Morgunblaðið - 14.07.2022, Page 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
✝
María Jakobs-
dóttir fæddist í
foreldrahúsum á
Kárastíg 5 á Hofs-
ósi 24. október
1954. Hún lést í
faðmi fjölskyld-
unnar á Landspít-
alanum í Fossvogi
24. júní 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Sóley
Magnea Marvins-
dóttir, f. 24.6. 1933 á Enni á
Höfðaströnd, d. 20.8. 2012, og
Jakob Sigmarsson, f. 25.2. 1928
á Þverá í Hrolleifsdal, d. 7.4.
1996.
Systkini Maríu eru Kristjana
Sigríður, f. 13.5. 1951 og Stefán
Ómar, f. 11.11. 1960.
Karl, f. 20.10. 1975, kvæntur
Ruth Kristjánsdóttur, f. 7.8.
1970. Börn þeirra eru: a) Krist-
ján Jay, f. 1993 og b) Bjarni Már,
f. 2002. 3. Ástríður Kristín, f.
28.4. 1983, sambýlismaður
hennar er Rúnar Sæmundsson,
f. 1979.
María gekk í Öldutúnsskóla
og Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Eftir að hún lauk grunnskóla-
göngu hóf hún störf hjá Sjóla
HF, og eftir það lá leið hennar
til Pósts og síma þar sem hún
vann í nokkur ár. Mestan hluta
starfsævinnar vann hún við
umönnunarstörf, m.a. í Sunnu-
hlíð í Kópavogi í 20 ár.
María elskaði að ferðast og
voru þær margar utanlands-
ferðirnar sem hún fór í með vin-
um og fjölskyldu. Hún hafði
einnig áhuga á hannyrðum,
þ. á m. postulíni, og að mála og
sauma myndir.
Úför Maríu fer fram frá
Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði í
dag, 14. júlí 2022, kl. 11.
María giftist eft-
irlifandi eigin-
manni sínum,
Bjarna Ragnari
Magnússyni, f. 28.9.
1951, þann 5. júlí
1975 í Reykjavík.
Foreldrar hans eru
Stefanía Lóa Val-
entínusdóttir, f.
17.6. 1932 og Magn-
ús Karl Líndal Þor-
steinsson, f. 28.6.
1923, d. 5.9. 1954.
María og Bjarni eignuðust
þrjú börn: 1. Sólberg Svanur, f.
17.11. 1971, kvæntur Ástu Björk
Árnadóttur, f. 29.9. 1972. Börn
þeirra eru: a) Andri Þór, f. 1997,
b) Hilmar Þór, f. 2001 og c)
Hlynur Rafn, f. 2010. 2. Ástþór
Það er í dag sem ég geng með
þér síðasta spölinn hjartans Maja
mín. Fyrir rúmum fimmtíu árum
byrjaði samleið okkar sem var
einstaklega góð og falleg. Við vor-
um ekki bara hjón við vorum
miklir vinir. Allar ferðirnar okkar
saman bæði í sumarbústað og er-
lendis voru alltaf svo skemmtileg-
ar. Við vorum líka svo heppin að
eignast þrjú börn og fimm barna-
börn sem þú elskaðir mikið og
vildir gera allt fyrir. Þú lýstir upp
líf mitt og lést blómin brosa með
hnyttnum svörum og skemmti-
legum húmor. Minningar um þig
munu ylja mér um ókomin ár. Ég
elskaði þig og kveð þig í bili hjart-
ans Maja mín, þú varst og verður
alltaf stóra ástin í lífi mínu. Við
sjáumst seinna í Sumarlandinu
fagra. Takk fyrir að ganga með
mér þann veg sem við gengum
saman hjartans fallega perlan
mín.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg
og myndir horfinna daga
þá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ókunn.)
Eins og hörpustrengur er hjarta mitt
þegar ég hugsa um brosið þitt
eins og fallegur dagur sem kemur
og fer
lýsir stjarna þín allt, upp hjá mér.
(Höf. Solla Magg.)
Þetta er kveðjan mín til þín
elsku hjartans Maja mín.
Þinn,
Bjarni.
Elsku fallega mamma mín!
