Morgunblaðið - 14.07.2022, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHRIS
HEMSWORTH
CHRISTIAN
BALE
TESSA
THOMPSON
TAIKA
WAITITI
RUSSELL
WITH CROWE
NATALIE
AND PORTMAN
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR 82%
N
ýsjálenski kvikmyndagerðarmað-
urinn Taika Waititi blés nýju lífi í
ofurhetjuna Þór úr heimi Marvel
með kvikmyndinni Þór: Ragnarök
sem gagnrýnendur sammæltust um að væri
mun betri og skemmtilegri en þær sem áður
höfðu verið gerðar um kappann, tvær talsins.
Sú fyrsta var einhvers konar Shakespeare-
nálgun á hetjuna, þrumuguðinn úr norrænni
goðafræði í hressilegri Marvel-afbökun og
önnur myndin þótti heldur leiðinleg.
Í þeirri þriðju sem Waititi leikstýrði birtist
allt annar Þór, miklu hressari og fyndnari í
meðförum hins íturvaxna Ástrala Chris Hems-
worth. Waititi áttaði sig á því hversu fáránlegt
væri að nálgast Þór í þessari ofurhetjuútgáfu
með alvarlegum hætti og skrúfaði hressilega
frá flippinu. Þór lék á als oddi, reytti af sér
brandara og heimsótti furðulegar plánetur.
Virðist þessi túlkun á hetjunni hafa hentað
Hemsworth mun betur því hann hefur nokkuð
góða tilfinningu fyrir gamanleik.
Það var því mikill fögnuður í herbúðum
aðdáenda Þórs og Waititi þegar greint var frá
því að hann hefði verið fenginn til að leikstýra
fjórðu myndinni um hetjuna, Þór: Ást og
þruma. Nú er hún loksins komin í bíó en olli
rýni því miður dálitlum vonbrigðum því hún er
öllu slakari en Ragnarök. Er þar helst um að
kenna of miklu flippi Waititi og ójafnvægi
gríns og alvöru í handriti. Það virkar beinlínis
furðulegt að hoppa úr atriði þar sem kona ligg-
ur á sjúkrahúsi helsjúk af krabbameini yfir í
geim þar sem öskrandi geitur fljúga með vík-
ingaskip í eftirdragi eftir regnbogavegi.
Guðabaninn Gorr leitar hefnda
Söguþráðurinn er auðvitað óttalegt bull, líkt
og í flestum Marvel-myndum en til að gera
langa sögu stutta segir í myndinni af Gorr
nokkrum guðabana (Christian Bale) sem
ákveður að drepa alla guði eftir að hafa misst
dóttur sína og komist að því að sá guð sem
hann tilbað væri miskunnarlaus og gæfi skít í
dauðlegar verur. Gorr fær sverð eitt svakalegt
til brúks sem drepið getur guðina. Kemur þá
til kasta Þórs og vina hans, valkyrjunnar Val-
kyrju og steinakarlsins Korg (sem Waititi tal-
ar fyrir). Þurfa þau að hafa hendur í hári Gorrs
(sem er reyndar nauðasköllóttur) og bjarga
guðunum. Óvænt birtist Jane Foster (Natalie
Portman), mennsk fyrrum kærasta Þórs, með
Mjölni í hendi og klædd að hætti Þórs með
skikkju og hjálm og allan pakkann. Er ástæða
þess rakin í stuttu máli hvernig hamarinn, sem
Hel braut í mél í Ragnarökum, er aftur orðinn
heill og hlýðir nú aðeins Foster. Ástin kviknar
að nýju með Þór og Foster og gamla góða
klisjan um að ástin sé allt sem þarf fær byr
undir báða vængi eftir því sem líður á mynd-
ina.
Við sögu koma fleiri guðir, m.a. Seifur sem
er spaugilega leikinn af Russell Crowe sem
bætt hefur hressilega á sig. Crowe talar með
hreim sem á líklega að vera grískur og hefur
þessi Seifur meiri áhuga á kynsvalli en hetju-
dáðum. Atriðið þar sem Þór hittir Seif er með
þeim allra furðulegustu í kvikmyndasögu Mar-
vel og er þá mikið sagt.
Öskrandi geitur
Og mörg atriði í myndinni eru þannig, furðu-
leg en þó fyndin og þá einkum vegna þess
hversu fáránleg þau eru. Geitur sem öskra
eins og menn, hvað eftir annað, falla í þann
flokk, svo eitt dæmi sé tekið og ástarsaga Þórs
og Foster veitir myndinni nauðsynlega hlýju
og mennsku, ef hægt er að tala um mennsku í
kvikmynd um þrumuguð sem flakkar milli
pláneta.
Sú ákvörðun að skella inn í söguna baráttu
Foster við krabbamein og láta hana vera dauð-
vona er hins vegar stórfurðuleg og alltof mikið
drama fyrir allan fáránleikann og flippið. Port-
man er fín leikkona, það hefur hún margoft
sýnt en sagan af hinni helsjúku Foster á bara
heima í allt annarri og jarðbundnari kvik-
mynd. Hinn annars góði dampur sem myndin
var komin á framan af með öllum sínum furð-
um dettur því nokkuð niður eftir miðju þegar
dramað tekur við og endirinn verður að teljast
einkennilega klisjukenndur fyrir Waititi.
Ég hvet aðdáendur Marvel og Þórs engu að
síður til að sjá þessa kvikmynd því hún er auð-
vitað augnayndi og eins og sjá má af kreditlist-
anum má þakka það her karla og kvenna sem
unnu baki brotnu við að búa til hinn tölvugerða
myndheim. Atriði í seinni hlutanum, þar sem
Gorr berst við Þór, Foster og valkyrjuna, er
svarthvítt og með þeim flottari sem sést hafa í
Marvel-mynd. Og ekki sakar að þrumandi
smellir rokkaranna í Guns ’n Roses fá að
hljóma reglulega undir öllum hasarnum.
Niðurstaðan er því sú að hér er mikil ást en
heldur minni þruma.
Mikil ást en minni þruma
Samhent Jane Foster og Þór þrumuguð, leikin af Natalie Portman og Chris Hemsworth, í samstæðum göllum í Þór: Ást og þruma.
Sambíóin, Háskólabíó, Smárabíó
og Laugarásbíó
Thor: Love and Thunder bbbnn
Leikstjórn: Taika Waititi. Handrit: Taika Waititi og
Jennifer Kaytin Robinson. Aðalleikarar: Chris
Hemsworth, Christian Bale, Natalie Portman,
Russell Crowe og Tessa Thompson.
Bandaríkin, 2022. 119 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR