Morgunblaðið - 14.07.2022, Side 9

Morgunblaðið - 14.07.2022, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Lokafrestur til að skila ársreikningi rennur út 31. ágúst 2022 Skila ber ársreikningi eigi síðar enmánuði eftir að reikningurinn var samþykktur á aðalfundi félags, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Sérstök athygli er vakin á því að skili félag ársreikningi síðar enmánuði eftir aðalfund verður félagið sektað. Á vefnum skatturinn.is/fyrirtaekjaskramá sjá hvort að ársreikningi hafi verið skilað. Örfélög geta nýtt sér hnappinn og látið Skattinn útbúa ársreikning félagsins að því tilskyldu að þau hafi skilað skattframtali. Ekki er heimilt að staðfesta hefðbundin ársreikning á aðalfundi félags en senda svo inn hnappsreikning í stað þess reiknings sem staðfestur var á aðalfundi. Senda skal inn til opinberrar birtingar þann ársreikning sem staðfestur var á aðalfundi viðkomandi félags. Ekki er heimilt að breyta eða fella niður neinar upplýsingar í þeim ársreikningi sem sendur er inn til opinberrar birtingar. Sekt vegna vanskila nemur 600.000 kr. 442 1000 Upplýsingaver er opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00fyrirtaekjaskra@skatturinn.is Undanfarið hafa staðið yfir fram- kvæmdir á Sæbrautinni og hafa veg- farendur eflaust orðið varir við þær, enda hefur á stundum þurft að tak- marka umferð um svæðið. Unnið er að því að lengja vinstri- beygju akrein á Sæbraut inn á Skeiðarvog úr 90 metrum í 180 metra í þeim tilgangi að bæta um- ferðaröryggi og umferðarflæði á þessum slóðum. Á álagstímum hafa myndast þarna stíflur. Núverandi beygjuakrein hefur verið lokað að hluta vegna þessara framkvæmda. Nokkrir ljósastaurar hafa verið teknir niður vegna framkvæmdanna en þeir verða settir upp aftur í lok verks. Þá verður rafmagnsskápur færður og settir upp skynjarar fyrir umferðarljós. Búast má við lítils háttar töfum meðan á framkvæmdum stendur. Mikill umferðarþungi er á þessu svæði og eru vegfarendur beðnir um að sýna tillitssemi, segir Vegagerð- in. Ljúka á verkinu fyrir lok júlí. D.Ing verk ehf. er verktaki við fram- kvæmdirnar. sisi@mbl.is Beygjuakrein lengd til að liðka fyrir umferð Ljósmynd/Vegagerðin Sæbraut Vinstribeygjuakrein inn á Skeiðarvog verður lengd úr 90 í 180 metra til að liðka fyrir umferð um götuna. Loftbrú hefur verið notuð til nið- urgreiðslu á yfir 100 þúsund flug- leggjum á þeim tæpu tveim árum sem hún hefur verið aðgengileg. Það sem af er árinu 2022 hafa 50% fleiri flugferðir verið pantaðar í gegnum Loftbú í samanburði við allt árið 2021. Fram kemur á vef Vegagerðar- innar að konur séu meirihluti not- enda Loftbrúar eða 56%, og eru al- mennt með ríkjandi meirihluta í öllum aldursflokkum. Fjölmennasti hópur notenda er á aldrinum 20-24 ára, eða um 9%. Loftbrú var hleypt af stokkunum 9. september 2020 með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjón- ustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæm- ari samgöngukosti. Loftbrú veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands. Rúmlega 60 þúsund íbúar eru með réttindi á Loftbrú en hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að sex flug- leggi til og frá Reykjavík á ári. Vegagerðin hefur umsjón með Loftbrú fyrir hönd ríkisins og sinn- ir öllu eftirliti og umsýslu henni tengdri. sisi@mbl.is Yfir 100 þúsund ferðir niðurgreiddar í Loftbrú frá upphafi Morgunblaðið/Hari Rósa Guðbjarts- dóttir, bæjar- stjóri í Hafnar- firði, hefur ákveðið að gefa kost á sér til for- mennsku í stjórn Sambands ís- lenskra sveitar- félaga í komandi formannskjöri í ágúst nk. Þá mun Aldís Hafsteinsdóttir láta af for- mennsku. Rósa hefur verið bæjarstjóri í Hafnarfirði undanfarin fjögur ár og verið bæjarfulltrúi frá árinu 2006, þar af m.a. formaður bæjar- ráðs. Þá var hún einnig formaður stjórnar SSH, Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu, árin 2018-2020 auk þess sem hún hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sveitarstjórnarstiginu. „Tel ég að reynsla mín og fyrri störf komi að góðum notum innan stjórnar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og fyrir þá mikilvægu starfsemi sem fram fer á sameiginlegum vett- vangi sveitarfélaga,“ segir Rósa m.a. í yfirlýsingu sinni. Rósa býðst til að taka við af Aldísi Rósa Guðbjartsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.