Það er ólýsanlega erfitt að sit-
jast niður þar sem tárin streyma
niður kinnarnar til þess að skrifa
kveðju til elsku fallegu, bestu og
yndislegustu mömmu í heimi.
Mamma var búin að vera inn
og út af spítala síðustu ár út af
sýkingum og hefur farið inn í
nokkra daga og komið svo heim,
ekki hvarflaði það að mér að
þetta myndi enda svona að hún
kæmi bara ekki meira heim, því
hún sagði alltaf við mig þegar
hún fór inn á spítala að hún væri
með níu líf eins og kötturinn.
Elsku besta yndislega
mamma mín, ég er ekki að trúa
því að þú sért farin frá okkur, þú
varst alltaf svo góð við okkur alla
tíð og gerðir allt fyrir okkur. Við
eigum svo margar, ótal, minning-
ar saman og ég veit hreinlega
ekki hvar ég á að byrja. Þú elsk-
aðir að ferðast og fórum við
nokkrar ferðinar til útlanda,
bæði í sólina og svo ógleyman-
legu fótboltaferðirnar okkar og
ekki má gleyma búðunum þar
sem þú sagðir mér að kaupa hitt
og þetta og við komum svo heim
með nokkrar ferðatöskur fullar
af fötum. Þú sem hafðir engan
áhuga á fótbolta og horfðir aldrei
á hann heima, en það sem þú
elskaðir að fara út á leik, þú varst
ekkert að fylgjast með leiknum
heldur elskaðir þú að horfa á
fólkið í kringum þig og sætu fót-
boltakallana með síða hárið.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
mig þegar ég þurfti á þér að
halda og þú varst alltaf sú fyrsta
sem kom þegar eitthvað bjátaði
á. Við áttum kannski ekkert skap
saman þegar ég var yngri en
núna í seinni tíð er ég óendanlega
þakklát fyrir það hvað sam-
bandið okkar var gott og fallegt.
Við gátum talað um allt og þú
varst svo glöð þegar ég var kom-
in með kærasta. Við vorum nú
ekki alltaf sammmála þegar við
sáum einhverja sæta stráka en
þarna sagðir þú við mig „Ásta, nú
er ég búin að finna verndarengil-
inn minn“.
Síðasta sumar var ógleyman-
legt þar sem þig langaði svo að
fara til Akureyrar og við gerðum
það að veruleika og fórum norður
í viku, fengum æðislegt veður,
gott að borða og kíktum í búðir
eins og þér fannst svo gaman.
Nú langar mig að þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig, ég get aldrei þakkað þér
nógu mikið fyrir allt. Þú barðist
alltaf eins og hetja og varst alltaf
svo sterk og þegar ég grét yfir
þér sagðir þú við mig: „Elsku
Ásta mín hættu nú að gráta, við
förum í gegnum þetta saman.“
Þú varst alltaf svo jákvæð en
gast verið ótrúlega þrjósk inn á
milli og þegar eitthvað þurfti að
gera þá þurfti það að gerast
núna.
Mig langar að enda þetta á því
að þakka þér fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig, ég mun
geyma allar minningarnar okkar
í hjarta mínu, ég mun passa vel
upp á pabba fyrir þig. Þú átt fast-
an stað í hjarta mínu, elsku fal-
lega mamma mín.
Þín dóttir,
Ástríður Kristín.
Elsku mamma mín er fallin frá
67 ára að aldri. Þín verður sárt
saknað, elsku mamma mín. Þú
varst frábær móðir og minning-
arnar eru ótalmargar sem við átt-
um saman. Allar ferðirnar sem
við fórum norður á Uppsali og í
Sandfell á heimaslóðir þínar. Ég
man líka eftir því þegar mig vant-
aði smá klink til að fara í sjoppuna
eða bakaríið, þá gat ég alltaf farið
í veskið þitt og fengið smá pening
fyrir því og aldrei sagðir þú orð
enda hafði ég grun um að þú
skildir pening eftir vísvitandi
handa okkur systkinunum til að
ganga í, enda vildir þú allt fyrir
börnin þín gera. Allar utanlands-
ferðirnar okkar sem við fórum í
saman, þar á meðal til Þýska-
lands sem þú elskaðir svo mikið,
Spánar og Englands þar sem við
fórum tvisvar á fótboltaleik. Þú
hafðir engan áhuga á fótbolta en
gast dáðst að leikmönnunum því
þér fannst þeir svo sætir eða sér-
staklega einn, hann David Ginola
eða Gingóla eins og þú kallaðir
hann alltaf.
