Morgunblaðið - 14.07.2022, Síða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2022
Þín útivist - þín ánægja
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
ARCTIC EXPLORER
göngustafir
Kr. 5.990.-
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
HVÍTANE
Merínó húfa
Kr. 3.990.-
S
LYNG
Kr. 1.5
ullarsokkar
90.-
GRÍMSEY hanska
Kr. 2.990.-
r
HVÍTANES Merino buxur
Kr. 11.990.-
SKERJAFJÖRÐUR
hálfrennd peysa
Kr. 10.990.-
VEIGAR þriggja laga jakki
Kr. 37.990.-
JÖKULSÁ ullarvesti
Kr. 22.990.-
VEIGAR þriggja laga buxur
Kr. 27.990.-
»Hið árlega nautahlaup og hátíð San Fermin
í Pamplona á Spáni fór fram í vikunni og að
vanda voru margir fífldjarfir hlauparar hætt
komnir og sluppu sumir hverjir ekki við horn
óttasleginna nauta. Hátíðinni var kröftuglega
mótmælt af dýraverndarsinnum og að vanda
urðu nokkrir þátttakendur fyrir hornum og
þurftu að fara á sjúkrahús. Hátíðin er engu að
síður mikið sjónarspil, eins og sjá má.
Fífldjarfir hlauparar storkuðu nautum og örlögunum á San Fermin-hátíðinni í Pamplona
Ógnvekjandi Þátttakendur víkja fyrir nauti. Á degi hverjum sem hátíðin stendur yfir er sex nautum sleppt.
Glæsilegir Rauð- og hvítklæddir karlar bíða rólegir eftir nautunum.
Nautaat Manuel Escribano gegnir hinu umdeilda starfi nautabanans
og sést hér glíma við kraftmikinn bola á hátíðinni San Fermin.
Opnunarathöfn Mikill mannfjöldi var viðstaddur setningu hátíðarinnar.
Á spretti Nauti skrikar fótur í beygju í einni af götum Pamplona. Hlaupin er 850 metra leið.
AFP/Ander Gillenea
Hryntregasveitin
Bláa höndin,
skipuð Guðmundi
Péturssyni, Jak-
obi Frímanni,
Einari Scheving
og Jóni Ólafs-
syni, heldur tón-
leika í Máli og
menningu við
Laugaveg í kvöld
kl. 20.30. Kom
hún síðast fram opinberlega á
Blúshátíð Reykjavíkur fyrr á árinu
en fyrstu tónleikar sveitarinnar
voru á sviði Máls og menningar í
fyrra.
„Þótt Missisippi-þelið myndi
grunninn í efnistökum Bláu hand-
arinnar er sjálf efnisskráin um
margt óvenjuleg. Útsetningar og
hljóðheimur vísa m.a. til Delta og
annarra belta á borð við tamla og
fönk. 3/4 hlutar Bláu handarinnar
ábyrgjast að lögin verði vandlega
tónuð á meðan 1/4 sveitarinnar
ábyrgist að hinum rótgrónu takt-
tegundum 3/4 og 4/4 verði gerð við-
eigandi skil.
Þá má reikna með framandlegum
en þokkafullum gestasöngvara er
líða tekur á kvöldið, áður en nokkr-
um völdum gestum gefst kostur á að
stíga á stokk,“ segir í tilkynningu.
Frítt er inn á tónleikana og allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Framandlegir og þokkafullir söngvarar
Guðmundur
Pétursson