Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 14.07.2022, Qupperneq 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022 ✝ Andrés Þor- björn Guð- mundsson fæddist 29. maí 1925 í Bol- ungarvík. Hann lést 6. júlí 2022 á Hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu, Laugarási. Foreldrar hans voru hjónin Ingi- gerður Benedikts- dóttir, f. 1894, d, 1966, og Guðmundur Andr- ésson, f. 1890, d. 1971. Hann var fjórða barn þeirra hjóna af fimm börnum. Systkini hans voru: Haraldur Guðmundur Guðmundsson, f. 1914, d. 1934. Benidikt Vagn Guðmundsson, f. 1915, d. 1971. Ingunn Guðlaug Valmaría Guðmundsdóttir, f. 1922, d. 1943. Drengur Guð- mundsson, f. 1931, d. 1931. Þann 8. júní 1947 kvæntist hann Ástu Sigríði Williams- dóttur, f. 8. október 1927, d. 5. febrúar 2016. Börn Andrésar og Sigríðar eru: 1) Guðmundur, f. 1947, d. 2022 kvæntur Ásthildi Davíðsdóttur. Dæt- ur þeirra eru Eva Katrín og Erla Björk. 2) Inga Jóna, f. 1949, gift- ist Einari S. Ólafs- syni, f. 1948, d. 2007. Dætur þeirra eru Ásta Sigríður og Elínborg. 3) Ásta, f. 1950, giftist Árna B. Sigurðssyni. Þau skildu. Börn þeirra eru Kolbrún Heba, Rut og Sigurður. 4) Andrés, f. 1954, kvæntur Önnu Guðmunds- dóttur. Börn hans eru Auður Harpa, Jessica Leigh, Andrés James og Kristína Elísabet. 5) Jón William, f. 1959, d. 2016. Kvæntist Valhildi Margréti Jónasdóttur. Þau skildu. Lang- afabörnin eru fimmtán og langalangaafabörnin orðin þrjú. Andrés ólst upp í Bolungar- vík og gekk í barna- og ungl- ingaskóla Bolungarvíkur. Sautján ára hóf hann nám í efri deild Reykholtsskóla. Síðan lá leið hans í Menntaskólann á Akureyri. Eftir nám hóf hann störf sem skrifstofustjóri hjá Vélsmiðunni Odda og starfaði þar í sjö ár. Þá lá leið þeirra til Akraness þar sem hann var bæjargjaldkeri í fjögur ár. Síð- an hóf hann nám í endurskoðun hjá Ragnari Ólafssyni og starf- aði þar í tvö ár. Þá fór hann til Kienzle í Þýskalandi og lærði uppsetningu vélabókhalds og við heimkomu stofnaði hann sína eigin endurskoðunar- skrifstofu sem hann rak til 1980. Sama ár réði hann sig til varnarliðsins og starfaði þar við endurskoðun til ársins 1997. Andrés var einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Eld- eyjar í Kópavogi og annar for- seti klúbbsins. Einnig var hann félagi í Odd- fellow-stúkunni Þorkeli Mána nr. 7. Andrés verður jarðsunginn frá Lindakirkju í dag, 14. júlí 2022, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku hjartans kæri pabbi minn. Þá er líknin komin eftir nokkurra vikna legu, þá fékkstu hvíldina. Það er margs að minnast, þú varst góður faðir og alltaf til í að gera það besta fyrir mig. Ég fékk að fara í ballett í fjölda ára og þú sást til þess að ég færi til Bandaríkjanna sem skiptinemi, það var ógleyman- leg reynsla og þar lærði ég alla enskuna mína. Þú vannst mikið alla tíð og við systkinin sáum þig ekki mikið, en þegar þú hættir að vinna fór ég að kynn- ast þér. Við urðum mjög góðir vinir til æviloka. Pabbi minn, þú byggðir hús í Kópavogi án þess að eiga bíl og í leiguhúsnæði með sjö manna fjölskyldu og allt farið í strætó með verkfærin og mamma með