Árið 2001 eða í júlíbyrjun fór
ég í Þórsmörk með hóp af fólki og
stelpu sem ég hafði verið að hitta
og leist vel á, en í dag er hún eig-
inkona mín. Á sunnudeginum
ákvað ég að hringja í mömmu og
pabba til að spyrja hvort ég mætti
ekki bjóða stelpunni í mat til
þeirra sem var alveg sjálfsagt. Er
þangað var komið beið okkar læri
með öllu tilheyrandi og mamma
himinlifandi að fá loksins að hitta
hana Ruth, en á sama tíma var
hún mjög stressuð og hafði orð á
því að hún hefði ekki haft tíma til
að strauja dúkinn sem var á borð-
inu. Allar ferðirnar sem þú komst
til okkar í heilan mánuð til þess að
passa hann Bjarna Má okkar sem
var fótbrotinn heima svo við gæt-
um stundað okkar vinnu. Alveg
einstök amma. Þú tókst líka hon-
um Kristjáni mínum eins og einu
af þínum barnabörnum. Síðustu
tvö ár hafa verið þér mjög erfið
vegna veikinda en alltaf sagðist
þú vera með níu líf eins og kött-
urinn. En þann 24. júní tóku þau
enda því miður. Þvílíkri baráttu-
konu hef ég ekki kynnst, hún var
líka svo sterk.
Elsku pabbi minn, þú ert líka
sterkur og ert búinn að vera eins
og klettur við hlið mömmu í veik-
indum hennar.
Mamma, þú varst einstök, hlý,
óeigingjörn, gjafmild og frábær
mamma og amma.
Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund
og fagnar með útvaldra skara,
þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver
und.
Hve gott og sælt við hinn hinsta blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Takk fyrir allt og hvíldu í friði.
Sjáumst í sumarlandinu.
Þinn sonur,
Ástþór Karl
Bjarnason.
Elsku tengdamamma mín er
látin eftir erfið veikindi.
Þú sem varst eins og köttur-
inn, áttir þér níu líf því alltaf
steigst þú upp aftur hversu veik
sem þú varst, en í þetta skiptið
þurftir þú að láta í minni pokann.
Mikið þótti mér leitt að geta ekki
kvatt þig þar sem ég var stödd
erlendis en þú lést þegar ég var á
heimleið, en ég veit og trúi því að
ég muni hitta þig á ný þegar minn
tími kemur, elsku Mæja mín.
Ég er búin að vera svo lánsöm
að hafa þekkt þig í 21 ár. Alveg
frá okkar fyrstu kynnum hefur
þú tekið mér alveg einstaklega
vel og honum Kristjáni mínum.
Við urðum strax partur af fjöl-
skyldunni eftir okkar fyrsta hitt-
ing. Ekki leiddist ykkur heldur
eftir að Bjarni Már kom í heim-
inn sem var ömmu og afa sjúkur.
Hann vildi alltaf vera hjá ykkur
enda fékk hann nánast allt sem
hann bað um. Þú varst einstök
tengdamamma sem hafði óbil-
andi trú á mér. Elskaðir allt sem
ég eldaði og já bakaði líka. Þú
treystir mér til þess að klippa þig
þó að ég treysti mér varla sjálfri í
það verkefni. Takk fyrir allar bú-
staðarferðirnar, Akureyrar-
ferðirnar og utanlandsferðirnar
sem við fórum í en í þeim á ég
hafsjó af minningum. Ég veit að
þessi síðustu tvö og hálfa ár hafa
verið þér einstaklega erfið en þú
hélst ótrauð áfram og varst von-
andi sátt þegar yfir lauk.
Elsku Bjarni minn, þú hefur
verið einstakur í þessum veikind-
um Mæju okkar. Hefur alltaf
borið hag hennar fyrir brjósti og
hugsað einstaklega vel um hana
síðastliðin 9 ár eða í hennar veik-
indastríði.
