Morgunblaðið - 14.07.2022, Side 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
✝
Svava Svein-
bjarnardóttir
fæddist 19. júlí
1926 á Ysta-Skála í
Vestur-Eyja-
fjallahreppi. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Lundi á Hellu
1. júlí 2022.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Sig-
ríður Anna Ein-
arsdóttir, hús-
freyja, f. 1885, d. 1943, og
Sveinbjörn Jónsson, bóndi,
kennari og organisti, f. 1882, d.
1971.
Systkini Svövu voru Sigríð-
ur, f. 1908, d. 1986, Þórný, f.
1909, d. 1995, Eyþór, f. 1911, d.
1929, Guðbjörg, f. 1913, d.
1959, Jón Þorberg, f. 1915, d.
1991, Sveinbjörn, f. 1916, d.
1996, Sigurjón, f. 1918, d. 1965,
Þóra Torfheiður, f. 1921, d.
1987, Ásta, f. 1923, d. 2013,
Garðar, f. 1925, d. 2018, og
Einar, f. 1928, d. 2004.
Svava giftist 23. apríl 1953
Sigurði Lofti Tómassyni, f. 16.
september 1915, d. 21. október
2002, frá Grafarbakka í Hruna-
mannahreppi. Foreldrar hans
voru hjónin Þóra Loftsdóttir,
húsfreyja og bóndi, og Tómas
Júlíus Þórðarson, bóndi og
söðlasmiður.
c) Hildur Guðrún, í sambúð
með Axel Kára Vignissyni. Þau
eiga tvo syni. d) Þórný Vaka.
Dóttir Þorleifs er Fjóla Rún,
gift Vilhjálmi Kára Haralds-
syni. Þau eiga samtals þrjú
börn.
Eftir að Guðbjörg systir
Svövu lést tóku Svava og Sig-
urður þátt í uppeldi Margrétar,
yngstu dóttur hennar, sem
dvaldi á Hverabakka á sumrin.
Dóttir hennar er Camilla Guð-
björg.
Svava ólst upp á Ysta-Skála
og gekk í skóla í sveitinni. Árið
1943 fór hún í vist til Reykja-
víkur. Eftir skyndilegt fráfall
móður hennar sama ár sneri
Svava aftur að Ysta-Skála til að
annast heimilið með föður sín-
um. Árið 1952 réði hún sig sem
bústýru á Hverabakka hjá
framtíðareiginmanni sínum.
Þau felldu hugi saman og þar
bjó Svava í nær 70 ár. Svava og
Sigurður ráku garðyrkjustöð-
ina Gróður í áratugi og einnig
um tíma kúabú.
Ung söng Svava í kór Ásólfs-
skálakirkju. Hún sótti nám-
skeið við Húsmæðraskóla
Reykjavíkur 1946. Svava starf-
aði í Kvenfélagi Hrunamanna-
hrepps, söng í kirkjukórnum í
Hruna, Flúðakórnum og kór
eldri borgara í sveitinni. Hún
hafði sérstaka ánægju af að
rækta sumarblóm og hélt því
áfram með dætrum sínum allt
þar til á síðasta ári.
Svava verður jarðsungin frá
Hrunakirkju í dag, 14. júlí
2022, klukkan 14.
Dætur Svövu og
Sigurðar eru: 1.
Anna leikskóla-
kennari, f. 19. nóv-
ember 1953, búsett
í Reykjavík, gift
Jakobi Marinós-
syni. Börn þeirra
eru: a) Sigurður
Valur, kvæntur
Örnu Sigurðar-
dóttur. Þau eiga
þrjú börn. b)
Helga, gift Gunnlaugi Eiríks-
syni. Þau eiga þrjú börn. c)
Marinó Þór, í sambúð með Ástu
Eir Árnadóttur. Þau eiga einn
son. 2. Þóra sérkennari, f. 13.
janúar 1956, búsett í Reykjavík.
Börn hennar og fyrrverandi
maka, Tryggva Gunnarssonar,
eru: a) Gunnar Smári, kvæntur
Írisi Björk Hreinsdóttur. Þau
eiga tvo syni. b) Sigurður Kári,
í sambúð með Guðrúnu Söndru
Berndsen Björnsdóttur. Þau
eiga samtals fjögur börn. c)
Hallfríður Þóra, í sambúð með
Tryggva Aðalbjörnssyni. 3.
