Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 37

Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 ✝ Anna María Benedikts- dóttir fæddist 12. ágúst 1925 að Stóramúla, Dala- sýslu. Hún lést 1. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru Gíslína Ólöf Ólafsdóttir, fædd 26. febrúar 1882, dáin 23. apríl 1931, og Benedikt Sigurður Kristjánsson, fæddur 1. apríl 1895, dáinn 19. janúar 1987. Börn þeirra: Kristján Hólm Benediktsson, Anna María Benediktsdóttir, Ellert Ingiberg Benediktsson og Benedikt Benediktsson. Synir Gíslínu Ólafar: Ólafur Gunn- eru níu. 5) Unnur Petra. Maki Sigurbjörn Björnsson, afkom- endur þeirra eru sjö. 6) Anna Lísa. Maki Hreiðar Már Sig- urðsson, afkomendur þeirra eru fjórir. Anna María ólst upp í föður- garði við hefðbundin sveitastörf og gekk í skóla í sveitinni sinni. Einnig var Anna María einn vetur á Húsmæðraskólanum að Staðarfelli. Árið 1943 hófu hjónin Anna María og Sigurjón búskap á Sveinsstöðum í Dala- sýslu og bjuggu þar góðu búi í fallegri sveit. Hlutverk húsmóð- urinnar var fyrst og fremst að hugsa um börnin og önnur þau heimilisstörf sem því fylgja. Ár- ið 1966 brugðu hjónin búi og fluttu til Hafnarfjarðar en þar hefur heimili hennar verið æ síðan. Anna María starfaði utan heimilis við þjónustustörf í skól- um og hjúkrunarheimilum og ýmis verkefni sem til féllu. Útför hennar fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. arsson og Stefán Rafn Sveinsson. Þann 29. maí 1944 giftist Anna María Sigurjóni Sveinssyni, f. 18. janúar 1922, d. 22. maí 1994. Börn þeirra eru: 1) Sveinn. Maki Kristín Hulda Kristbjörnsdóttir, afkomendur þeirra eru 19. 2) Ólöf Sigríður. Maki Guðmundur Þórður Jónasson, afkomendur þeirra eru 23. 3) Bára. Maki Benedikt Ket- ilbjarnarson, afkomendur þeirra eru 18. 4) Hólmfríður Alda. Maki Halldór Sigþór Harðarson, afkomendur þeirra Mamma þekkti lífið, ung að ár- um eða aðeins tæplega sex ára missir hún móður sína úr berkl- um, sem voru skæðir á þeim tíma og tóku margar mæður frá börn- um sínum. Missir mömmu var mikill; svo mikill að það markaði líf hennar alla tíð. Hún lét ekki á því bera og hélt út í lífið eins og ekkert væri eðlilegra en hélt sín- um tilfinningum út af fyrir sig. Það var ekki áfallahjálpin í þá daga en sem betur fer eru breytt- ir tímar hvað það varðar. Hún hóf sína skólagöngu í farskóla eins og börn í sveitum gerðu jafnan í þá daga og oft var um langar leiðir að fara í misjöfnum veðrum. Hún sagði mér oft frá þessum árum sem eru svo ótrúleg og engin von um að nokkur skilji í dag – bilið er svo langt á milli þessa tíma og nú. Vinna var mikil á börnum á þess- um tímum og fór hún ekki var- hluta af því. Þrátt fyrir þetta varð mamma falleg stúlka, hæglát og prúð með sína drauma, eins og alltaf er. Ár- ið 1942-43 fór hún á Húsmæðra- skólann að Staðarfelli í Dölum, og var það mikil upplifun að koma í stóran hóp ungra stúlkna og setj- ast á skólabekk, sem og að eignast þar margar og góðar vinkonur og sést það best í minningabók sem stúlkurnar skrifuðu svo fallega í hver til annarrar og er þessi bók til enn og hefur alltaf verið varð- veitt vel. Hún var orðin ein eftir á lífi af þeim fallegu ungu stúlkum sem lífið brosti við á útskriftar- daginn þeirra vorið 1943. Svo kom ástin, ungur og efni- legur bóndasonur var kominn í