Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Útsalan
er hafin
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Lítið er eftir að þeim aflaheimildum
sem ætlaðar eru strandveiðum í ár
þrátt fyrir að heimildir sem veið-
unum er ráðstafað hafi aldrei verið
meiri og þær hafi aldrei verið
stærra hlutfall af vísindalega ráð-
lagðri hámarksveiði. Strandveiðin
hefur ekki þurft að sæta skerðing-
um vegna minnkandi ráðgjafar Haf-
rannsóknastofnunar eins og aðrir
útgerðaraðilar. Þrátt fyrir það er
aukins kvóta krafist. Þó er ekki vit-
að hvaðan þessar aflaheimildir eiga
að koma.
Alls hafa 702 bátar tekið þátt í
strandveiðunum í ár og er það
mesta þátttaka síðan 2010 þegar 741
bátur tók þátt, en það ár var veið-
unum aðeins ráðstafað um 5 þúsund
tonnum af þorski. Gott afurðaverð
er talið meginástæða þess að þátt-
takan er eins mikil og raun ber vitni.
24 róðrar eftir í maí
Í ár var gert ráð fyrir að strand-
veiðibátarnir fengju að veiða 10 þús-
und tonn af þorski, tvöfalt meira en
árið 2010. Fljótt varð þó ljóst að
þessi afli myndi seint duga til þess
að allir bátar myndu ná að róa þá 12
daga sem heimilt er að veiða hvern
mánuð á tímabilinu; maí, júní, júlí og
ágúst. Fjallaði Morgunblaðið um
það í lok maí að miðað við þátttöku
og aflabrögð væri hver bátur með að
hámarki 24 róðra eftir.
Þá felst einnig vandi í að margir
velji að róa frá Vestfjörðum þar sem
verðmætasti þorskurinn er frá upp-
hafi tímabilsins, en hann kemur síð-
ar á önnur svæði og dreifist því ekki
ágóði veiðanna um landið. Hafa
strandveiðisjómenn á Norðaustur-
landi, Austurlandi og Suðaustur-
landi bent á galla þessa fyrirkomu-
lags þar sem þeir geta ekki veitt til
jafns við aðra áður en strandveiði-
potturinn klárast.
Dugar skammt
Svandís Svavarsdóttir matvæla-
ráðherra tilkynnti 7. júlí síðastliðinn
að aflaheimildum fyrir 1.074 tonn af
þorski yrði bætt við strandveiðipott-
inn.
Bæði Strandveiðifélag Íslands og
Landssamband smábátaeigenda
(LS) fögnuðu viðbótinni en þeim
þótti ljóst að þúsund tonn myndu
ekki duga til að tryggja veiðar allra
báta út ágústmánuð. Hefur til að
mynda Strandveiðifélagið lagt til að
bæta eigi við um 3.000 tonnum með
því að skerða byggðakvóta næsta
fiskveiðiárs sem ekki fer til dag-
róðrabáta, sem og rækju- og skel-
bætur fiskveiðiársins sem hefst 1.
september. Fátt bendir þó til þess
að slíkar tillögur nái fram að ganga
þar sem veiði þessa fiskveiðiárs
myndi þá vera komin yfir vísinda-
lega ráðlagða hámarksveiði.
Hagsmunafélögin tvö hafa talið
mikilvægt að tryggja hverjum bát
48 veiðidaga til að leysa ágalla kerf-
isins, en miðað við meðalafla í þorski
á yfirstandandi tímabili myndi það
þýða að veiðarnar á næsta fiskveiði-
ári þyrftu heimild til að veiða yfir 21
þúsund tonn af þorski ef þátttakan
yrði sú sama og nú. Enn meiri ef
þátttakan er meiri. Hvaðan á að
taka 10 þúsund tonna veiðiheimildir
umfram það sem veitt hefur verið í
ár er ekki vitað.
Áhrif á fiskistofna
Svandís hefur talið fyrirkomulag
strandveiðanna misheppnað og mun
leggja fyrir Alþingi fumvarp um
endurupptöku svæðisskiptingar
strandveiða til að tryggja að tak-
mörkuðum afla sé dreift með sann-
gjarnari hætti um landið.
Hagsmunaaðilar og stjórnmála-
menn hafa gagnrýnt tillöguna og
telja að auka megi strandveiðar
utan ráðgjafar Hafrannsóknastofn-
unar án þess að það hafi áhrif á
þorskstofninn. Slíkum fullyrðingum
hefur Hafrannsóknastofnun vísað á
bug með afdráttarlausum hætti.
48 strandveiðidagar
þyrftu 21 þúsund tonn
- Tæplega 11% af þorskafla fiskveiðiársins 2022/2023
Þorskafli strandveiðibáta
Hugsanlegur afli
verði veittir 48 dagar 2023
Þorskafli það sem af er
strandveiðitímabili 2022
Heimild: Fiskistofa
Þorskafli, tonn 8.805
Róðrar 13.541
Meðal þorskafli í róðri, kg 650
Fjöldi báta á strandveiðum 702
Dagar sem krafist er
að hver bátur fái
48
Róðrar með sömu þátttöku
og 2022
33.696
Heildar þorskafli veiðanna, tonn 21.911
Ráðlagt aflamark í þorski
2022/2023, tonn
208.846
Hlutdeild strandveiða
í ráðlögðu heildaraflamarki
10,49%
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Alls hefur markaðsvirði hluta lífeyr-
issjóða í Síldarvinnslunni hf. aukist
um 13,4 milljarða króna á síðast-
liðnum 12 mánuðum eða 61%. Sjö
lífeyrissjóðir fara samanlagt með
tæplega fimmtungshlut í sjávar-
útvegsfyrirtækinu og hafa því þús-
undir sjóðsfélaga hagnast á útgáfu
óvenjumikils loðnukvóta og kaupum
á Vísi hf. í Grindavík. Virði hluta líf-
eyrissjóðanna í Síldarvinnslunni er
nú rúmlega 35 milljarðar króna.
Þann 12. júlí 2021 var gengi bréfa
Síldarvinnslunnar 65,1 króna á hlut
en á þriðjudag var gengi bréfanna
við lokun markaða 105 krónur á
hlut. Mikil hækkun á gengi bréf-
anna fór af stað undir lok sept-
ember í fyrra þegar fóru að berast
fréttir af því að loðnuvertíðin yrði
óvenjustór og hélt hækkunarskeiðið
áfram eftir að tilkynnt var um
mesta loðnukvóta í tvo áratugi í
byrjun október. Þá átti sér einnig
stað mikil hækkun á gengi bréfanna
í kjölfar þess að Síldarvinnslan til-
kynnti á sunnudag kaup á Vísi í
Grindavík.
Sjö milljarðar til Gildis
Sjóðurinn sem fer með stærsta
hlutinn í Síldarvinnslunni er Gildi og
er hann með 10,21% að verðmæti
18,2 milljarðar króna samkvæmt
markaðsvirði við lokun markaða á
þriðjudag. Alls hefur gengishækk-
unin skilað Gildi tæplega sjö millj-
örðum króna.
Þá er Stapi með 2,97% hlut á 5,3
milljarða, Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna með 1,94% á tæpa 3,5
milljarða, Festa með 1,46% á 2,6
milljarða, Almenni lífeyrissjóðurinn
1,4% á 2,5 milljarða, Brú með 1,17%
á rétt rúma 2 milljarða og Lífeyris-
sjóður Vestmannaeyja með 0,61% á
milljarð.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gengi Eignarhlutur lífeyrissjóða í Síldarvinnslunni hefur hækkað í virði.
Hafa grætt 13,4
milljarða á SVN
- Lífeyrissjóðir eiga 20% í félaginu
Meirihluti hluthafa í eignarhalds-
félaginu Arctic Fish Holding, sem
fer með alla hluti í fiskeldisfyrirtæk-
inu Arctic Fish á Vestfjörðum, hefur
lagt til að Gunn-
þór Ingvason,
framkvæmda-
stjóri Síldar-
vinnslunnar hf.,
verði kjörinn í
stjórn félagsins á
aðalfundi þess
sem fram fer 18.
júlí næstkom-
andi. Þetta kem-
ur fram í tilkynn-
ingu Arctic Fish
Holding til norsku kauphallarinnar í
dag.
Síldarvinnslan tilkynnti í síðasta
mánuði að félagið hefði fest kaup á
34,2% hlut í Arctic Fish Holding fyr-
ir um 13,7 milljarða íslenskra króna.
Auk Gunnþórs er lagt til að Svein
Sivertsen haldi áfram sem stjórnar-
formaður og að í stjórn verði kjörin
þau Charles Høstlund, Hildur Árna-
dóttir og Bjørn Kleven.
Arctic Fish er með mikil áform
um uppbyggingu í Bolungarvík og er
stefnt að því að opna stækkað laxa-
sláturhús með 25 þúsund tonna slát-
urgetu á næsta ári. gso@mbl.is
Gunnþór
í stjórn
Arctic Fish
Gunnþór
Ingvason
Afurðaverð á markaði
13. júlí,meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 455,90
Þorskur, slægður 476,74
Ýsa, óslægð 555,52
Ýsa, slægð 425,87
Ufsi, óslægður 191,53
Ufsi, slægður 185,91
Gullkarfi 442,57
Blálanga, slægð 165,00
Langa, óslægð 357,52
Langa, slægð 318,73
Keila, óslægð 181,00
Keila, slægð 190,00
Steinbítur, óslægður 33,00
Steinbítur, slægður 229,71
Skötuselur, slægður 815,76
Skarkoli, slægður 606,00
Þykkvalúra, slægð 507,84
Sandkoli, óslægður 157,54
Sandkoli, slægður 145,00
Lúða, slægð 614,65
Lýsa, óslægð 112,25
Lýsa, slægð 117,00
Maríuskata, slægð 31,00
Skata, slægð 14,00
Stórkjafta, slægð 110,00
Undirmálsþorskur, óslægður 265,00
Undirmálsþorskur, slægður 209,00