Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 Það hefur verið at- hyglisvert að fylgjast með upphafsdögum nýs meirihluta í borg- arstjórn. Tveir fyrstu borgarstjórnarfund- irnir fóru ekki vel af stað fyrir hinn end- urnýjaða gamla meiri- hluta Dags B. Egg- ertssonar. Hvert klúðrið á fætur öðru. Samstarfssamning- urinn er að mestu óljós og innihaldsrýr loforðalisti og í ljós hefur komið að það ríkir óeining innan meirihlutans um um eitt og annað. Sumir sem standa að þessum sáttmála virðast ekki vita um ýmislegt sem í honum stendur. Auk þess eru fjölmörg verkefni, sem lofað er að ráðast í, nú þegar í gangi og ekki ný af nálinni. Á fyrsta fundi borgarstjórnar kaus meirihlutinn fjóra karlmenn sem fulltrúa sína í menningar-, íþrótta- og tómstundaráð. Töluðu fulltrúar flokkanna ekki saman áð- ur en til þessa kom? Þetta var á skjön við yfirlýsingu í samningnum þar sem segir að meirihlutinn ætli að „vinna að jafnrétti kynjanna og að jafnrétti í víðum skilningi“. Þessu var síðan breytt og ein kona og þrír karlmenn kosin í ráðið af hálfu meirihlutans. Stóra klúðrið Stóra klúðrið er þó endurskipu- lagning ráða og nefnda borgar- innar. Færa á atvinnu-, nýsköp- unar- og ferðamál til forsætis- nefndar í þeim eina tilgangi, að því er virðist, að forseti borgarstjórn- ar fái einhver önnur verkefni en að stjórna fundum borgarstjórnar. Í greinargerð fyrir þessari breyt- ingu segir m.a.: „Nokkur rök má færa fyrir þeim flutningi.“ Þvert á móti þá eru alls engin rök færð fyrir þessum flutningi, enda hann ekki til. Verkefni forsætisnefndar hafa hingað til verið skýr, þ.e. að fjalla um málefni borgarstjórnar og borgarfulltrúa. En nú verður nefndin hápólitísk og mun fjalla um stór og átakamikil verkefni. Málefni ferðamála voru á síðasta kjörtímabili flutt frá öflugu menn- ingar- og ferðamálasviði til borgar- ráðs með afleitum árangri, en nú- verandi forseti borgarstjórnar var á síðasta kjörtímabili formaður borgarráðs. Nú á að sameina málaflokk mannréttinda og ofbeldisvarna í nýtt mannréttinda- og ofbeldis- varnarráð, sem tekur við hlutverki ofbeldisvarnarnefndar, og er nefndin þar með lögð niður. Í greinargerð segir að með þessu sé verið að gera málaflokki ofbeldis- varna enn hærra undir höfði. Því- líkur rökstuðningur. Öðru nær, því með þessu er verið að gjaldfella málaflokkinn ofbeldisvarnir, enda kom það greinilega fram á seinasta borgarstjórnarfundi að ekki er sátt meðal borgarfulltrúa meirihlutans um þessa hringavitleysu. Stafræn lýðræðismál? Til að kóróna skömmina þá á að færa lýðræðis- og gagnsæismál, ekki vantar orðskrúðið, undir ný- stofnað stafrænt ráð, en því ráði er fyrst og fremst ætlað samkvæmt greinargerð „að annast stafræna umbreytingu auk samfélagslegrar og opinberrar nýsköpunar“. Vand- séð er hvernig lýðræðismál, sem hafa verið vistuð hjá mannrétt- inda-, nýsköpunar- og lýðræðis- ráði, eigi heima hjá stafrænu ráði, nema lýðræðismál hins nýja meiri- hluta verði stafræn á kjörtíma- bilinu. Þegar þessar ógöngur meirihlut- ans eru skoðaðar koma í hugann fræg orð Elísabetar 2. Breta- drottningar, sem kallaði árið 1992 „annus horribilis“ (árið hræðilega), en þá lentu fjölskyldumál drottn- ingar í miklum ógöngum. Þetta er vissulega hræðileg byrjun hjá meirihlutanum og veit ekki á gott næstu fjögur árin fyrir borgarbúa. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » „Samstarfssamning- urinn er að mestu óljós og innihaldsrýr loforðalisti.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Innihaldsrýr loforðalisti Þessi fyrirsögn er sögð vera andsvar kerlingar á Suður- nesjum, þegar Hall- grímur Pétursson, förumannslega búinn, sagði henni það í frétt- um, að búið væri að vígja hann til prests. Nútíminn veit, að fáir hafa verið verðugri vígslunnar en lista- maðurinn í húsgangstötrunum. En hvað þýðir sögnin að vígja? Hún merkir að eitthvað sé frátekið til helgrar þjónustu og starfsemi. Sé hugsað rökrétt út frá þessu þá eru þeir hlutir, sem eiga að tilheyra hinu veraldlega lífi, ekki vígðir. Þeir eru „teknir í notkun“, „opnaðir formlega“ o.s.frv. Stundum eru staðir blessaðir svo sem sjúkrahús, barnaheimili, íbúðir og fjölskyldu- hús, einnig veitingahús, verslanir og bifreiðastöðvar. Sú upptalning gæti orðið nær endalaus. Þar er mjög já- kvæð þróun á ferð. Og til þeirra at- burða allra þarf vígðan mann. Menn hafa margir misst sjónar á merkingu sagnarinnar að vígja. Þeir tala ítrekað um að vígja verald- lega hluti á borð við þá, sem ég nefni hér að ofan. Þess vegna eru orð kerlingarinnar forðum orðin að staðreynd í dag: Allan fjandann vígja þeir. Sögnin að skíra er svipað stödd í málræktargarði okkar. Allt of margir nota hana ekki rétt. Ég held það hafi verið í Sumarlandanum í Sjónvarpinu sem ég heyrði nú ný- lega að búið væri að skíra marga rjóðurbletti í tilteknu skóglendi. Í sama þætti lýsti þekktur þjóðfélags- þegn því yfir að hann hefði skírt fol- ald. Nafngjöf var ein- hvern veginn ekki í myndinni. Það sem mér blöskrar ekki síst, þegar farið er að misnota sagnirnar að vígja og að skíra, er málfátæktin sem þetta lýsir. Íslenskan er svo auðug að orðaforða og gefur svo mörg tækifæri blæbrigða og mismun- andi túlkunar, að við eigum ekki að þurfa að hanga á orðum sem eru upphaflega hugsuð á allt annan veg en við notum þau. Þessi orð verða þá einnig í senn lúin og útjöskuð, missa þá reisn sem íslensk tunga ætlaði þeim í upphafi. Það er ekki nóg að tala fjálglega um „ástkæra, ylhýra málið“ á hátíð- arstundum. Við þurfum að læra að njóta þess í önn dagsins með því að íhuga vel og vandlega það sem við segjum og nýta um leið fjölbreyti- leika þess. Klæðum okkur þá ekki í tötra fátæktarinnar, berum frekar þau litklæði sem hæfa íslenskri mál- rækt. „Allan fjandann vígja þeir“ Eftir Þóri Stephensen Þórir Stephensen » Íslenskan er svo auð- ug að orðaforða og gefur svo mörg tækifæri blæbrigða og mismun- andi túlkunar, að við eigum ekki að þurfa að hanga á orðum sem eru upphaflega hugsuð á allt annan veg en við notum þau. Höfundur er fyrrverandi dómkirkju- prestur. Atvinna www.gilbert.is SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS HOBBY 560 KMFE DE LUXE • Truma Combi 6 miðstöð • 150L ísskápur 15L frystir • 50L Vatnstankur • Álfelgur • 2000 kg öxull (Meiri burður) • Lúga hjá kojum • Vatnstengi + rafmagnstengi + sjónvarpstengi • Tvöfalt USB + barnaljós í kojum með USB tengi • Festing fyrir sjónvarp • Reykskynjari • 2 kojur með fallvörn • Hobby Connect • Hleðslustöð • Rafgeymir AGM • Aflestur rafgeymis • LCD skjár • Umhverfislýsing Raðnúmer 280968 Nýskráður 03/2022 (ónotað) Næsta skoðun 2026 Verð kr. 5.990.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.