sögu ungu konunnar – sem er svo pabbi minn. Við urðum sex systk- inin og er ég næstelst þeirra. Af- komendur mömmu eru 87 í dag en verða svo 88 í ágúst nk. Mamma mín var ekki að trana sér fram; það var ekki hennar lífs- máti. Þegar ég hugsa um allar sögurnar sem hún hefur sagt mér frá liðinni tíð þá hef ég oft hugsað að þetta væri saga hvunndags- hetjunnar – þær eru eflaust marg- ar til af því tagi. Takk fyrir, mamma mín, hvað þú varst alltaf góð við börnin mín og hvað þú varst góð tengdamóðir mannsins míns. Einnig er ég þakklát fyrir hversu vel þú tókst á móti öllum litlu börnunum sem komu í heiminn hvert af öðru og fengu gjöf frá þér. Enginn fermd- ist nema að fá gjöf, enginn gifti sig nema að fá gjöf; væntumþykjan var mikil. Þetta var þinn stíll og allir voru jafnir. Vettlingar og sokkar voru alltaf til og gefið litlum höndum og fótum á meðan þú gast stytt þér stundir við prjónaskap. Nú er þetta búið og annað tekur við hjá þér. Þú varst orðin þreytt, máttur þinn þvarr en alltaf var minnið og hugsunin á sínum stað, hugsun um að allir hefðu það gott og alltaf spurðir þú um fjölskylduna, því að hún skipti öllu hjá þér, og þú vildir fylgjast vel með öllu. Síðustu dagarnir voru þér erfiðir og við systkinin og börnin okkar sem komumst til þín reyndum að gera þér þá bæri- lega eins og hægt var. Ég og fjöl- skyldan mín þökkum þér sam- veruna með hlýju og góðum minningum. Guð leiði þig í ljósið sitt og gefi þér hvíld og frið. Þín dóttir, Ólöf Sigríður. Í fjarlægum, fögrum skógi ég friðsælt rjóður veit, þar skjálfa geislar í grasi, þar ganga hindir á beit. Á bak við blávötn og akra rís borgin með þys og ljós, en skóggyðjan felur í faðmi friðarins hvítu rót. Þar líður tíminn og líður – sem laufelskur, mildur blær. Og yfir nöfnunum okkar á eikinni börkur grær. (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) Hvíl í friði elsku mamma. Þín dóttir, Bára og fjölskylda. Elsku fallega og yndislega mamma mín. Það er sárt að kveðja og sárt að sakna. Við mamma erum búnar að kveðjast og fella tár yfir því oftar en talið verður, en við erum líka búnar að heilsast, knúsast og gleðjast jafn oft. Síðast þegar ég kvaddi þig elsku mamma mín um miðjan júní, þá fann ég það að lík- lega yrði það síðasta kveðjan. Lík- aminn þinn var orðinn þér erfiður en hugurinn og minnið eins og hjá unglingi. Mamma lifði tæp 97 ár og hefur því munað tímana tvenna. Mamma og pabbi eignuðust okkur sex systkinin, ég var ör- verpið. Ég get seint fullþakkað einstakt uppeldi, sem einkenndist af trausti, virðingu og aga. Alltaf fékk ég að heyra að ég gæti allt og mér væru allir vegir færir. Ég fékk alltaf mikið traust frá for- eldrum mínum sem er ómetanleg gjöf inn í lífið og fyrir það er ég endalaust þakklát. Það var mikil reglusemi á heimilinu, öryggi og festa. Mamma var líka einstök amma. Við hjónin vorum svo lán- söm að eiga mömmu og pabba að þegar Arnór okkar var lítill. Þau elskuðu að hafa hann, passa á meðan við vorum að klára há- skólanám. Hann fékk að stússa með afa og ömmu, taka til hend- inni í bílskúr og garði og hlusta á sögur. Við bjuggum í tveggja mín- útna göngufæri frá mömmu þegar Hildur okkar fæddist og var mamma tíður gestur þegar hún var lítil. Þær hlógu saman upp- hátt og léku sér og hún naut þess að líta eftir henni þegar svo bar