Fallið lauf
eftir sit ég hljóð
tárin falla.
Ég stari í kertalogann
það er þögn í hjarta mínu
ég bið
í hljóðri bæn
bið fyrir þér.
Eitt skarð enn er hoggið.
Ég rétti fram hönd mína.
Kveiki á kertum
horfi í logann.
Hugsa í þögninni.
Enn og aftur
falla tárin.
Allt er hljótt.
Eitt lauf enn
hefur fallið
af fallega trénu.
(Solla Magg)
Takk fyrir að vera yndisleg
tengdamamma og amma
Ruth Kristjánsdóttir.
Falleg Rós liggur við veginn
eitt og eitt rósablað fýkur burt
og kemur ekki aftur
eins og lífið sem kveður
þá vaknar nýtt líf að vori
og önnur falleg Rós
lítur dagsins ljós.
(Solla Magg.)
Það eru komin leiðarlok og
minningar liðinna ára koma fram
í hugann og eitt og eitt tár læðist
niður kinn og hugurinn reikar
aftur í tímann. Mig langar að
minnast mágkonu minnar í örfá-
um orðum. Þann 24. júní kvaddi
Maja mágkona mín þessa veröld
eftir erfið og langvinn veikindi.
Hún er lögð af stað í Sumarlandið
þar sem hefur verið tekið vel á
móti henni. Maja átti það til að
vera hnyttin í svörum og átti
mörg gullkorn sem féllu í góðan
jarðveg. Hún var einstaklega
barngóð og elsk að sínu fólki og
þegar hún hafði heilsu og getu til
þá var hún alltaf til í rétta fram
hjálparhönd. Maja og Bjarni
voru búin að vera saman í rúm-
lega fimmtíu ár. Þau voru ham-
ingjöm hjón og afar samrýmd og
elsk að hvort öðru. Það er stórt
skarð höggvið hjá bróður mínum
við að missa Maju sína sem var
stóra fallega rósin og ástin í lífi
hans. Bjarni hjúkraði Maju af
mikilli ást og umhyggju þar til yf-
ir lauk. Takk fyrir öll árin, elsku
Maja mín, og takk fyrir okkar
kynni. Guð blessi ferðina þína í
Sumarlandið þar sem við hitt-
umst einhvern daginn.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki
var gjöf sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum
er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku bróður mínum, börnum,
barnabörnum og tengdabörnum
votta ég mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning þín, elsku
Maja mín.
Sólveig Sigríður Magn-
úsdóttir (Solla Magg).
María
Jakobsdóttir
✝
Jan Petter
Rød fæddist á
Vestfold í Noregi
13. júní 1932.
Hann lést 22. júní
2022.
Eftir nám í Nið-
arósi og Cam-
bridge stundaði
hann fyrirtækja-
rekstur, einkum á
sviði flutninga og
alþjóðaviðskipta.
Hann studdi rækilega við
margvísleg verkefni sem hann
bar fyrir brjósti, svo sem
björgun Vasa-
skipsins í Svíþjóð,
kennslu í norrænu
við Cambridge-
háskóla og upp-
byggingu Reyk-
holtskirkju í Borg-
arfirði.
Jan Petter lætur
eftir sig fjögur
börn, auk barna-
barna. Ekkja hans
er Alison Kerr.
Útför hans verður gerð frá
Tjøme-kirkju á Vestfold í dag,
14. júlí 2022.
Í dag verður borinn til moldar
frá Tjøme-kirkju í Noregi Jan
Petter Rød, mikill vinur og vel-
gjörðamaður Reykholtskirkju.
Hann lézt á heimili sínu á Möltu
22. júní sl. níræður að aldri.
JP eins og hann var jafnan
nefndur var borinn og barn-
fæddur á Vestfold, af bændum
og sjósóknurum kominn. Hann
lauk námi í skipaverkfræði við
Tækniháskólann í Niðarósi með
láði og stundaði framhaldsnám
við Cambridge-háskóla í Bret-
landi að því loknu. Sjálfur sagð-
ist hann jafnan hafa haft meiri
áhuga á að lifa lífinu en sitja yfir
fræðum en það sannaðist á hon-
um að þetta getur farið vel sam-
an, enda náði hann frábærum
tökum á hvoru tveggja. Ein-
kunnarorð hans voru: „You
learn, you earn, you return“;
menn læra, afla og láta gott af
sjer leiða.
