Morgunblaðið - 26.05.2022, Qupperneq 56
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
PÓSTLISTASKRÁNING
Viltu skrá þig á póstlista?
Skannaðu QR kóðann.
FREGAT
Hægindastóll.
Hvítolíuborin eik og leður.
67.997 kr.
169.990 kr.
BERMUDA
Útisófasett með borði. 210x210x80 cm.
Hægt að raða á marga vegu.
98.995 kr. 179.990 kr.
AFSLÁTTUR
45%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
60%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
30%
ÚTSALA
ÚTSALA
HEFST Á MORGUN
SUMAR
CLEVELAND
Hornsófi. Hægri eða vinstri. Ljósgrátt eða dökkgrátt áklæði.
308 x 203 x 81 cm.
139.993 kr. 199.990 kr.
Lokatónleikar Tónlistarnæringar þetta misserið, hádeg-
istónleikar í sal Tónlistarskóla Garðabæjar, fara fram í
dag kl. 12.15. Á þeim kemur fram heiðursviðurkenning-
arhafi Garðabæjar, Jósef Ognibene hornleikari, og leik-
ur verk eftir Mozart og Haydn. Með honum leika Júlíana
Elín Kjartansdóttir á fiðlu, Hildigunnur Halldórsdóttir á
fiðlu og víólu, Guðrún Þórarinsdóttir á víólu og Sig-
urður Halldórsson á selló. Á efnisskránni eru Kvintett
KV 407 eftir Mozart, Rómansa eftir Michael Haydn og
Finale úr hornkonsert KV 447 eftir Mozart. Aðgangur er
ókeypis að venju og menningar- og safnanefnd Garða-
bæjar kostar tónleikaröðina, sem haldin er í samstarfi
við Tónlistarskóla Garðabæjar. Listrænn stjórnandi
hennar er Ólöf Breiðfjörð.
Nærandi verk Mozarts og Haydns
sterk, eins og heyra má í fyrsta lag-
inu, og hún þroskaðist jafnt og þétt.
Upptökurnar með aríum Wagners
bera þess augljós merki. „Wagner er
annar heimur og mjög erfiður enda
geta aðeins örfáir íslenskir tenórar
sungið í óperum hans,“ segir Hreinn.
„Má hiklaust skipa honum í flokk
með okkar bestu söngvurum,“ skrif-
aði Jón Ásgeirsson um Hrein í
Morgunblaðið 22. júlí 1975.
Mannúðarstörf í áratugi
Söngurinn hefur alla tíð haft for-
gang hjá Hreini og hann hefur kennt
söng, bæði hérlendis sem erlendis,
en frítímanum hefur hann fyrst og
fremst varið í mannúðarstörf. Sér-
staklega hefur hann sinnt börnum,
söng til dæmis mikið á styrktar-
samkomum Rauða krossins á Róm-
arárunum og vann sem sjálfboðaliði
á barnasjúkrahúsi í New York í 17 ár
auk þess sem hann var fulltrúi
Mölturiddara hjá Sameinuðu þjóð-
unum í 15 ár. „Ég hef alltaf reynt að
láta gott af mér leiða og sinna þeim
sem minna mega sín.“
Hreinn bjó og söng á Ítalíu í tæp
12 ár, söng í óperunni í Vín í Austur-
ríki í rúm þrjú ár, var í Lundúnum
um tíma og í um þrjá áratugi í
Bandaríkjunum, en flutti alkominn
til Íslands fyrir um átta árum. „Á
listasviðinu eru margar hálar brautir
en ég komst í gegnum þær allar.“
Hann segir að það hafi komið sér á
óvart hvað Ríkisútvarpið hafi átt
margar upptökur með sér og hann
hafi valið þær bestu á diskana, en út-
gáfan fæst hjá Pennanum-
Eymundssyni og 12 Tónum. „Ég
vildi varðveita efnið, forða því frá
glötun og um leið gefa landsmönnum
tækifæri til þess að kynnast mér og
heyra hvað ég gerði á ferlinum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tenórinn Hreinn Líndal hefur sent
frá sér tveggja diska safn, Ég lít í
anda liðna tíð, upptökur frá 1959 til
1993, sem Bjarni Rúnar Bjarnason
vann upp úr gömlum segulbands-
spólum í eigu Ríkisútvarpsins fyrir
utan þá síðustu, sem var hljóðrituð í
New York. Á öðrum disknum eru ís-
lensk og erlend sönglög en óperu-
aríur á hinum. Bæklingur, þar sem
stiklað er á
stóru um
merkilegan
söngferil
Hreins, fylgir
með, en Einar
Geir Ingvars-
son hannaði
umslagið. Ólafur Vignir Albertsson
leikur undir á píanó í öllum lögunum
nema einu, þar sem Fritz Weiss-
happel spilar, og í aríum 1 - 3, en Le-
vering Rothfuss er undirleikari í arí-
um Wagners.
Hreinn ólst upp í Keflavík og þeg-
ar hann var 17 ára byrjaði hann að
syngja með þá nýstofnuðum Karla-
kór Keflavíkur. „Það var Guðs gjöf
að ég hafði þessa rödd,“ segir hann
um ferilinn og söngáhugann, sem
kviknaði snemma og varð að ástríðu
eftir að hann fór í mútur. Hann var
langyngstur í kórnum og rifjar upp
að kórmenn hafi allir verið í kjólföt-
um. „Ég var svo grannur, algjör
rindill, og því erfitt að fá á mig kjól-
föt, það var eins og að klæða síma-
staur,“ segir söngvarinn sem lítur út
eins og breskur aðalsmaður, fagur-
keri út í ystu æsar.
María Markan óperusöngvari bjó
einnig í Keflavík og reyndist Hreini
ómetanleg, byggði traustan grunn,
svo eftir var tekið og fyrsta upptaka
með honum var gerð þegar hann var
22 ára 1959. „Hún var frábær kenn-
ari og var ekki sátt, þegar ég fór í
nám til Rómar, vildi hafa mig leng-
ur.“ Fyrsti kennari hans í Róm sagði
enda að hann væri með óslípaðan
demant í höndum. „„Það verður erf-
itt að kenna þér, því þú ert með
náttúrurödd. Þær eru alltaf svo
varasamar og geta orðið fyrir
skemmdum ef ekki er farið rétt að,“
sagði hann við mig.“
Rödd Hreins var strax björt og
Röddin Guðs gjöf
- Tveggja diska safn frá tenórnum Hreini Líndal
Fagmaður Tenórinn Hreinn Líndal er vandaður til orðs og æðis.
FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 146. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Hinn nítján ára gamli Hákon Arnar Haraldsson, sem
hefur slegið í gegn með Danmerkurmeisturum FC
Köbenhavn síðustu vikur, er í íslenska A-landsliðs-
hópnum í knattspyrnu í fyrsta skipti. Arnar Þór Viðars-
son valdi í gær 25 leikmenn fyrir fjóra landsleiki sem
fara fram dagana 2. til 13. júní. »46
Hákon í A-landsliðið í fyrsta skipti
ÍÞRÓTTIR MENNING