Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 51
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 215 Dagur í lífi framkvæmdastjóra lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri 05:00 Vaknaður á undan klukkunni að venju. Klæði mig og svo göngutúr með Ými (10 ára Labrador). Þessa dagana eru göngutúrarnir í styttra lagi þar sem Ýmir er nýbúinn í aðgerð. Gef honum síðan að borða og fæ mér kaffisopa. 05:50 Mæti í ræktina. Þar hitti ég besta æfingafélagann og við tökum hefðbundna mánudagsæfingu. Á eftir er það heitur pottur, svo kaldur pottur (6 mínútur) og svo nokkrar mínútur í heita aftur. Spjall við pottverja. 07:30 Mættur í vinnuna. Þar sem ég er formaður viðbragðsstjórnar SAk byrja ég á að skoða stöðuna á sjúkrahúsinu með tilliti til fjölda sjúklinga og hversu margir eru inniliggjandi með COVID-19. Helgin hefur greinilega verið annasöm og aldrei fleiri inniliggjandi með COVID. Sendi póst til sóttvarnalæknis og landlæknis með nýjustu tölum. Fer síðan yfir tölvupósta og svara erindum. Á stutt spjall við Hildi- gunni Svavarsdóttur forstjóra um stöðuna og einnig varðandi vinnu við rekstrar- áætlun sjúkrahússins. 09:00 Fundur með forstöðulækni bækl- unarskurðlækninga um stöðu á gerviliða- aðgerðum og hvernig við sjáum vinnast úr málum varðandi biðlista þegar COVID -19 áhrifin á starfsemina fara að dvína. 10:00 Átti fund með forstöðumanni sem boðar forföll vegna veikinda. Nota tím- ann til að svara tölvupóstum, samþykkja reikninga og undirrita ráðningarsamn- inga. 11:00 Viðbragðsstjórnarfundur. Farið er yfir stöðuna á sjúkrahúsinu með við- bragðsstjórninni og forstöðumönnum eininga sem mest mæðir á. Í framhaldi er gefin út tilkynning frá viðbragðsstjórn sem sett er á vefsíður SAk. 11:45-12:00 Stutt matarhlé. Maturinn á sjúkrahúsinu finnst mér frábær og sést best á því að eftir 20 ár er ég ekki orðinn leiður á matnum. Sést líka á mér. 12:00 Held áfram að vinna við að svara tölvupóstum og undirbúa mig fyrir framkvæmda stjórnarfund. 13:00-15:00 Framkvæmdastjórnar- fundur. Fjölþætt dagskrá að venju en mesta púðrið fer í að forgangsraða fjár- munum í tækja- og búnaðarkaup á árinu. Eins og svo oft er ekki hægt að verða við öllum óskum en þarf að vega og meta út frá rökstuðningi forstöðumanna og ramma fjárlaga. Í lok fundar liggur fyrir áætlun í samræmi við fjárveitingu. Nota pásu á fundi til að fara í útvarpsviðtal. 15:20-16:00 Frágangur eftir fund. Samtal við framkvæmdastjóra lyflækn- ingasviðs vegna rekstraráætlunar. 16:20 Kominn heim. Við hjónin spjöll- um um daginn og veginn en einnig hvaða ráðleggingar við fengum frá dýra- lækninum varðandi Ými. Erum líka að skipuleggja helgarferð til London seinna í mánuðinum. Hringi síðan í vin sem er veikur heima með COVID-19. Síðan hef ég samband við systkini mín varðandi af- mæliskvöldverð fyrir föður okkar. Lít yfir fréttamiðla. 19:00 Eiginkonan er á Zonta-fundi í kvöld þannig að ég fæ mér léttan kvöldverð. Kem mér svo vel fyrir og horfi á fótboltaleik í sjónvarpinu og renni yfir samfélagsmiðlana. 21:00 Kvöldganga með Ými. 22:30 Skoða dagskrána hjá mér á morgun og síðan bíður rúmið. Sigurður Einar Sigurðsson Hér er SES sjálfur í sinni stjórnstöð og út um gluggann sést eyrin á Akureyri teygja makindalega úr sér. – Mynd/Unnur Ingibjörg Gísladóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.