Hann stofnaði eigið fyrirtæki,
J.P. Roed & Partners í Ósló, um
ráðgjöf og sjóflutninga heima og
heiman. Á 8. áratug síðustu aldar
flutti hann sig til Singapúr og
eignaðist fyrsta skipið sitt,
Cherry Java, sem hann hafði í
flutningum milli Singapúr og
Indónesíu. Innan skamms rjeði
hann yfir vaxandi skipaflota á
heimshöfunum á vegum fyrir-
tækis sín, Norse Management
Co Pte Ltd.
Hann vann fyrirtækjum sín-
um til dánardags, sívökull yfir
hvers kyns nýjungum og tæki-
færum á ýmsum sviðum, svo sem
flutningum, hagnýtingu jarð-
varma og varðveizlu orku. Þann-
ig las hann t.d. um viðbrögð
Vestmannaeyinga við gosinu og í
framhaldi af því hagnýtingu á
varmaorku í hrauninu. Eftir það
hóf hann að beizla jarðhita í
BNA. Hann fékkst síðan við
orkuöflun og miðlun auk skipa-
útgerðar, síðustu árin búsettur á
Möltu. Þaðan rak hann fyrirtæki
sín víða um lönd en var ávallt
Norðmaður.
JP var mikill áhugamaður um
alla sögu, einkum norrænna
manna. Hann var þaullesinn,
ekki sízt í verkum Snorra Sturlu-
sonar. Sagan var honum hagnýt
fræði, sem hann taldi gagnast
sér á vettvangi dagsins. Ekki sízt
hafði hann af henni leiðsögn um
viðskipti og framkomu við þá
„útlendinga“ sem hann átti við-
skipti við, kynnti sér jafnan sögu
þeirra og menningu og hagaði
allri framkomu í samræmi við
það. Því gat hann sér mikillar
virðingar og trausts víða um
lönd; innsæi hans var með ólík-
indum.
Jan Petter Rød var siglinga-
maður í fremstu röð í flokki
IOD-siglinga, sigursæll í kapp-
siglingum í Noregi og víðar á
manndómsárum sínum. Hann
átti skemmtiskip, Sundene, sem
hann hafði sér til dægradvalar á
Miðjarðarhafinu, enda leið hon-
um hvergi betur en á sjó.
Hann var velgjörðamaður
víða. Þannig kostaði hann um
árabil kennslu í norrænu við þá
deild Cambridge-háskóla sem
fæst við engilsaxnesk fræði og
tungumál á Bretlandseyjum.
Kirkjuna í Reykholti styrkti
hann af rausn: Kostaði krossinn
framan við kirkjuna og allan
búnað í turni auk nýrrar klukku.
Jan Petter Rød hlotnuðust
ýmsar viðurkenningar fyrir verk
sín. Bar hann m.a. riddarakross
hinnar íslenzku Fálkaorðu og
var riddari af sænsku Norður-
stjörnunni.
Jan Petter var mikill fjöl-
skyldumaður. Vinir hans og
vandamenn víða um lönd minn-
ast hans með virðingu og geyma
minningu um góðan dreng sem
nú er Guði falinn með þökk fyrir
hann.
Geir Waage og Dagný
Emilsdóttir í Reykholti.
Jan Petter Rød
Öðlingurinn
GUNNAR HÉÐINN KRISTJÁNSSON
frá Einholti
lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í
Borgarnesi 27. júní. Hann var jarðsunginn
við fallega athöfn í Bræðratungukirkju 5. júlí.
Einlægar þakkir færum við starfsfólki Brákarhlíðar, fyrir einstaka
umönnun, fagmennsku og hlýju.
Haraldur Kristjánsson
Kristín Kristjánsdóttir
Margrét Ragnarsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SOFFÍU STEFÁNSDÓTTUR
íþróttakennara,
Árskógum 8, Reykjavík.
Svana Pálsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Soffía Pálsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn