Morgunblaðið - 14.07.2022, Blaðsíða 56
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
ALLT AÐ60%
AFSLÁTTUR
– EKKI MISSA AF ÞESSU–
SUMARÚTSALA
BETRA BAKS
25%
AF
RÚMTEPPUM
20%
AF STILLAN-
LEGUM RÚMUM
Einnig til í: 160x200 og 180 x 200 cm.
60%
AFSLÁTTUR
10-40%
AF HEILSUINNISKÓM
EXCLUSIVE TOPPER
Gæsadúnn. 90 x 200 cm.
Verð: 30.900 kr.
Nú 12.360 kr.
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Act alone, elsta leiklistar-
hátíð landins, verður hald-
in á ný og með sama sniði
og á árum áður, dagana
4.-6. ágúst. Síðustu tvö ár
féll hátíðin niður vegna Co-
vid-19 og biðin því orðin
löng. Íslenskir jafnt sem
erlendir listamenn munu
koma fram og bjóða upp á
sýningar frá Bandaríkj-
unum, Danmörku, Para-
gvæ og Ítalíu. Boðið verður
upp á leiklist, dans, tón-
list, ritlist og myndlist,
einnig brúðunámskeið fyrir börn og meistaratíma í leik-
list með bandaríska leikaranum Ronald Rand. Eins og
nafn hátíðarinnar gefur til kynna er einn listamaður á
ferð hverju sinni. Hátíðin fer fram á Suðureyri og er
frítt inn á alla viðburði. Elfar Logi Hannesson er list-
rænn stjórnandi hátíðarinnar.
Hátíðin Act alone snýr aftur í
ágúst eftir tveggja ára Covid-hlé
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Útlit er fyrir hörkuleik milli Íslands og Ítalíu á Evrópumóti
kvenna í fótbolta í dag. Mikið er í húfi, bæði lið stefna á
sæti í átta liða úrslitum, og þá hafa allir leikir liðanna
hingað til verið afar jafnir. Í sjö leikjum þeirra á milli hef-
ur aldrei munað meiru en einu marki en Íslandi hefur þó
aldrei tekist að sigra Ítalíu enn sem komið er. »46
Sjö jafnir leikir Íslands og Ítalíu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
Björn Thoroddsen gítarleikari ætlar
að blása til garðtónleika í garðinum
heima hjá sér nk. laugardag, annað
sumarið í röð. Mun stórskotalið tón-
listarmanna koma saman í garðinum
til að bjóða fólki upp á fría tónleika
þar sem verður rokkað, að sögn
Björns.
Tónleikarnir eru í garði Björns við
Hringbraut 63 í Hafnarfirði á
laugardaginn kl. 15. Hann segir alla
vera velkomna, unga sem aldna, til
að njóta ljúfra tóna svo lengi sem
garðrúm leyfir.
Björn segir garðtónleikana í júlí í
fyrra hafa heppnast mjög vel, ekki
hafi komið annað til greina en að slá
upp annarri veislu. Hann segir það
jafnvel líklegt að garðtónleikarnir
gætu orðið að árlegum viðburði.
„Það var alveg haugur af fólki sem
kom í fyrra og í ár varð ég bæjar-
listamaður í Hafnarfirði. Þess vegna
fannst mér tilvalið að halda þessu
áfram og gera þetta að árlegum við-
burði.“
Stórskotalið úr Hafnarfirði
Björn segir það einkar skemmti-
legt að geta boðið í svona tónleika
frítt og gaman að geta gefið til baka
til Hafnarfjarðar. „Þetta eru æsku-
slóðir mínar, ég fæddist hérna og
ólst upp. Með tónleikunum ætla ég
bara að reyna að þakka fyrir mig,
það er svo gaman að vera bæjar-
listamaður og gefa aðeins til baka.“
Spurður hvort um sé að ræða ástar-
óð til Hafnarfjarðar svarar hann því
játandi.
Björn er mjög ánægður með þá
tónlistarmenn sem munu stíga á svið
með honum í garðinum, segir þá alla
tengjast Hafnarfirði á einn eða ann-
an hátt. „Það eru margir tónlistar-
menn sem búa hérna nálægt og sum-
ir búa í götunni minni,“ segir hann.
Sem dæmi um tónlistarmenn sem
koma að þessum tónleikum með
Birni má nefna Heru Björk, Svavar
Ellertsson, Trausta Harðar og Geira
Óskarsson. „Það gerast allir góðir
hlutir á Hringbrautinni,“ segir hann
kíminn.
Björn reiknar með að geta tekið á
móti um 300 manns í garðinum og
býst því við feiknagóðri stemningu.
Rokk í stíl við Woodstock
„Hér er nóg pláss og garðurinn
hentar einkar vel fyrir tónleika-
hald.“ Hann segir að tónleikarnir
muni verða vísir að tónlistarhátíð og
vísar því til stuðnings til frægrar há-
tíðar frá 1969. „Þetta er bara smá
Woodstock í garðinum heima hjá
mér.“
Björn segir hópinn koma til með
að spila öfluga rokktónlist í garð-
inum.
„Í þetta skipti ætla ég að hafa smá
„ég á þetta, ég má þetta“. Ætla því
að vera í svolítilli nostalgíu og það
verður sko mikið rokkað.“
Hann bætir við að á tónleikunum
muni koma saman strákarnir úr
hljómsveitinni sem Björn byrjaði
með fyrir 50 árum. Verður það í
fyrsta skipti í mörg ár sem sú hljóm-
sveit kemur aftur saman. Björn seg-
ir því um ákveðna endurkomu-
tónleika að ræða.
Býður í Woodstock-
rokk í garðinum heima
- Fjöldi tónlistarmanna kemur saman á fríum tónleikum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Garðtónleikar Björn Thoroddsen gítarleikari með garðinn sinn í bakgrunni
þar sem fram fara garðtónleikar næsta laugardag klukkan 15.
Ljósmynd/Ásta Magg
Árlegt Björn Thoroddsen, lengst til vinstri, að spila á gítar á garðtónleik-
unum sem haldnir voru í fyrra en þá mættu um 300 manns í miklu blíðviðri.