Sjöfn kennari, f. 1. ágúst 1957,
búsett á Hverabakka II, gift
Þorleifi Jóhannessyni. Börn
þeirra eru: a) Jóhannes Freyr, í
sambúð með Eleonoru Berg-
þórsdóttur. Þau eiga þrjú börn.
b) Svava, gift Narfa Þorsteini
Snorrasyni. Þau eiga þrjú börn.
Elsku mamma.
Nú hefur þú kvatt okkur eftir
farsæla ævi. Ég er stolt af því að
vera dóttir þín. Þú varst góð
móðir og besta fyrirmynd mín í
lífinu. Alltaf tilbúin að gefa góð
ráð, gleðja og hvetja. Þér var
mjög umhugað um að mér og
börnunum mínum liði vel. Þú
lagðir óskir þínar í hendur Guðs
og kenndir okkur bænir.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Guð blessi minningu þína.
Þín dóttir,
Þóra.
Mér fannst löng leiðin að
Hverabakka úr Reykjavík í
fyrsta skiptið en Sjöfn taldi tíma-
bært að kynna mig fyrir foreldr-
um sínum. Þessi ferð og kynni
mín af tilvonandi tengdaforeldr-
um mínum áttu eftir að hafa af-
gerandi áhrif á líf mitt. Ég heill-
aðist strax af þeim hjónum. Þau
tóku á móti mér eins og ég væri
konungborinn og dekruðu við
mig á allan hátt.
Þessar minningar hellast yfir
mann nú þegar komið er að leið-
arlokum hjá Svövu tengdamóður
minni. Hún hefur verið svo stór
hluti af tilveru minni allar götur
síðan.
Mér þótti þetta umhverfi af-
skaplega spennandi og framandi
þar sem ég kom úr gjörólíku um-
hverfi úr Hafnarfirðinum. Ekki
bara garðyrkjan; ræktun tómata
og kálmetis, heldur heimilisbrag-
urinn og gestrisnin á heimilinu.
Hve samtaka þau Siggi og Svava
voru í því að taka á móti gestum.
Ekkert var sparað við þá sem
áttu leið um hlaðið á Hvera-
bakka. Hvernig Svava náði ávallt
að töfra fram veisluborð án
nokkurs fyrirvara, þegar gesti
bar að garði.
Svava sagði mér að það hefðu
verið viðbrigði að flytjast undan
Eyjafjöllum í Hreppinn. Ein-
hver menningarmunur. Fé-
lagslífið í Hreppnum var mjög
öflugt, kvenfélagið, leiklist og
kórastarf blómstraði. Þau tóku
fullan þátt í þessu öllu.
Þau eignuðust þrjár dætur.
Hún saumaði á þær kjóla sam-
kvæmt nýjustu tísku og kapp-
kostaði að þær litu ávallt vel út.
Þar naut hún sín því að fatnaður
og útlit skipti hana alltaf miklu
máli.
Við Sjöfn byggðum hús ná-
lægt Hverabakka og nutum því
nærveru þeirra alla tíð. Þeim var
afar umhugað um afkomu okkar
og barnabarnanna. Börnin áttu
ávallt skjól í faðmi ömmu og afa.
Svava og Siggi voru samstiga
í lífinu; garðyrkjunni, heimilis-
rekstrinum og uppeldi dætr-
anna. Siggi var ákaflega stoltur
af sinni konu og var óspar á
hrósið þar. Árið 2000 þegar
skjálftinn reið yfir Suðurland þá
skemmdist íbúðarhúsið að
Hverabakka nokkuð. Siggi var
harðákveðinn í því að byggja
nýtt hús svo að vel færi um hana
Svövu sína eftir sinn dag og
hann náði því áður en hann lést
árið 2002.
Svava tók seint bílpróf en
naut frelsisins sem bíllinn veitti
henni og keyrði nánast fram á
síðasta dag. Rúnturinn var þá
gjarnan til okkar að Hverabakka
II eða niður í gróðurhús til að fá
sér göngutúr þar.
Svava var okkur Sjöfn mjög
innan handar þegar mikið var að
gera hvort sem var í gróðurhús-
unum að tína tómata, prikla
blómum eða passa börnin.
Svava er síðust í röð tólf
systkina frá Ysta-Skála undir
Eyjafjöllum til að kveðja. Þessi
systkini voru litríkar persónur
og öllum minnisstæð sem þeim
kynntust.
Síðustu árin má segja að hlut-
verk móður og dóttur hafi snúist
að nokkru leyti við. Sjöfn sinnti
móður sinni af kostgæfni en að
lokum varð það ekki umflúið að
hún færi á hjúkrunarheimili.
