunni. „Það breytir öllu sem ég geri á sviðinu hvort ég er klæddur í hefðbundið karlmanns-drag eða í eitthvað alveg draumkennt. Búningarnir eru eins og metafórur, ekkert er bókstaflegt. Allt hefur merkingu, ofan á merk- ingu, ofan á merkingu. Þetta er list sem hægt er að klæðast. Það breytir sýn okkar á lögin sem ég flyt og breytir sýn okkar á það hver getur sagt söguna á sviði. Hjörtu fólk opn- ast við þetta án þess að ég viti alveg hvernig. Þetta vinnur samhliða minni eigin list, sem snýst að svo miklu leyti um að vera í rými fullu af fólki og að við veltum fyrir okkur hug- myndum í sameiningu.“ Tónlistin er ekki síður mikilvægur þáttur sýningarinnar. „Það er ekki þannig að hver áhorfandi þekki öll lögin. Við reynum að koma fólki á óvart með einhverju sem það hefur ekki heyrt áður. En við sýnum því líka eitthvað sem það hefur heyrt áð- ur í nýrri umgjörð. Ég er enginn kennari. Ég er bara að minna fólk á það sem það hefur grafið, eða það sem annað fólk hefur grafið fyrir það,“ segir Mac og bætir við að markmiðið sé að afbyggja markvisst það sem sé í deiglunni hverju sinni með aðstoð tónlistar sem hefur skil- greint okkur sem samfélag í gegnum tíðina. Vill stöðugt koma á óvart „Ég vil breyta öllum í salnum, það er eiginlega markmiðið. Eða „breyta“ er kannski ekki rétta orðið. Ég vil opna fyrir pláss í heila þeirra, hjartanu og sálinni fyrir umburðar- lyndi. Ég vil vinna gegn einsleitni og koma fólki á óvart. Það er tækni sem ég nota mikið. Mér finnst að það eigi eitthvað óvænt að gerast á tíu sek- úndna fresti. Það þarf ekki að vera neitt risastórt. Það getur verið eitt- hvað einfalt, til dæmis bara verið að setja tvö orð saman sem þú hefur aldrei séð hlið við hið áður eða að syngja lag sem er venjulega mjög karlmannlegt í háum hælum. Hið óvænta á það til að opna fólk en sjokk hefur oft öfug áhrif. Það er aldrei ætlunin hjá mér að sjokkera með list- inni minni. Það er frekar tilboðið sem er kjarni hennar. Ég býð áhorfend- unum með í þessa upplifun og þetta augnablik, í hvern andardrátt og hverja nótu sem er sungin. Sýningin er í raun röð tilboða til þátttöku en þó laus við alla tilætlunarsemi um að fólk taki boðinu.“ Ljósmynd/Sarah Walker Litadýrð „Það breytir öllu sem ég geri á sviðinu hvort ég er klæddur í hefðbundið karlmanns-drag eða í eitthvað alveg draumkennt,“ segir Taylor Mac sem fram kemur á Listahátíð í Reykjavík. Ljósmynd/Vess Pitts Fjörug bænastund fyrir betri heim - Stórstjarna í sviðslistaheiminum sækir Ísland heim - Taylor Mac endursegir sögu Bandaríkjanna með tónlist og drag að vopni - Vill opna hjörtu áhorfenda og vinna gegn einsleitni í samfélaginu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.