kjötsúpuna og fleira matarkyns og Jón yngsti bróðir bílveikur, þvílík seigla og dugnaður og við reyndum öll að hjálpast að. Þú fékkst fyrsta bílinn í Hraun- tungu 11, Ford Taunus 12M, ég man þetta svo vel. Þið mamma voruð samstíga og áttuð gott hjónaband og við systkinin áttum góða æsku, þar fékk ég grunninn minn sem hefur hjálpað mér í lífsins ólgu- sjó. Þú varst orðinn 97 ára, sem er hár aldur enda þráðir þú hvíldina saddur lífdaga. Í bana- legunni sagðir þú mér oft hvað þér þætti vænt um okkur öll. Þú varst mikill fjölskyldufaðir og þið mamma sköpuðuð okkur öllum yndislegt heimili í Hrauntungu 11. Elsku pabbi minn, ég hef alltaf verið svo stolt af þér og þakka allt það góða sem þú hef- ur kennt mér og sýndir mér. Elsku pabbi minn, núna ertu búinn að hitta mömmu, Gumma og Jón. Takk fyrir allt. Þín elskandi dóttir, Ásta. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Elsku pabbi. Ég kynntist þér ekki af al- vöru fyrr en ég varð orðinn stálpaður drengur því það var alltaf þitt hlutverk að sjá fyrir heimilinu, sjá fyrir stóru fjöl- skyldunni sem við vorum. Hús- bóndi sjö manna fjölskyldu er ekkert lítið hlutverk og því sinntir þú einstaklega vel. Vannst myrkranna á milli til að sjá til þess að hægt væri að byggja hús og að til væri mat- ur á borðum. Ekki einungis sinntir þú þessum grunnþörf- um heldur sástu til þess að til væri fjármagn til að veita draumum barna þinna byr undir báða vængi, hvort sem það voru kaup á fyrsta bílnum eða að fara út sem skiptinemi. Þegar ég lenti í einhverjum vandræðum, þá hikaðir þú aldrei við að stökkva til og veita mér þann stuðning sem ég þurfti. Ég er því þakklátur að hafa fengið að kynnast þér betur síðustu sex ár. Þú hafðir þá skoðun að það væri hægt að rekja allar ættir vestur og að vera að vestan væri best. Aðaláhugamálið þitt var ættfræði og það var ekki sá maður sem hitti þig sem þú spurðir ekki hverra manna hann væri. Sami maður hefði getað hitt þig 20 árum síðar og þú gast talið upp alla ættar- söguna eins og þér hefði verið sagt frá henni deginum áður. Svo minnugur varstu. Það er ekki hægt að segja að þú hafir fengið áhyggju- laust eða áfallalaust ævikvöld en það er okkur huggun að mamma, Jón og Gummi taki á móti þér með brúntertu og mjólkurglasi. Þar til síðar kæri pabbi. Þinn sonur Andrés. Andrés Þ. Guðmundsson ✝ Bergþór Sig- urður Atlason fæddist í Reykjavík 30. júní 1948. Hann lést á heimili sínu 14. júní 2022. Útför Bergþórs hefur far- ið fram frá Foss- vogskapellu í Reykjavík, 6. júlí 2022, í kyrrþey. Foreldrar Berg- þórs eru Ragnhild- ur Bergþórsdóttir, fædd á Mos- felli 27. mars 1928, dóttir hjónanna Rögnu Sigríðar Ingi- bjargar Björnsdóttur, f. 22. júlí 1899, d. 21. júní 1976, og Berg- þórs Njáls Magnússonar, f. 29. ágúst 1900, d. 5. september 1990, og Atli Hólm Elíasson, f. 11. apríl 1926, d. 16. nóvember 2009, son- ur hjónanna Elíasar Hólm Finns- sonar, f. 26. nóv. 1894, d. 13. ágúst 1960, og Guðrúnar Sigurð- ardóttur Hólm, f. 21. september 1902, d. 4. nóvember 1984. Bergþór var næstelstur fimm systkina. Elst er Bjarghildur Atladóttir, f. 28. september 1946, Margrét