Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
SPORTÍS SKE I FAN 1 1
1 08 REYKJAV ÍK
S POR T I S . I S
520-1000
- VELDU HOKA UTANVEGASKÓ FYRIR ÆVINTÝRI SUMARSINS -
HOKA FÆR FRÁBÆRA DÓMA FRÁ RUNNERS WORLD MAGAZINE!
SVÍFÐU YFIR JÖRÐINA!
Mótmælendur brutust inn í forsæt-
isráðuneyti Srí Lanka í gær, degi
eftir að forsetinn Gotabaya Raja-
paksa flúði land. Ókyrrð hefur farið
sívaxandi á Srí Lanka síðustu mán-
uði og lýsti Ranil Wickremesinghe
forsætisráðherra yfir neyðarástandi
í beinni sjónvarpsútsendingu. Sagði
hann að „fasistar“ væru að reyna að
ná völdum í landinu og að herinn
hefði fengið þau fyrirmæli að „gera
allt sem í þeirra valdi stendur til
þess að koma reglu á samfélagið“.
Einungis nokkrum klukkustundum
áður en brotist var inn í forsætis-
ráðuneytið var Wickremesinghe
skipaður forseti ríkisins til bráða-
birgða.
Flúði til Maldíveyja
Öryggisverðir gáfust upp fljótlega
eftir að brotist var inn í ráðuneytið
en það er fjórða stjórnarráðs-
byggingin sem mótmælendur hafa
brotist inn í á fjórum dögum. Mikil
óánægja hefur ríkt meðal almenn-
ings um stjórnarhætti ríkisins en
efnahagsástandið er hið versta frá
því að landið fékk sjálfstæði árið
1948. Gjaldeyrisskortur ríkissjóðs
veldur því að eldsneyti er af skorn-
um skammti og skortur á innfluttum
matvælum og lyfjum. Margir kenna
Rajapaksa, fyrrverandi forseta, um
ástandið og segja hann vera þjóf.
Hann flúði til Maldíveyja ásamt eig-
inkonu sinni og tveimur lífvörðum á
mánudag en þar hafa einnig brotist
út mótmæli þar sem stjórn ríkisins
er hvött til að veita Rajapaksa ekki
hæli. Stjórnvöld á Srí Lanka kenna
hins vegar ytri aðstæðum um efna-
hagshrunið, svo sem heimsfaraldr-
inum. urdur@mbl.is
AFP
Óeirðir Forsætisráðuneytið í
Colombo, höfuðborg Srí Lanka.
Brutust inn í for-
sætisráðuneytið
- Sívaxandi ókyrrð á Srí Lanka
Norskur dómstóll
hefur úrskurðað
að Zaniar Ma-
tapour verði vist-
aður á geðdeild
þar sem ástand
hans verði metið.
Hann er grun-
aður um að hafa
orðið tveimur að
bana og sært 21
er hann hóf skotárás á hinsegin bar
í miðborg Óslóar.
Matapour var handtekinn
skömmu eftir að árásin var gerð 25.
júní en hann veitti ekki samþykki
fyrir því að gangast undir andlegt
mat á geðdeild. Með úrskurðinum í
gær fá sérfræðingar aftur á móti
leyfi til að meta andlegt ástand
hans. Matið getur tekið allt að átta
vikur og fer fram á Haukeland-
háskólasjúkrahúsinu í Bergen. Í úr-
skurðinum kom fram að Matapour
hefur áður verið greindur með geð-
klofa.
NOREGUR
Meta andlegt
ástand árásarmanns
Zaniar Matapour
Nýjasta afbrigði kórónuveirunnar,
BA.2.75, svokallað Kentár-afbrigði,
hefur greinst í Hollandi. Afbrigðið
nýja er ein útgáfa af Ómíkron-
afbrigðinu. Það greindist fyrst á
Indlandi í maí þar sem það virðist
nú vera ríkjandi afbrigði veir-
unnar. BA.2.75 hefur nú greinst í
rúmlega tíu ríkjum, þar á meðal
Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýska-
landi og Ástralíu. Lítið er vitað um
nýja afbrigðið, að sögn embættis
landlæknis í Hollandi, annað en að
allt bendir til þess að mótefni sem
fólk hefur nú þegar gegn veirunni
hafi lítil áhrif til að koma í veg fyrir
að smitast af því
HOLLAND
Nýjasta afbrigðið
breiðist hratt út
Faraldur Bólusetning gegn Covid-19.
Urður Egilsdóttir
skrifar frá Lundúnum
Sex komust áfram í leiðtogakjöri
Íhaldsflokksins í Bretlandi í gær.
Frambjóðendur þurftu að minnsta
kosti atkvæði þrjátíu þingmanna
flokksins til þess að komast í næstu
umferð en tveir náðu aftur á móti
ekki þeim fjölda atkvæða. Það voru
Nadhim Zahawi, núverandi fjár-
málaráðherra, og Jeremy Hunt,
fyrrverandi utanríkis- og heilbrigð-
isráðherra.
Efstur í kosningunum var Rishi
Sunak, fyrrverandi fjármálaráð-
herra, en afsögn hans úr ráðherra-
stóli í síðustu viku, ásamt afsögn
annarra ráðherra, leiddi til falls
Borisar Johnsons forsætisráðherra.
