Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 31
Síðar þegar ég byrjaði í skólanum stóðu bekkjarfélagarnir í kringum mig og dásömuðu teikningar mínar en það var afgerandi fyrir mig, þegar teiknikennarinn minn í 9. bekk sagði við mig: „Håkan, getur þú verið að- eins eftir, því ég þarf að tala við þig.“ Ég hugsaði jeminn eini, hvað hef ég gert núna? En það var ekkert í þá veru heldur sagði kennarinn: „Håk- an, þú hefur hæfileika umfram aðra og þú verður að lofa mér að þú gerir eitthvað af þeim.“ Þá var ég 15 ára gamall. Ég hef notað þetta sama ráð við nemendur mín og ég man eftir einu atviki með norska konu sem var á námskeiði hjá mér og sagði nákvæm- legu sömu orð við hana og teikni- kennarinn sagði við mig: „Britt getur þú verið eftir smástund því ég þarf að tala aðeins við þig.“ Ég sagði henni nákvæmlega sömu orð og teiknikenn- arinn minn hafði sagt: „Britt þú hefur hæfileika umfram aðra og þú verður að lofa mér, að þú gerir eitthvað af þeim.“ Þá byrjaði hún að gráta. Tárin flæddu niður kinnarnar og það var ekki af sorg heldur einhvers konar gleði, hún var alls ekki sorgmædd en greinilega hittu orðin hana beint í hjartað og tilfinningarnar voru svona miklar. Því miður missti ég sam- bandið við hana svo ég veit ekki hvort hún hefur fylgt ráðum mínum og er listakona í Noregi í dag en ég mun reyna að hafa upp á henni. Þú heldur myndlistarnámskeið og myndlistarferðalög erlendis, veistu nokkuð hversu mörg slík þú hefur haldið? – Einhvern tímann tókum við sam- an yfirlit og fyrir covid-faraldurinn höfðum við haldið myndlistarnáms- skeið í 21 ár svo núna eru þau orðin 23 en það dró mjög úr starfseminni á meðan á heimsfaraldrinum stóð. Það eru að meðaltali 15-20 manns sem koma á erlendu námsskeiðin okkar oftast fjórum sinnum á ári. Að auki höfum við helgarnámsskeið hér í Ny- köping 2-3 sinnum á vorin og jafnoft á haustin með svipuðum fjölda þátttak- enda og það er næstum því alltaf full- bókað. Áttu þér einhvern sérstakan stað erlendis sem er þér kærastur? – Mér finnst gott að vera í hitanum en núna fer ég til Íslands og þar er kannski ekki eins heitt. Ég hef þrjá staði á Spáni, sem mér er annt um, í suðurhluta Spánar, í norðurhlutanum og á Mallorka. Við förum stundum til Grikklands á eyjuna Hydra. Í Portú- gal förum við á tvo staði, neðst á Alg- arve-ströndinni og einnig neðst við spönsku landamærin, þangað höfum við farið í fjöldamörg ár. Við höfum líka verið með myndlistarnámskeið í Frakklandi og Ítalíu í mörg ár. Í dag myndi ég segja að mér og konunni minni, Evu, líði einna best í Portúgal. Þeir tala góða ensku í Portúgal en Spánverjar, sem hafa horft á hljóð- settar kvikmyndir allan tímann í sjónvarpinu, eru alls ekki eins dug- legir í enskunni. Þetta hefur kannski lagast eitthvað með tilkomu netsins. Portúgalar eru þrifalegir, það er fínt hjá þeim, ekki svo mikið rusl. Það er snúið að eiga við Grikki, það þarf að semja og fara gegnum málin, korta- lesarinn bilaður og spurt hvort ekki sé hægt að borga með seðlum. En náttúran er stórkostleg. Þetta er af- skaplega fjölbreytilegt, vissir staðir eru nálægt ströndinni við hafið, aðrir án sundlauga ofarlega í fjallabæjum, sem er spennandi á allt annan hátt, allir eiga þessir staðir sinn sjarma og náttúran togar í mann. Við Eva förum alltaf sjálf fyrst og athugum staðina áður en við leggjum í að fara að halda myndlistarnáms- skeið þar. Athugum aðstæður, hvar hægt er að gista, þjónustu, veitinga- hús og þess háttar. Já og núna farið þið til Íslands, af hverju Ísland? – Ég er virkur í menningarmálum og hérna í Nyköping er ég með í ýms- um ráðum og nefndum t.d. bók- mennta- og listaráðinu. Við bjóðum inn bæði rithöfundum og listamönn- um til bæjarins að halda sýningar og kynna verk sín. Ég er einnig með í Menningarstrikinu sem er svæðið við ána, þar sem við sjálf erum og þar eru bæði sýningarsalir, kaffihús, mynd- listarstofur sem geta tekið á móti gestum. Ég var með við gerð sögu- bókar um Nyköping