undir. Tómas fæddist árið sem mamma var áttræð. Henni fannst gaman að segja að hún hefði verið að eignast barnabarn, orðin þetta fullorðin, en hún átti þá þó nokkur barnabarnabörn og elsta barna- barnið 43 ára. Henni þótti undur vænt um hvern og einn einasta af- komanda sinn og maka þeirra. Hún spurði alltaf frétta og reyndi eftir fremsta megni að fylgjast með þessum stóra hópi, svo yfir sig stolt. Mikið er það sárt í hjartað að vita af því að nú spjöllum við ekki daglega saman lengur í síma. Ég hringdi og mamma svaraði - ég sagði „hæ mamma“ og þú sagðir „sæl elskan mín“ Mamma var með á nótunum allt fram á síðustu stundu. Hún spurði alltaf um börn- in og fjölskylduna alla. Í lok okkar daglega samtals, þá sagði ég iðu- lega, „jæja mamma mín, ég heyri svo aftur í þér á morgun“ og hún svaraði „já við gerum það, takk fyrir að hringja elskan mín“. Það var allt í föstum skorðum hjá mömmu og leið henni best þannig. Það varð að ganga eins frá öllum hlutum, búa eins um rúmið, heils- ast eins og kveðja eins. Það var engin óreiða á þeim bænum og hreinlæti alltaf í algjöru fyrirrúmi og skipulögð var hún með eindæm- um. Hún var alltaf vel og fallega klædd og hélt virðingu sinni allt til loka. Það er gott að ylja sér við góðar minningar og þær eru svo sann- arlega margar. Ég kveð þig elsku yndislega mamma mín með miklum söknuði – þú varst mér einstök og fyrir það er ég ævinlega þakklát. Það er skrítið að taka ekki lengur upp símann og heyra í þér í okkar dag- legu símtölum. Ég hugga mig við það að nú eruð þið pabbi sameinuð á ný eftir 28 ár. Hvíl í friði elsku mamma og Guð geymi þig. Þín Anna Lísa. Þann 7.júlí s.l. fylgdum við elsku Önnu ömmu hinsta spölinn við fal- lega athöfn. Minningarnar ylja á degi sem þessum og er þakklæti fyrir tím- ann efst í huga. Amma var alltaf jafn glöð og stolt þegar ég rakst á hana á Hrafnistu þegar ég vann þar, og fannst spennandi að ég væri að læra hjúkrun. Það eru fáir sem toppa þessa konu enda hörkudugleg og alltaf jafn glæsileg til fara. Ég verð heppin ef ég kemst með tærnar þar sem amma hafði hælana. Nú höld- um við áfram að gera þig stolta af okkur og minnumst þín af ástúð. Sofðu nú vært elsku amma, þú hefur loksins fengið hvíldina þína í sumarlandið. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Arna Karen Sigurjónsdóttir Waage Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Takk fyrir allt elsku amma mín. þangað til næst. Þín , Anna María (Maja) Benediktsdóttir. Þann 7. júlí sl. fylgdum við Önnu Maríu langömmu og langa- langömmu sín síðustu spor í þess- um heimi, en hún lést 1. júlí sl. Það er svo skrýtið að kveðja fjölskyldumeðlim sem var svo stór partur af minni tilveru í alla tíð, en amma hefði orðið 97 ára 12. ágúst nk. Amma var yndisleg kona sem lét fjölskylduna skipta sig máli og vildi alltaf vita hvað við vorum að bralla og fylgdist vel með. Ég veit að hún var stolt af okk- ur öllum – jafn stolt og við fjöl- skyldan erum af henni. Hún var alla tíð dugnaðarfork- ur og hörkutól. Bjó í Dölunum í gamla daga og hugsaði af alúð um börnin sín og búið sem þau langafi áttu, þannig var amma! Góð bæði við menn og dýr. Hún hugsaði alla tíð hlýtt til sveitarinnar sinnar og mér þótti alltaf gaman að spyrja ömmu út í gamla tíma og hlusta á hana rifja upp og segja skemmtilegar sög- ur, sem