Atladóttir, f. 27. nóv- ember 1949, Ragna Guðrún Atla- dóttir, f. 29. janúar 1953, d. 15. nóvember 2018, og Valdís Atla- Rán, f. 26. júní 2011 og Logi Christian f. 17. ágúst 2014. Eleonora Bergþórsdóttir, f. 30. ágúst 1983, í sambúð með Jó- hannesi Frey Þorleifssyni, f. 12. mars 1979, börn þeirra eru Ylfa Guðrún, f. 17. janúar 2016, Berg- þór Atli, f. 22. febrúar 2018, og dóttir, f. 26. maí 2022. Í maí 2013 kvæntist Bergþór Írisi Elvu Har- aldsdóttur, f. 22 maí 1963. Þau slitu samvistir. Bergþór eyddi æskuárunum í Reykjavík en bjó síðar um árabil á Siglufirði með eiginkonu sinni Guðrúnu og börnum. Þau hjónin ráku verslunina Ögn á Siglufirði. Bergþór var einnig sérmennt- aður loftskeytamaður og byrjaði starfsferilinn á togara í þrjú ár, árið 1972 fór hann að vinna á strandastöðinni á Siglufirði. Hann starfaði hjá Landssímanum á strandastöðvum Pósts og síma á Siglufirði og í Vestmanna- eyjum í 32 ár. Hann vann hjá Landhelgisgæslunni frá 2005 og var síðasti starfsmaður Land- helgisgæslunnar sem var mennt- aður loftskeytamaður. Bergþór sinnti í tæplega hálfa öld örygg- ismálum sæfarenda við Íslands- strendur. Síðustu árin af starfs- ferlinum vann Bergþór í Reykjavík og þegar hann lét af störfum voru þau orð látin falla að verið væri að kveðja „góðan félaga og ötulan starfskraft“. Bergþór var mikill áhugamaður um sjávarútvegsmál. Útför hans fór fram í kyrrþey. dóttir, f. 18. febrúar 1959. Bergþór eign- aðist með Unni Sig- urðardóttur, f. 2. júní 1949, soninn Sigurð Bergþórs- son, f. 18. maí 1968, d. 13. september 2018. Eiginkona Sigurðar var Herdís Stephensen, f. 25. mars 1972, sonur þeirra er Ingvar, f. 15. ágúst 1997. Í júlí 1972 kvæntist Berg- þór Guðrúnu Hjörleifsdóttur, f. 9. september 1953, d. 13. febrúar 2012. Þau skildu árið 1987. Guð- rún og Bergþór eignuðust þrjú börn. Þau eru: Ragnhildur Berg- þórsdóttir, f. 18. maí 1971, eig- inmaður Sigurbergur M. Ólafs- son, f. 16. desember 1966, börn þeirra eru Hekla Mekkín, f. 12. júlí 1992, í sambúð með Marcus Johansson, f. 17. febrúar 1993, dóttir þeirra er Ragnhildur Freyja Lilly f. 16. maí 2021, Hlynur Snær, f. 20. júní 2002 og Sindri Freyr, f. 9. júní 2009. Atli Bergþórsson, f. 20. júní 1973, fyrrverandi eiginkona Atla er Sólrún Helga Örnólfsdóttir, f. 1. júlí 1981, börn þeirra eru Alísa Elsku pabbi, ég hefði ekki getað verið heppnari með pabba. Fyrstu minningarnar eru frá Siglufirði þar sem þú vannst á loftskeytastöðinni og ég var ekki meira en lítil hnáta þegar ég fékk að sitja hjá þér og hlusta á þegar þú talaðir við „skip- in“. Toppurinn á tilverunni var að fá að fara út í Lillusjoppu og kaupa prins pólo og litla kók og hafa „mini-partí“ með þér á stöðinni áð- ur en ég færi heim yfir götuna, ekki langt að fara, en þú sást alltaf til þess að ég kæmist örugg heim. Annað sem kemur sterkt upp í minningunni eru ferðir okkar til ömmu Ragnhildar og afa Atla til Reykjavíkur á haustin. Það voru langar ferðir enda vegir torfærir og bílarnir ekki eins og í dag, en ekkert var gefið eftir. Eftir margra klukkutíma ferðalag og stopp í Staðarskála, pylsu og kók, og stundum pínu dytt við