þar sem ég mál- aði margar sögulegar byggingar fyrir bókina. Hef einnig gert bók um Ny- köping með fallegum myndum, sem bærinn keypti og notar sem gjöf til gesta. Bænum finnst það gott, að þátttakendur á myndlistarnámskeið- unum koma hvaðanæva af landinu og árið 2020 fékk ég menningarverðlaun Nyköping og því fylgdu peningar. Ís- land hefur verið uppi á borðinu í 10- 15 ár en aldrei orðið af því að fara þangað til að mála hina spennandi, stórkostlegu, hrjóstrugu náttúru fyrr en núna. Ég mála líka mikið af vitum og þegar ég kíki á myndir í blöðum og bókum, þá sé ég að margir vitar eru háappelsínugulir á Íslandi. Og hugsið ykkur þann lit á móti svörtum hraun- klöppum og steinum, kannski hág- rænt, ekki háblár himinn heldur spennandi himinn. Andstæðurnar á milli appelsínugula litarins við þann svarta, bláa, fjólubláa, s.k. fylling- arlita sem liggja langt frá hver öðrum í litahringnum eru miklar, þannig að ef maður málar svartfjólubláan lit við þann appelsínugula verður virkni lita- andstæðunnar mikil og myndin verð- ur spennandi. Og að sjálfsögðu allar klappirnar og hafið og þessi spennandi náttúra á Íslandi, sem ég hef þráð að geta komist til til þess þess að mála. En vegna anna, margra námskeiða og sýninga og allra hópferðalaga er- lendis á hverju ári hefur tíminn ein- hvern veginn ekki dugað til. En núna sagði ég við Evu: „Ég hef fengið menningarverðlaunin hér í Nyköp- ing og peningarnir mega ekki fara í mat eða heimilið, peningarnir fara í staðinn í ferð til Íslands og þú kemur með!“ Ég ætla að mála íslenskt landslag í eina viku og túlka það á minn hátt. Þú og ég höfum líka rætt saman og svo komst ég að þeirri niðurstöðu, að ég eigi ekki aðeins að sýna myndirnar í Svíþjóð, á sýningu í Gamla Stan í Stokkhólmi, þegar ég kem til baka til Svíþjóðar, heldur mun ég einnig halda kynningarsýningu á Íslandi. Markmiðið er að mála a.m.k 15 listaverk á Íslandi og eftir að hafa skoðað myndir frá Íslandi hef ég ákveðið ferðalagið, það verður Suð- urland og Vesturland. Það er ljós langt inn í nóttina fyrstu vikuna í ágúst, við komum síðasta júlí og fáum eina viku til að mála íslenska náttúru og endum með kynning- arsýningu í Litla Gallerýi á Strand- götu 19 í Hafnarfirði 5.-7. ágúst nk. Allir gestir fá happdrættismiða, sem dregið verður í í lok sýningarinnar og eitt af verkunum, sem ég mála á Ís- landi veitt í verðlaun. Þú verður á Snæfellsnesi og þá munt þú sjá jökulinn loga, þ.e.a.s. Snæfellsjökul, við hlustuðum einmitt á það lag í bílnum á leiðinni til þín – Já, það hljómar spennandi. Við höfum einnig leigt annað húsnæði á meðan við erum á Íslandi, ég verð að hafa pláss fyrir málverkin mín. Við notum tímann fyrir hádegi til að ferðast og eftir hádegið og kvöldin til að mála. Konan mun aðstoða mig og sjá til þess að ég fái mat og kaffi, svo ég geti notað tíman til fullnustu við málverkin. Ég hef einnig mikinn áhuga á því að komast í samband við íslenska listamenn og hvet þá, sem hafa áhuga, að taka samband við mig á Litla Gallerýi í Hafnarfirði. Það er einnig hægt að hafa samband við mig gegnum tölvupóst atelje.gro- op@gmail.com. Ég myndi vilja stuðla að menningarlegum samskiptum við íslenska listamenn, við höfum tvo mjög góða sýningarstaði hérna í Ny- köping og ég er í góðu samstarfi við báða aðilana. Ég myndi vilja að ís- lenskir listamenn með áhuga á því að koma til Nyköping kæmu til að halda sýningu hér og einnig að listamenn frá Nyköping gætu farið til Íslands og haldið sýningu þar. Ég mun taka með mér skissur, ljósmyndir og hugmyndir frá Íslandi heim til Svíþjóðar og halda áfram að mála Ísland hér heima í Svíþjóð og held myndlistarsýningu í Gamla bæn- um í Stokkhólmi sem opnar 15. októ- ber og stendur í eina viku. Allir Ís- lendingar eru að sjálfsögðu sérstakalega velkomnir! Höfundur er smáfyrirtækjarekandi í Svíþjóð. UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Uppsett afl virkjana sem nota endurnýj- anlegt eldsneyti (vatn og jarðvarma) var 2 