Hún var síðustu mánuðina á
Lundi á Hellu þar sem hún naut
mjög góðrar umönnunar.
Svava var afskaplega ljúf og
elskuleg kona og þægilegt gam-
almenni. Það verður stórt skarð
að fylla þar sem hún var.
Blessuð sé minning hennar.
Þorleifur Jóhannesson.
Þá er komið að því að kveðja
elsku ömmu Svövu. Það er óraun-
verulegt að amma sé farin frá
okkur. Hún hefur alltaf verið til
staðar með sinni góðu nærveru,
kærleika og hlýju. Það var alltaf
yndislegt að setjast niður með
ömmu yfir kaffibolla og eiga
spjall um allt á milli himins og
jarðar. Oftar en ekki var hún bú-
in að baka pönnukökur með lítilli
fyrirhöfn. Þegar við kvöddumst
þá laumaði hún ævinlega einu
nýprjónuðu vettlingapari að
manni handa börnunum.
Amma var afar félagslynd og
hafði mikinn áhuga á fólki. Hún
fylgdist vel með barnabörnunum
sínum og var mjög áhugasöm um
allt það sem við tókum okkur fyr-
ir hendur. Það var ómetanlegt
hvað hún var hvetjandi, um-
hyggjusöm og jákvæð.
Minningarnar sem tengjast
ömmu og afa á Gamla-Bakka eru
óteljandi. Það var dýrmætt að
alast upp í næsta húsi og geta
rölt yfir til þeirra hvenær sem
var. Húsið þeirra var ævintýra-
legt með garðskála fullum af
blómum og vínviði sem óx í allar
áttir, svo ekki sé minnst á stærð-
arinnar pálmatré í stofunni.
Amma var oftast nær að bardúsa
í eldhúsinu og afi sat í stofunni
með vindil og dagblað. Þau voru
vinamörg og var yfirleitt mikið
um heimsóknir á Gamla-Bakka
þar sem öllum var tekið opnum
örmum.
Amma var svo heppin að geta
búið heima hjá sér nánast fram á
síðasta dag, hún var umvafin
fólki sem þótti óendanlega vænt
um hana og hún gaf mikið af sér.
Við munum sakna hennar sárt,
betri ömmu er ekki hægt að
hugsa sér.
Blessuð sé minning hennar.
Svava Þorleifsdóttir.
Elsku amma mín. Nú verða
ótrúlega mikil og erfið viðbrigði
þar sem þín nýtur ekki lengur
við.
Ég vildi bara í fáeinum orðum
minnast þín og þakka þér. Þeir
sem þekkja mig vita hvað þú
varst stór og mikilvægur hluti af
mínu lífi og svo síðar minni fjöl-
skyldu. Að hafa þekkt þig og um-
gengist í tæp 45 ár eru forréttindi
sem ég mun seint geta þakkað
fyrir.
Sem lítill strákur var yndislegt
fyrir borgarbarnið að fá aðgang
að sveitinni og þar átti ég ömmu
og afa sem voru engum öðrum
lík. Við amma mynduðum ein-
stakt samband, þar sem ég valdi
frekar að fara í sveitina heldur en
æfa og spila fótbolta í bænum.
Sumrin voru frábær tími, amma
sinnti ótal verkefnum og eldaði
svo góðan mat að allir komu vel
haldnir heim í sumarlok. Bestu
fiskibollur sem ég hef á ævinni
smakkað eru þær sem amma lag-
aði, ég hef eytt ófáum klukku-
stundum í eigin eldhúsi að reyna
að fá sama bragð en það hefur
ekki enn tekist.
Þessi yndislega kona hugsaði
vel um heimilið sitt og vann af
elju. Það voru einhverjir töfrar
að koma í sveitina þar sem heim-
ilið var opið öllum og allir vel-
komnir. Amma Svava var einhver
sú albesta manneskja sem ég hef
nokkurn tíma fyrirhitt. Mikið var
alltaf gott og yndislegt að koma
til þessarar einstöku konu sem
var góð, glöð, bjartsýn, gestrisin
með eindæmum og ávallt tilbúin
með opinn faðminn. Hún var með
eindæmum glæsileg og gerði sig
alltaf fína hvort sem förinni var
heitið niður í gróðurhús eða út á
Grund (gamla búðin).
