Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 4. J Ú L Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 163. tölublað . 110. árgangur .
14.-17. júlí
Sigraðu
innkaupin
RÁÐHERRANN
GERÐIST
SKIPSTJÓRI
BÓK UM MÓT-
ANDI ÁRATUG
Í HNÍFSDAL
ELLEFU VIKNA
HÁTÍÐ Í HJARTA
HAFNARFJARÐAR
SARAH THOMAS 50 BÓ SETTI VEISLUNA 6KRISTJÁN ÞÓR 10
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Björn Zoëga, forstjóri Karolinska
sjúkrahússins í Svíþjóð, sem í gær
var skipaður stjórnarformaður
Landspítalans, segir að fækka þurfi
stjórnlögum á spítalanum og ein-
falda hlutina. „Eins og vill oft verða
á svona stofnunum, og ég kannast
við það frá öðrum sjúkrahúsum líka,
erum við komin með of margt fólk
sem er ekki að vinna við það að
þjónusta sjúklinga. Fjöldi þeirra
hefur aukist meira en þeirra sem
vinna í beinu
sambandi við
sjúklinga, og það
gengur ekki upp
til lengri tíma.
Það þarf ákveðið
jafnvægi í því.
Við þurfum að
fækka stjórnlög-
um og einfalda
hlutina.“
Hann segir að
ekki hafi náðst að þróa spítalann og
rekstur hans nægilega vel. Gera
þurfi betur ef ætlunin er að reka nú-
tíma háskólasjúkrahús. „Ég hef þó
trú á því að það sé hægt að gera og í
nýrri stjórn situr öflugt fólk sem
getur aðstoðað nýjan forstjóra við
að breyta því sem þarf að breyta.“
– Og hvað er það helst?
„Fljótt á litið þarf að einfalda
stjórnskipulagið,“ svarar Björn að
bragði.
Hann segir jafnframt að rekst-
urinn snúist í grunninn um að
sjúkrahús fái greitt fyrir þá þjón-
ustu sem þau veita. Það megi kalla
framleiðslutengda eða þjónustu-
tengda fjármögnun. »18
Stjórnlögum fækki
- Of margt fólk sem ekki vinnur við að þjónusta sjúklinga
Björn
Zoëga
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Ítalíu í öðrum
leik sínum í D-riðli Evrópumótsins á akademíuvelli Manchest-
er City í Manchester á Englandi í dag. Íslenska liðið þarf á
sigri að halda til þess að auka möguleika sína á sæti í átta liða
úrslitum keppninnar og því mikið undir hjá íslenska liðinu.
Þrátt fyrir það var frábær stemning að vanda á æfingu gær-
dagsins í Crewe þar sem Sveindís Jane Jónsdóttir, besti leik-
maður Íslands gegn Belgíu á sunnudaginn, lék listir sínar með
bros á vör við mikinn fögnuð liðsfélaga sinna. »46-47
Morgunblaðið/Eggert
Það er allt undir í Manchester í dag þegar Ísland og Ítalía mætast
Munnkvillar aldraðra eru algengir á
hjúkrunarheimilum og gera þarf
breytingar á heilbrigðisþjónustu
vegna þess, að því er segir í grein í
Læknablaðinu.
Rannsókn sem var gerð á tveimur
hjúkrunarheimilum í Reykjavík sýndi
að hátt hlutfall íbúa (67%) var með
ómeðhöndlaða munnkvilla. Íbúar
með verstu munnheilsuna upplifðu að
hún hefði marktækt neikvæðari áhrif
á lífsgæði, færniskerðingu og lík-
amleg óþægindi en þeir sem voru bet-
ur tenntir í rannsókninni. „Samstillt
átak opinberra aðila og heilbrigðis-
starfsfólks þarf til
að tryggja úrræði
við hæfi á hjúkr-
unarheimilum
þegar kemur að
því að viðhalda
einstaklingsbund-
inni munnheilsu
íbúa og tengdum
lífsgæðum ævina
á enda,“ segir í greininni.
Samtök fyrirtækja í velferðar-
þjónustu hvetja heilbrigðisyfirvöld til
að styðja hjúkrunarheimilin í að veita
þessa þjónustu. »4
Munnkvillar algengir
á hjúkrunarheimilum