865 MW í lok árs 2020. Árin 2016-2020 var mesta aflþörf kerfisins 2 520 MW (29. nóvember 2018). Nú mætti ætla að raforkukerfið sé á góð- um stað með 345 MW á lausu fyrir rafmagns- þyrsta notendur. Svo er ekki þar sem hluti af uppsettu afli er ávallt óaðgengilegt. Annars vegar er hluti af vatnsafli nýttur sem varaafl og hins vegar nýtist ekki allt uppsett afl rennslisvirkjana og jarðgufuvirkj- ana. Stærð óaðgengilegs afls getur hæglega farið upp í 345 MW og ekk- ert afl á lausu fyrir nýja notendur. Fyrst ber að nefna varaafl sem er að finna í Fljótsdalsstöð. Í henni eru sex 115 MW vélar. Fimm eru notaðar til að halda uppi nauðsynlegri raf- orkuvinnslu og ein þjónar sem vara- afl bæði fyrir skipulagt og óskipulagt viðhald og viðgerðir. Óráðlegt er að nota varaafl til almennra nota þegar afl í kerfinu er af skornum skammti. Í öðru lagi þarf að gera ráð fyrir að afl á öðrum stöðum í raforkukerfinu geti dottið fyrirvaralaust út. Varaafl þarf að vera til staðar til að taka við keflinu og það er aðallega að finna á Þjórsársvæðinu. Varaaflið má ekki vera minna en stærð stærstu vél- arinnar en hana er að finna í Búrfells- stöð, 100 MW. Fyrirvaralaus aflmiss- ir stafar ekki nauðsynlega af alvar- legri vélarbilun heldur getur vél (eða vélar) dottið tímabundið úr umferð, t.d. vegna berg- hruns í vatnsvegi vatns- aflsvirkjunar, eldinga- veðurs eða jarðhræringa. Í þriðja lagi þarf að gera ráð fyrir að aflvél sem er 30 MW eða stærri geti verið úr leik í einhverjar vikur eða mánuði vegna alvarlegra galla eða skemmda í búnaði, t.d. í vélarspenni. Til dæmis lá framleiðsla 60 MW vélar í Sultartangastöð niðri frá ársbyrjun og fram á haust árið 2008. Reynslan sýnir að það er full ástæða að hafa a.m.k. 130 MW vara- afl til staðar í kerfinu (að frátöldu varaafli í Fljótsdalsstöð). Til dæmis var stór hlut afls í Sultartangastöð úr umferð árið 2008. Við höfum líka ný- legt dæmi í Nesjavallavirkjun þegar sprenging varð í tengivirki. Þá reynd- ist þörf á að stöðva allar vélar á Nesjavöllum eða 120 MW. Þessi atvik sýna að 130 MW varaafl á suðvestur- horninu er síst of hátt viðmið. Í fjórða lagi verður að hafa í huga að uppsett afl rennslisvirkjana nýtist aðeins að hluta til á veturna en þá er almenn notkun hvað mest. Hóflegt mat er að tiltækt afl rennslisvirkjana sé um 60 MW minna á veturna en á sumrin. Á köldum vetrum getur til- tækt afl verið enn lægra. Að lokum verður að gera ráð fyrir að uppgefið málafl jarðgufuvirkjana (757 MW) nýtist ekki að fullu. Með- alnýting jarðgufuvirkjana hefur verið 93% á veturna og dottið niður í 84% þegar nýtingin er hvað verst. Ástand búnaðar og gufuforða er misjafnt á milli ára. Að teknu tilliti til afltakmarkana fæst að tiltækt afl í kerfinu er 2 520 MW sem er jafnt aflþörf á árunum 2016-2020. Undanfarin ár hefur afl- þörf almennra notenda og stórnot- enda verið nálægt tiltæku afli. Þegar haft er í huga að árlegur vöxtur al- mennrar notkunar er um 10 MW þá eru horfurnar ekki góðar hvað afl- öryggi varðar. Ekkert má út af bera. Hér hefur verið dregin upp einföld en raunsönn mynd af stöðu rafafls. Ljóst er að óbreytt raforkukerfi mun á komandi árum harla ráða samtímis við vaxandi aflþörf á almenna mark- aðinum og alvarlegar bilanir í afl- stöðvum. Hingað til hefur íslenski virkjanaflotinn reynst vel enda veg- inn meðalaldur virkjana enn til- tölulega lágur eða 30 ár. En við meg- um ekki sofna á verðinum. Með hækkandi aldri má búast við tíðari bilunum. Því liggur á að bæta aflö- ryggið og vakta það betur. Raforkuþjóð á krossgötum Eftir Steinar Ingi- mar Halldórsson » Þegar haft er í huga að árlegur vöxtur almennrar notkunar er um 10 MW þá eru horfurnar ekki góðar Steinar Ingimar Halldórsson Höfundur er verkfræðingur, sjálfstætt starfandi. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Fjölbreytt úrval göngugrinda sem auka öryggi og tækifæri til hreyfingar og útivistar Verð frá 39.800,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.