Sunak sagðist þó í framboðstilkynn-
ingu sinni ekki ætla að tala illa um
Johnson. Sunak er ríkasti þingmað-
ur Bretlands en deilur hafa skapast
um auðæfi hans og skattgreiðslur
fjölskyldu hans. Sunak hlaut 88 at-
kvæði í kosningum gærdagsins og
sagðist vera ákaflega sáttur með þá
niðurstöðu. Hann fékk 21 fleiri at-
kvæði en Penny Mordaunt aðstoð-
arviðskiptamálaráðherra.
27% styðja Mordaunt
Skoðanakönnun YouGov, sem
birt var í gærmorgun, leiddi í ljós
að Mordaunt nyti mests stuðnings
almennra félaga í Íhaldsflokknum
sem næsti leiðtogi hans og þar með
forsætisráðherra Bretlands. Alls
greiddu 879 félagar í Íhaldsflokkn-
um atkvæði í könnuninni. 27% að-
spurðra sögðust ætla að greiða
Mordaunt atkvæði nái hún að verða
meðal tveggja efstu þegar kemur
að því að almennir flokksmenn fái
að greiða atkvæði. Þess má geta að
Zahawi fjármálaráðherra er einn af
stofnendum fyrirtækisins YouGov.
Mordaunt gegndi stóru hlutverki
í herferðinni fyrir útgöngu Bret-
lands úr Evrópusambandinu árið
2016. Hún sagði stuðninginn „vera
heiður“ er hún yfirgaf sal 1922-
nefndarinnar, sem annast fram-
kvæmd kosningarinnar, eftir að
Graham Brady, formaður nefndar-
innar, hafði tilkynnt úrslitin.
Vilja breytingar
Í þriðja sæti var Liz Truss utan-
ríkisráðherra með 50 atkvæði. Tals-
kona Truss sagði eftir að úrslitin
voru tilkynnt að það væri kominn
tími til að Íhaldsmenn sameinist á
bak við leiðtoga sem muni „lækka
skatta, skila raunverulegum efna-
hagsbreytingum“ og tryggja að
Úkraína sigri Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta. Þá bætti talskonan við
að Truss gæti tryggt jákvæðar
breytingar í Brexit-málum strax og
hún myndi taka við embætti.
Í fjórða sæti var Kemi Badenoch,
fyrrverandi jafnréttismálaráðherra,
með 40 atkvæði. Hún var í öðru
sæti skoðanakönnunar YouGov með
15% stuðning. Badenoch þakkaði
stuðningsmönnum sínum á Twitter
og sagði að Íhaldsflokkurinn þyrfti
að verða flokkur breytinga til þess
að sigra í næstu þingkosningum.
„Ég hef sannfæringuna, hugrekkið
og skýru hugsunina til þess að leiða
þær breytingar,“ sagði í tísti henn-
ar.
Óvissa um stuðning
Þá eru þau Tom Tugendhat, for-
maður utanríkismálanefndar þings-
ins, og Suella Braverman dóms-
málaráðherra enn í leiðtogakjörinu
en hann fékk 37 atkvæði og hún 32 í
gær. Braverman var fyrst til að til-
kynna framboð sitt í síðustu viku, í
kjölfar þess að Johnson sagði af
sér.
Nadhim Zahawi fékk síðan 25 at-
kvæði og sagði í tísti að hann myndi
halda ótrauður áfram sem fjármála-
ráðherra og þakkaði þann stuðning
sem hann fékk í kosningunum.
Hann greindi þó ekki frá því hvern
hann myndi nú styðja í leiðtoga-
kjörinu. Sömu sögu er að segja af
Jeremy Hunt sem fékk einungis 18
atkvæði. Stuðningsmenn Tugendhat
greindu frá því eftir að niðurstöð-
urnar voru kynntar að þeir von-
uðust eftir að Tugendhat fengi að
minnsta kosti helming þeirra 43 at-
kvæða sem Hunt og Zahawi fengu í
gær.
Kjósa aftur í dag
Þingmenn Íhaldsflokksins kjósa
aftur í dag klukkan hálftvö að stað-
artíma um frambjóðendurna sex. Sá
sem hlýtur fæst atkvæði dettur út
úr leiðtogakjörinu. Áfram verður
síðan kosið í þinginu þar til tveir
frambjóðendur standa eftir en áætl-
að er að það verði fyrir 21. júlí þeg-
ar þingið fer í sumarfrí.
Þeir ríflega 200 þúsund Bretar
sem skráðir eru í Íhaldsflokkinn
kjósa síðan um nýjan leiðtoga sem
verður tilkynntur 5. september.
Sex eftir í leiðtogakjörinu
- Tveir þingmenn Íhaldsflokksins féllu úr leik - Rishi Sunak, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, leiðir - Mordaunt vinsælust á meðal almennra félaga í flokknum
Átta buðu sig fram sem arftakar Borisar Johnsons – tveir dottnir út
AFP Photos/Pool
Rishi Sunak
Fyrrverandi fjármála-
ráðherra, hætti 5. júlí
Jeremy Hunt
Fyrrverandi utanríkis-
og heilbrigðisráðherra
Liz Truss
Utanríkisráðherra
Na him Zahawi
Nýskipaður
fjármálaráðherra
Tom Tugendhat
Formaður utanríkismála-
nefndar þingsins
Penny Mordaunt
Fyrsti kvenkyns varnarmála-
ráðherra Bretlands, núv.
aðstoðarviðskiptamálaráðherra
Suella Braverman
Dómsmálaráðherra
Kemi Badenoch
Fyrrverandi jafnréttismála-
ráðherra, hætti 6. júlí
Þingmenn Íhaldsflokksins í kapphlaupinu um formannssæti flokksins
d