Morgunblaðið - 14.07.2022, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
„Ef þessi sumarsangria færir
okkur ekki sumarið þá veit ég
ekki hvað. Ástríðuávöxturinn í
bland við allt þetta sumarlega
hráefni. Ég sá þessa hugmynd
að sangriu hjá Plated Cra-
vings og útfærði eftir mínu
höfði og útkoman var hreint út
sagt dásamleg, segir Berg-
lind.
Sumarsangria
Uppskrift dugar í um 10 glös
1 appelsína
2 lime
4 x ástríðuávöxtur
300 ml ananassafi
200 ml appelsínusafi
500 ml sódavatn með appels-
ínubragði (Toppur)
600 ml Muga-hvítvín
Skerið appelsínu og lime
niður í bita. Gott að skipta
hverri appelsínusneið í 6 hluta
og hverju lime í 4 hluta, setjið
í stóra skál.
Skafið innan úr ástríðu-
ávextinum og setjið í skálina.
Hellið næst ananassafa, app-
elsínusafa, sódavatni og hvít-
víni í skálina og hrærið saman.
Fyllið glös af klökum og
loks sangriu!
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Sumarlegt og smart Glösin eru sérlega falleg en þau koma frá Húsgagnahöllinni.
Sumarsangria
Berglindar
Þá sjaldan sem sólin lætur sjá sig er
nauðsynlegt að fá sér ferskan svaladrykk.
Ekki spillir fyrir ef hann er svona lekker
eins og þessi hér sem kemur úr smiðju
Berglindar Hreiðars.
Einhverjir klóruðu sér í kollinum og voru efins
en farið var af stað í þeirri von að þetta væri
jafn snjöll hugmynd og hún virtist vera.
Kjúklingurinn kemur tilbúinn í sítrónu- og
rósmarín-marineringu. Því þarf bara að skella
honum beint á grillið. Að auki var búin til
kryddblanda úr fersku kóríander, rifnum lime-
berki, lime-safa, salti og ólífuolíu sem var pensl-
að á kjúklinginn með rósmaríngreinum. Með
þessu var svo grillað meðlæti sem var tilbúið í
bökkum.
Það tekur vissulega smá stund að grilla kjúk-
linginn enda betra að tryggja að hann sé eld-
aður í gegn en útkoman var hreint frábær. Kjöt-
ið var meyrt og mjúkt, bráðnaði í munni og
grillbragðið kom vel í gegn.
Niðurstaða: Butterfly-kjúklingur hentar vel á
grillið og bragðast frábærlega.
Butterfly-kjúklingur með
sítrónu og rósmarín
Kryddolía
Ferskt kóríander
Rifinn lime-börkur
Safi úr einu lime
Sjávarsalt
Ólífuolía
Dressing
Takið tvær matskeiðar af kryddolíunni
(meira af jurtum, minna af olíunni) og
blandið saman við sýrðan rjóma
Meðlæti
Kirsuberjatómatar og mozzarella
Smælki
Grillgrænmeti
Allt grænmeti kom tilbúið í
bökkum, beint á grillið.
Auðveldasta grillmáltíð síðari ára
Heilgrillaður kjúklingur er í margra hugum
áhættuatriði sem kallar á flókinn búnað
og miseldað kjöt. Matarvefurinn
fékk það verkefni að grilla svokallaðan
butterfly-kjúkling þessa vikuna
en það er kjúklingur sem búið
er að fletja út til að auðveldara
sé að grilla hann.