Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
Sýningareldhús - Draghálsi 4 - 110 Reykjavík - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is Netverslun á www.verslun.is
...hillukerfi
Vínkælar
WFG 185 - St. (hxbxd)
1850x595 x596 mm (+2 - +10°C)
WFG 155 - St. (hxbxd)
1550 x 595 x610 (+5 - +22°C)
WFG 45 - Stærð (hxbxd) 820 x595 x573
(+5 - +10 /+10 - +18°C)
T
a
k
ti
k
5
6
9
2
#
Mikil eftirspurn er eftir gistingu á
hótelum út um land þessa dagana,
enda hásumar og margir á ferð. Leit
á booking.com sýnir að sum hótel eru
fullsetin og engin herbergi þar laus sé
spurt um gistingu fyrir tvo um næstu
helgi. Á Vestur- og Norðurlandi eru
um 80% allra hót-
elherbergja sem í
boði eru bókuð
um næstu helgi og
á Austurlandi var
þetta hlutfall síð-
degis í gær komið
í rúmlega 90%.
Bekkurinn er
sömuleiðis þétt
setinn á Suður-
landi. Nærri læt-
ur að nú sé búið að
selja í fjögur af hverjum fimm gisti-
rúmum á hótelum þar. Sums staðar
er þetta hlutfall hærra, svo sem við
Laugarvatn, Flúðir og víðar í upp-
sveitum Árnessýslu. Sömu sögu er að
segja úr Rangárþingi og Vestmanna-
eyjum.
Erlendir ferðamenn skila sér
Á landsvísu sést stundum á íburð-
arlitlum hótelum að óseld eru 1-2 her-
bergi. Algengt verð fyrir tvo á slíkum
gististöðum eru 30 til 50 þús. kr.
„Bókunarstaðan er mjög góð. Slíkt
gildir um landið allt skilst mér,“ segir
Arnheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu Norður-
lands. „Ofmælt er að Ísland sé upp-
selt en greinilegt er að erlendir
ferðamenn eru að skila sér aftur til
landsins, nú að faraldri loknum. Við
búumst við því að halda góðum bók-
unartölum fram í október. Vegna
þessa er erfitt fyrir fólk að fá gistingu
á síðustu stundu og því hætt við að Ís-
lendingar á ferðalögum geti lent í
vanda. Samt veit ég að einhver hreyf-
ing er á bókunum, til dæmis vegna co-
vid, og þá geta lausar nætur dottið
inn með skömmum fyrirvara.“
sbs@mbl.is
Hótelin þétt setin
- Ísland nánast uppselt - Nýting oft
90% - Mikið er bókað fram í október
Arnheiður
Jóhannsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Norðurland Sumarhótelið í heima-
vist Menntaskólans á Akureyri.
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Mikill hljómgrunnur virðist fyrir
því meðal margra sveitarstjórnar-
manna að breyta aðferðafræðinni
við ákvörðun fasteignagjalda frá því
sem nú er. Þetta er mat Svanhildar
Hólm Valsdóttur, framkvæmda-
stjóra Viðskiptaráðs, og Ólafs
Stephensen, framkvæmdastjóra Fé-
lags atvinnurekenda (FA). Þau eru
gestir Dagmála í dag. Samtökin
sem þau fara fyrir hafa kallað eftir
því lengi að innheimt fasteignagjöld
fylgi ekki óheft þeim miklu hækk-
unum sem orðið hafa á álögðu fast-
eignamati síðustu ár.
Hefur FA meðal annars vakið at-
hygli á að grófir útreikningar bendi
til þess að fasteignagjöld á atvinnu-
húsnæði muni hækka um 3 millj-
arða króna vegna nýs fasteignamats
sem gilda mun fyrir árið 2023. Ólaf-
ur Stephensen segir að þarna sé um
mjög íþyngjandi gjaldtöku að ræða
sem auk þess ýti undir víxlverkun.
Þannig þurfi t.d. fasteignafélög að
hækka leigugjald vegna hækkandi
fasteignagjalda, en nýtt fast-
eignamat muni m.a. taka mið af
hækkandi húsaleigu.
Svanhildur Hólm bendir einnig á
að fasteignagjöld hafi á síðustu ár-
um tekið að vega þyngra í kostn-
aðarhlutfalli margra leigufélaga.