Þegar ég eignaðist svo mína
eigin fjölskyldu fórum við oft
austur á Hverabakka þar sem við
nutum fyrst félagsskapar ömmu
og afa og síðar aðeins ömmu eftir
fráfall afa. Arna konan mín hafði
alltaf orð á því að við værum að
hitta ömmu okkar beggja og voru
það orð að sönnu. Enda áttu þær
ófá kvöldin þar sem horft var á
skemmtilegar myndir, nú ef ekki
brjálaðar spennumyndir eins og
Taggart svo dæmi séu tekin.
Þegar yngsta barnið okkar fædd-
ist, lítil stúlka, var ákveðið að hún
fengi nafn langömmu sinnar og
er það dýrmætt nú þegar hennar
nýtur ekki lengur við.
Ég mun, ásamt því að hitta
þig, sakna þess að fá frá þér sím-
tölin þar sem rætt var um hvern-
ig við fjölskyldan hefðum það,
hvernig öllum gengi og svo auð-
vitað veðrið. Börnin okkar, Dag-
ur Logi, Egill Kári og Rakel
Svava, munu svo sannarlega
minnast þín með söknuði.
Að lokum elsku amma mín þá
bið ég kærlega að heilsa gamla
manninum honum afa mínum og
gott til þess að vita að þið eruð
sameinuð á ný eftir 20 ára fjar-
veru. Guð geymi þig og varðveiti
og takk fyrir allt, takk fyrir mig
og takk fyrir okkur fjölskylduna.
Þú munt svo sannarlega lifa
áfram í minningunni. Sjáumst
síðar.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þinn
Sigurður Valur
(Siggi Valur).
Það eru margar ljúfar minn-
ingar sem við systkinin eigum af
ömmu Svövu. Við vorum svo lán-
söm að búa í nálægð við ömmu og
afa sem bjuggu í næsta húsi.
Húsið þeirra var mitt annað
heimili og ég naut þess að vera
hjá þeim í dekrinu og var reglu-
lega í pössun hjá þeim þegar ég
var barn. Ég man eftir pönnu-
kökunum þar sem sykurinn var
ekki sparaður og rabarbarasult-
unni góðu. Húsið þeirra var
heimilislegt og ríkulega skreytt
af málverkum og hinum ýmsu
munum og síðast en ekki síst alls
konar plöntum og ég man sér-
staklega eftir stóra framandi
pálmatrénu sem tók sína fer-
metra af stofunni.
Oft var mikið líf og fjör á
Hverabakka við hin ýmsu tilefni,
eins og réttir, sláturgerð, versl-
unarmannahelgi, páskafrí og
Svava
Sveinbjarnardóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁRNÝ ELSA TÓMASDÓTTIR
frá Hábæ í Þykkvabæ
lést á Sunnuhlíð þriðjudaginn 5. júlí í faðmi
fjölskyldunnar. Útför hennar fer fram frá
Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 20. júlí klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Kattholt.
Ágústa Valdimarsdóttir Gunnar Steinþórsson
Guðbjörg K. Valdimarsd.
Jón Óskar Valdimarsson
Thelma Dögg Valdimarsd. Haukur Ægir Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞORSTEINN PÁLL BJÖRNSSON
múrari,
Raftahlíð 79,
Sauðárkróki,
andaðist á heimili sínu mánudaginn 4. júlí.
Útför fer fram frá Sauðárkrókskirkju
mánudaginn 18. júlí klukkan 14. Streymt verður frá útförinni á
https://www.facebook.com/saudarkrokskirkja og https://www.y
outube.com/c/Sau%C3%B0%C3%A1rkr%C3%B3kskirkja.
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat.
Sólborg Björnsdóttir
Guðný Eyjólfsdóttir
Mínerva Björnsdóttir Geirmundur Valtýsson
Björn Björnsson Sólveig Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæri
ÞORBERGUR GUÐMUNDSSON,
Holtaseli 22,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans 9. júlí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 22. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeir sem vilja minnast
hans láti líknarfélög njóta þess.
Ester Albertsdóttir
Anna Lísa Þorbergsdóttir Baldvin Hafsteinsson
Jóhanna Þorbergsdóttir
Albert Þorbergsson Hulda Axelsdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR E. KONRÁÐSDÓTTIR,
Ársölum 1, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 18. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Heilaheill.
Streymt verður frá athöfninni á www.streyma.is.
Hlekk á steymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat.
Konný R. Hjaltadóttir Óskar Guðjónsson
Hjalti H. Hjaltason Margrét Jónsdóttir
Sigurður Ingvar Hjaltason Magnea H. Magnúsdóttir
Aðalheiður Íris Hjaltadóttir
ömmubörn og langömmubörn