voru oft á tíðum æsi- spennandi – en lýstu líka tíðar- anda þess tíma sem var og hversu mikið fólk lagði á sig fyrir hluti sem okkur þykja helst til sjálfgefnir í dag. Ömmu leiddist alls ekki að stjana við fólkið sitt eins vel og hún gat. Það sem henni þótti smáræði þótti manni sjálfum stórkostlegt. Heimagerðar kræs- ingar af öllum sortum og gerðum lagðar á borð, heitt súkkulaði í fínasta sparistellinu og meira til. Það dugði ekki neitt minna þegar hún fékk heimsókn, sem var svo sannarlega ekki sjaldan en amma naut þess að baka og sinna handavinnu. Hún hafði gaman af því að prjóna og fór maður ósjaldan heim með vettlinga og sokka, mikið sem mér þótti vænt um það „smáræði“ eins og amma sagði alltaf. Amma kunni líka að skemmta sér vel. Hún gat dansað mann og annan upp úr skónum og undi sér vel í léttu spori við harmonikku- leik. Henni þótti gaman að mæta í fjölskylduboð, að ferðast og taka þátt. Amma var alltaf vel til höfð, í sínu fínasta pússi. Jafnvel þó hún væri smá slöpp, þá hafði hún allt- af fyrir því að gera sig til, hún var jú sætasta konan í Hafnarfirði. Nú situr eftir hafsjór af falleg- um minningum og sögum sem lifa áfram og verða sagðar við hvert tilefni. Við fjölskyldan erum heppin að hafa átt ömmu Önnu að sem fjölskyldu og fyrirmynd. Hvíldu í friði og ró elsku Anna amma Ég vona að þú sért búin að finna afa Sigurjón í sveitinni sem ykkur þótti svo vænt um og verð- ið ung að eilífu saman í Sumar- landinu. Silja Rut Sigurjónsdóttir og börn. Þegar ég minnist ömmu minn- ar, Önnu Maríu Benediktsdóttur, verða fyrir mér ótal svipmyndir sem eru ekki einungis órjúfandi hluti af lífi mínu, heldur fela þær í sér þá dýrmætu reynslu sem fylgir því að fæðast inn í fjöl- skyldu, alast upp og umgangast fólkið sitt, læra af því og mótast af því. Minningarnar eru margar. Amma var glæsileg kona sem lítil stelpa dáðist að. Hún átti rauðan varalit og fallegt skart sem mér þótti gaman að skoða. Eitt sinn þegar ég stalst í varalit- inn hennar sagði hún mér að það borgaði sig ekki að gera það því varaliturinn væri búinn til úr músablóði. Eftir það stalst ég heldur aldrei í varalitinn aftur, en bragðið af honum, sem var ólíkt öllu því sem ég hafði þangað til smakkað, sat í mér. Músablóð er kannski ekki svo vont á bragðið þegar allt kemur til alls. Þegar amma flutti í raðhúsið sitt á Miðvanginum fannst mér hún vera að flytja í höll. Það var alltaf fínt í húsinu hennar ömmu og þegar ég fékk að gista hjá ömmu og afa fannst mér sem opn- aðist nýr heimur. Mér fannst gaman að virða fyrir mér mynd- irnar á veggjunum, bækurnar, klukkurnar, blómavasana og stytturnar – og útsaumaða og heklaða púðana. Skemmtilegast þótti mér að glamra á píanóið og raða saman nótum. Á sama tíma fannst mér tíminn líða hægar á Miðvanginum en annars staðar. Stóra stofuklukkan tók undir það. Amma bjó til heimsins bestu flatkökur. Þegar ég var ung kona og byrjuð að búa kenndi hún mér þessa list og ég er þakklát fyrir að hafa þegið í arf þessa kunnáttu ömmu minnar. Og hvað lagkakan hennar var góð, randalínin með sveskjusultunni, svo ekki sé talað um rúlluterturnar og smákökurn- ar. Jólakortin frá ömmu voru svo innileg og falleg. Hún bað guð um að blessa mann og sum orðin skreytti hún með því að setja punkta eða skrautlínur undir. Ég á mörg þeirra enn