Það sé til marks um að þau séu ekki
að veita hækkununum beint út í
verðlagið, en það hljóti þó að gerast
með einum eða öðrum hætti. Sveit-
arfélög á borð við Kópavog, Mos-
fellsbæ og Hafnarfjörð hafa lýst því
yfir að þau hyggist taka álagning-
arprósentu fasteignagjalda til skoð-
unar til þess að draga úr því höggi
sem eigendur fasteigna verði fyrir
vegna hækkunar fasteignamatsins.
Ólafur bendir á að það sé þó baga-
legt að Reykjavíkurborg hyggist
ekki endurskoða þessi mál fyrr en
undir lok kjörtímabilsins. Um helm-
ingur fasteignagjalda af atvinnu-
húsnæði fellur í hlut höfuðborg-
arinnar.
Svanhildur og Ólafur segja löngu
tímabært að endurskoða kerfið í
kringum innheimtu fasteignagjalda
og að þar megi m.a. líta til þess
hvernig þessum málum er háttað
annars staðar á Norðurlöndum.
Gjöld Svanhildur og Ólafur segja bagalegt að fyrirtæki þurfi að taka á sig
mikla hækkun fasteignagjalda, óháð því hvort betur eða verr ári í rekstri.
Fasteignagjöldin
eins og eilífðarvél
- Álagningin ýtir undir verðbólgu
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Mikið hefur gengið á um helgar í
Hafnarfirði í sumar en þar stendur
yfir tónlistarhátíðin Hjarta Hafnar-
fjarðar í Bæjarbíói, sem í ár er ellefu
vikna löng.
Bæði má finna tónleika inni í
bíóinu sjálfu og á útisvæði sem opið
er öllum frítt. „Við erum með dag-
skrá fimmtudag, föstudag og laug-
ardag,“ segir Páll Eyjólfsson – Palli,
framkvæmdastjóri Bæjarbíós.
„Júlladiskó var á fimmtudaginn,
Stuðmenn voru á föstudaginn og svo
var Poppvélin á laugardaginn,“ segir
Palli hreykinn en þá skortir ekki
bjórinn. „Við erum með 52 dælur og
notum helminginn af þeim. Bjóðum
upp á tíu tegundir af bjór.“ Þá tekur
útisvæðið við 300 manns sitjandi.
Í kvöld hefst síðan ný helgardag-
skrá þar sem Bríet verður með tón-
leika inni á meðan Siggi Hlö þeytir
skífum úti. Á morgun, föstudag,
heldur síðan Björn Jörundur lang-
þráða tónleika. „Þetta eru fimm-
tugsafmælistónleikarnir hans þótt
hann sé orðinn fimmtíu og eins árs.“
Tónleikarnir heita 15 – 51 sem vísar
til þess aldurs þegar hann byrjaði að
semja. „Fram á nótt og Hjálpaðu
mér upp. Það eru fyrstu lögin sem
Björn Jörundur semur. Fimmtán
ára kvikindi. Þetta eru svo þrosk-
aðar lagasmíðar,“ segir Palli og hlær
en annað kvöld spilar Á móti sól úti
og á laugardag verður Papaball.
Vanalega byrja tónleikarnir inni
klukkan 20 og dagskráin úti um
klukkutíma síðar. Gestirnir inni geta
því vel tekið þátt úti ef þeir vilja í
hléinu og eftir tónleikana. Hátíðin
hófst 13. maí og í júní var kántrí-
hátíð. Henni lýkur síðan í þarnæstu
viku með upphitun fyrir versl-
unarmannahelgina.
Ellefu vikna hátíð í
hjarta Hafnarfjarðar
- Lýkur með
upphitun fyrir
Þjóðhátíð í Eyjum
Morgunblaðið/Kristján Johannessen
Sungið Jónas Sig tróð upp inni í bíóinu sjálfu um síðustu helgi en Bó setti tón-
leikaveisluna líkt og síðustu ár. Tónleikagestir geta einnig skemmt sér úti.
Fjör „Við erum með 52 dælur og notum helminginn af þeim. Bjóðum upp á
tíu tegundir af bjór,“ segir Palli en útisvæðið tekur 300 manns sitjandi.
Spjallað Opið er á útisvæðinu frá kl. 18 til 23 fimmtudag til laugardags. Hér
glittir í tjaldið þar sem dagskráin fer fram en einnig er hægt að njóta úti.