bílinn, kom- umst við á leiðarenda og þá varð kátt í Hvassaleiti. Þú hefur reynst mér og minni fjölskyldu ómetanlegur stuðningur þegar á móti hefur blásið og staðið vaktina með okkur í Gautaborg, í orðsins fyllstu merkingu, takk elsku pabbi. Sindri Freyr, yngsti sonur okkar hjóna sat ekki sjaldan með þér þegar hann var lítill og fékk lánuð gleraugun þín til að lesa fréttablöðin með þér… pínu fyndið því hann var ólæs og þú sást nú ekki mikið gleraugnalaus! Þú hefur líka opnað heimilið fyrir barna- börnunum og þau elstu, Hekla Mekkín og Hlynur Snær, hafa fengið að koma og vera ein með afa í afadekri, bara yndislegt. Þú ert einn jákvæðasti og hjálpsamasti maður sem ég hef kynnst og án efa sá örlátasti því alltaf gastu gefið með þér. Einn atburður er mér í fersku minni þegar þú misstir af rútunni frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar og varðst að taka leigubíl yfir til Malmö til að ná rút- unni þar. Það er ekki ódýrt og margir hefðu nú barmað sér en þú varst nú ekkert að gráta þá pen- inga því það kom í ljós að leigubíl- stjórinn, sem var mjög ánægður með að fá keyrsluna, var átta barna faðir og það geislaði af þér gleðin yfir að hafa getað glatt leigubíl- stjórann. Þú varst ótrúlegur! Ég veit að þú ert í Sumarland- inu núna og að þér líður vel. Ég veit líka að þú heldur áfram að vaka yfir okkur og það gleður mig. Farðu í friði elsku pabbi… „svo vöknum við með sól að morgni“. Þín dóttir, Ragnhildur. Elsku pabbi, þú gafst mér svo margt og varst mér svo mikilvæg- ur. Það er sama hvað ég tók mér fyrir hendur þú varst ævinlega svo jákvæður og stoltur af mér. Ég á svo margar góðar minn- ingar af okkur saman, sumrin og páskarnir í Eyjum, dögum varið á loftskeytastöðinni, heimsóknir í vaktafríum og ófáir bíltúrarnir. Að ógleymdum öllum símtölunum frá þér hvert sem ég flakkaði um heiminn. Alltaf að tékka á litla ör- verpinu. Síðustu árin standa svo upp úr minningar með börnunum mínum, áhugi þinn á því sem þau voru að bardúsa, spjall með afa yfir kexi og djús og öll hjálpin sem þú veittir okkur Jóhannesi. Ég er svo glöð að þú náðir þessum dýrmæta tíma með þeim. Afi Beggi var best- ur. Þegar ég minnist þín þá stendur upp úr umhyggja þín fyrir öðrum og gjafmildi. Þú vildir allt fyrir aðra gera en ekkert láta hafa fyrir þér. Þú varst alltaf fyrsti maður til að rétta fram hjálparhönd þegar á þurfti að halda. Þú sást líka iðulega það góða í öðru fólki og fannst já- kvæða punkta við hvers kyns að- stæður. Eftir spjall við þig þá litu hlutirnir hreint ekki svo illa út. Þá varstu skemmtilega þrjóskur og gerðir í ófá skiptin grín að sjálfum þér þegar þú varst búinn að bíta eitthvað í þig. Þér varð ekki hagg- að. Það var áberandi hvað við fjöl- skyldan vorum þér dýrmæt og þú gafst okkur systkinunum og barna- börnum alla þína athygli og tíma. Mér leið eins og við værum það mikilvægasta í þessum heimi. Við gátum alltaf reitt okkur á pabba, klettinn okkar, sama hvað. Vænt- umþykja þín og stuðningur var takmarkalaus, eitthvað sem ég tek mér til fyrirmyndar gagnvart mín- um börnum. Sakna þín pabbi minn. Hvíldu í friði. Þín dóttir, Eleonora. Elsku