og mun varð- veita sem fjársjóð. Amma sagði mér sögur af því þegar hún var lítil, hvernig hún lék sér í sveitinni og hvernig hún skynjaði náttúruna í kringum sig. Jú, hún vann að vísu mikið, en hún var líka lítið barn og ég sá barnið í henni skína betur í gegn því eldri sem hún varð. Eftir að amma varð gömul fannst mér gott að fara til hennar og halda í höndina á henni. Mér fannst gott að finna fyrir sterkri tengingunni og minna mig á að ef hún væri ekki til, væri ég ekki til. Þá væru hvorki börnin mín til né barnabörnin. Lífið snýst að svo mörgu leyti um jafnvægi þess að halda í og sleppa. Á meðan ég kýs að halda í þessar góðu minningar um ömmu mína, þessar svipmyndir sem eiga eftir að fylgja minningu hennar svo lengi sem ég lifi, kýs ég að sleppa henni með hlýju í hjarta og þakklæti fyrir að hafa átt hana að. Að sleppa henni er mér jafn ljúft og eðlilegt og þegar ég sem barn sleppti fiðrildi sem ég hafði fangað úr lófa mínum. Bæði voru sköpunarverk guðs sem kallaði þau til sín þegar tími var til kominn. Ég trúi því að elsku amma sé nú innan um allt gott, bæði fiðrildi og blóm, gang- andi um á grænu engi með honum afa. Þau hafa um margt að spjalla. Aðalheiður Guðmundsdóttir. Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún. Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn, sólskin í dali og blómstur í tún. Hún hefur sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót. Hún hefur sagt mér að vaka og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót. (Páll Ólafsson) Þessi fallegi texti minnir mig svo á þig elsku besta amma mín. Þér fannst svo vænt um fugla. Þér fannst líka svo vænt um alla þína afkomendur sem eru nú nokkuð margir, börn, barnabörn, langömmubörn og langalang- ömmubörn og svo allir þeir sem eru inngiftir í fjölskylduna þína. Þú sagðir mér að við værum öll í bænum þínum á hverju kvöldi. Það lýsir því hversu fallegur og góður hugur þinn var, þú varst full af kærleik og ást til okkar allra. Minningarnar eru margar og fallegar, og á ég heilan fjársjóð af þeim. Ég man þegar ég sat hjá þér í eldhúsinu á Sveinsstöðum og horfði hugfangin á þig sinna þín- um störfum Ég man þegar ég var hjá ykk- ur afa á Hamarsbrautinni og við sátum á eldhúsbekknum á kvöld- in og horfðum á hafnarljósin út um gluggann. Ég man þegar ég kom í heim- sókn á Miðvanginn og eldhús- borðið fylltist af kræsingum. Ég man þegar þú varst hjá okkur í Neskaupstað og hélst upp á sjötugsafmælið þitt. Ég man þegar þú heimsóttir okkur í fyrsta sinn til Noregs og þú prjónaðir dúkkuföt á dúkkurn- ar hennar Esterar. Ég man þegar þú komst til okkar í annað sinn til Noregs og við fórum í bíltúr til Geiranger og þú varst alveg orðlaus yfir nátt- úrufegurðinni. Ég man líka eftir þeim stund- um þegar við grétum af hlátri yfir einhverju sem okkur fannst fynd- ið. Þú hafðir svo einstaklega fal- legan hlátur. Börnin og barnabörnin okkar Guðjóns eiga líka margar góðar minningar um langömmu og langalangömmu. Þeim yngstu fannst mjög merkilegt að eiga langalangömmu og sögðu ósjald- an frá því. Amma, elsku amma mín, takk fyrir allt sem þú hefur verið mér og minni fjölskyldu. Allar minningarnar um þig eru geymdar á góðum stað í hjarta mínu. Anna María Guðmundsdóttir. Anna María Benediktsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.