Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Síða 3

Læknablaðið - 01.04.2022, Síða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 167 Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, ritstjóri og ábyrgðarmaður Berglind Jónsdóttir Gunnar Thorarensen Hulda María Einarsdóttir Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Lilja Sigrún Jónsdóttir Magnús Haraldsson Ólafur Árni Sveinsson Tölfræðilegur ráðgjafi Sigrún Helga Lund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingar Ingvar Freyr Ingvarsson ingvar@lis.is Umbrot Margrét E. Laxness melax@lis.is Prófarkalestur Aðalsteinn Eyþórsson Upplag 2000 Áskrift 21.900,- m. vsk. Lausasala 2190,- m. vsk. Prentun og bókband Litróf Vatnagörðum 14 104 Reykjavík Dreifing Íslandspóstur Höfðabakka 9 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund- ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna- grunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci- ence Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL „Samanburður við önnur háskólasjúkrahús öskrar á hve illa er stutt við vísindastarf hérlendis,“ segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins: „Vísindastörf skila margfalt því fé sem sett er í þau.“ Undir það tekur Magnús Gottfreðsson, yfirlæknir vísindadeildar Landspítala ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Slæm staða vísinda merki um hnignun Landspítala McKinsey sýni að sérþekkingin sé vannýtt Læknar og hjúkrunarfræðingar hér á landi virðast, í meira mæli en kollegar þeirra á Norðurlöndunum, vinna störf sem krefjast ekki sérþekkingar þeirra. Þetta segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, eftir að hafa rýnt í nýju McKinsey-skýrsluna. Skýrslan staðfesti margt sem læknar hafi bent á. „Við sjáum þar að hver læknir hefur minni aðstoð en gerist erlendis og færri sjúkraliðar eru á hvern hjúkrunarfræðing. Með því að bæta starfsumhverfi þessara stétta og nýta sérhæfða starfskrafta þeirra betur, mætti betur takast á við skort á mannafla í þessum stéttum.“ Áhrifastuðull tilvitnana hjá háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum frá 1999 til 2014 Landspítali Kaupmannahöfn Heimild: Mynd 59 í McKinsey-skýrslu heilbrigðisyfirvalda Ósló Karolinska Helsinki Sahlgrenska „Vísindi krefjast þolinmæði og framsýni sem eru viðhorf sem fuku út um gluggann í hruninu og hefur ekki verið litið um öxl síðan,“ segir Magnús Gottfreðsson yfirlæknir. Fram kemur í nýju McKinsey-skýrslunni að aðeins 1,3% heildarútgjalda sé varið í vísindi á Landspítala en hlutfallið sé 3,2% á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg, 8,8% á Óslóar-háskólasjúkrahúsinu og að jafnaði 8,1% á bandarískum háskólasjúkrahúsum. Spítalinn hafi hrunið úr að því vera fremstur í flokki norrænna háskólasjúkrahúsa miðað við áhrifa- stuðul tilvitnana í rannsóknarniðurstöður fyrir fjármálakreppuna í neðsta sætið. Magnús segir þetta sláandi. „En það er líka sláandi að svo virðist sem skorti á innri sannfæringu eigandans sjálfs fyrir því að það sé nauðsynleg og rétt ákvörðun að efla spítalann sem háskólasjúkrahús.“ Hann veltir fyrir sér hvort hnignun spítalans hafi haf- ist þegar hann var gerður að háskólaspítala. „Það læðist að manni sá grunur að samein- ing spítalanna í öflugt háskólasjúkrahús hafi ekki verið einlægur ásetningur yfirvalda held- ur aðferð til að afla stuðnings efasemdafólks við samein ingaráformin á sínum tíma og leið þeirra til að búa til einokunarstofnun.“ Eftir sameiningu hafi svo verið hafist handa við að þjarma að rekstrinum með því að taka út úr honum það sem hægt var. „Vísindi eru arðbær. Þau búa til nýja þekkingu, jafnvel er talað um sérstakan iðnað í því samhengi og vísindastarf dregur okkar best menntaða starfsfólk að starfseminni, eyk- ur starfsánægju og gæði þjónustunnar. Sumar rannsóknir tala um að ávöxtun vísindastarfs skili 25% ávöxtun og McKinsey bendir á það í skýrslunni. Eru til betri fjárfestingakostir?“ spyr Magnús. „Skortur á vísindastarfi er meiriháttar ógn við starfsemi háskólasjúkrahúss, því við munum eiga í erfiðleikum með að halda uppi gæðum og manna lykilstöður án þess. Meðalaldur í mörgum sérgreinum er orðinn hættulega hár innan Landspítala. Fjöldi sérfræðilækna innan sumra sérgreina hefur hrunið og stöður eru ómannaðar eða mannaðar tímabundið af erlend- um farandlæknum. Spítalinn er raunverulega að komast í þrot.“ Steinunn og Magnús horfa til Heilbrigðis- stefnu yfirvalda til 2030 en þar er stefnt á að standa jafnfætis norrænum háskólasjúkrahús- um. Steinunn segir að ná þurfi þeirri stöðu sem fyrst. „Þetta er spurning um vilja. Það þarf ekki meira til. Það þarf að taka þessa ákvörðun. Þetta er ekki flóknara en það.“

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.