Beggi frændi er fallinn frá. Það vakna svo margar minn- ingar um þennan yndislega frænda minn. Alla tíð var svo gaman að spjalla við hann um heima og geima. Hann var einstaklega vel inni í sam- félagsmálunum og hafði sterkar skoðanir á alls konar hlutum. Oft gátu umræðurnar farið í ýmsar heimspekilegar áttir sem glæddi fjölskylduboðin lífi. Bergþór sinnti stórfjölskyldunni vel og vildi vera til staðar til að samgleðjast okkur af hinum ýmsu tilefnum. Minnist ég fermingar dóttur minnar í apríl þar sem hann lét sig ekki vanta þrátt fyrir að heilsan væri ekki upp á sitt besta. Bergþór var menntaður loft- skeytamaður og vann síðast hjá Landhelgisgæslunni. Ég minnist þess hve mikilvægt honum fannst að halda áfram að taka næturvakt- ir svo ungu mennirnir með börnin gætu frekar tekið sér frí. Ég heyrði líka reglulega sögur af honum frá fyrri tíð þar sem hann stóð ávallt með þeim sem hallaði á. Þetta lýsir honum vel enda var hann alltaf að hugsa um hag annarra, ekki síst ef eitthvað bjátaði á. Það sem stóð alla tíð upp úr hjá Bergþóri var að vera til staðar fyrir sína nánustu fjölskyldu. Það fór aldrei fram hjá neinum hve stoltur hann var af börnum sínum og af- kvæmum þeirra. Elsku amma, Atli, Eleonora, Ragnhildur og aðrir nákomnir. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Mikill er missir ykkar enda var Bergþór yndisleg- ur sonur, pabbi, afi og nú síðast langafi. Við vitum að það hefði ver- ið hans heitasta ósk að halda heilsu og fylgja fjölskyldum ykkar eftir lífsins vegi; þið voruð honum allt. Minningin um Bergþór mun áfram lifa í hjörtum okkar allra. Okkar dýpstu ástarþakkir öll af hjarta færum þér. Fyrir allt sem okkur varstu, yndislega samleið hér. Drottinn launar, drottinn hefur dauðann sigrað, lífið skín. Hvar sem okkar liggja leiðir, lifir hjartkær minning þín. (Höf. ók.) Karen Bragadóttir. Bergþór Sigurður Atlason Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SYLVÍU ÓLAFSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Tjörn, Þingeyri, áður Fjarðargötu 49, Þingeyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Tjörn fyrir einstaka umönnun, vináttu, velvild og hlýju. Ólafur Bjarnason Gerður Matthíasdóttir Einar Bjarnason Alda B. Indriðadóttir Kjartan Bjarnason Sesselja Bernódusdóttir Elinborg Bjarnadóttir Valgeir Jónasson Gróa Bjarnadóttir Kristbjörg Bjarnadóttir Sævar Gunnarsson Símon Georg Bjarnason Sólveig Halla Hallgrímsdóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Kæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ARNLAUGUR KRISTJÁN SAMÚELSSON, lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. júlí klukkan 11. Þuríður Jana Ágústsdóttir Ágúst Kristinn Arnlaugsson Harpa Björgvinsdóttir Kristín S. Arnlaugsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, áður til heimilis að Skildinganesi 8, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. júlí klukkan 13. Katla Steinsson Ársæll Þorsteinsson Hanna Lára Steinsson Kristján Jóhann Steinsson Andri Snær Ársælsson Anna Sjöfn Ársælsdóttir Haukur Þorsteinsson Kristmann Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.