Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 173 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Dóra Lúðvíksdóttir lungna- og ofnæmis- læknir Landspítala‚ lektor við læknadeild Háskóla Íslands doralud@landspitali.is Rómverski meistarinn Quintilianus (35 eftir Krist) vissi að góður nætursvefn gæti styrkt minnið. Hann taldi einnig að orsök svefnleysis (insomnia) væri í raun ekki skortur á svefni heldur of miklar áhyggjur. doi 10.17992/lbl.2022.04.684 Svefninn er okkur öllum lífsnauðsynlegur til að við- halda heilbrigði. Þessi vitneskja hefur verið þekkt frá fornu fari. Rómverski rit- og ræðumeistarinn Quintilianus (35 eftir Krist) vissi að góður nætursvefn gæti styrkt minnið og fengið okkur til að muna ýmislegt sem við töldum okkur hafa gleymt. Hann taldi einnig að orsök svefnleysis (insomnia) væri í raun ekki skortur á svefni heldur of miklar áhyggjur sem oft má til sanns vegar færa. Íslendingar hafa löngum unnið langan vinnudag og með tilkomu togaranna í byrjun 20. aldar stóðu hásetarnir vaktina jafnvel sólarhringunum saman ef afli var mikill. Líklegt er að örsvefn (dúr, micro sleep) hafi verið algengur á þessum löngu vökum og jafnvel átt þátt í hárri slysatíðni sjómanna. Vökulögin sem sett voru árið 1921 eftir margra ára baráttu tryggðu íslenskum sjómönnum 6 tíma hvíld á ólarhring og voru mikilvægt skref til að tryggja öryggi sjómanna. Vel þekkt er einnig aukin slysatíðni vansvefta ökumanna í umferðinni. Rannsóknir sýna að hluti unglinga virðist ekki ná ráðlögðum svefntíma og þeir unglingar sem sofna seint eru í meiri hættu á ofþyngd og glíma oftar við andlega vanlíðan og kvíða. Draumar hafa lengi verið mönnum ráðgáta og hlutverk þeirra enn að sumu leyti óljóst. Þó er vitað að draumsvefn minnkar magn streitu- hormónsins noradrenalíns í heila og draumar eru taldir eiga þátt úrvinnslu erfiðra tilfinningalegra upplifana við áföll og missi. Draumsvefninn virðist Sef ég nóg? þannig eiga þátt í að fínstilla tilfinninganæmi okkar og auka samskiptahæfni og minnka kvíða. Á vegum Embættis landlæknis er í undirbúningi vitundarvakning um mikilvægi svefns til að stuðla að bættum svefni Íslendinga og verður fylgst með svefni barna og ungmenna en einnig svefni full- orðinna og eldra fólks og verður spennandi að fylgj- ast með þeim niðurstöðum. Notkun alls kyns heilsuúra sem gefa upplýs- ingar um svefnlengd og gæði er nú orðin býsna al- geng og fáum við læknar ósjaldan óskir um nánari túlkun á slíkum niðurstöðum. Sýnist sitt hverjum um gagnsemi þessara upplýsinga: hvort þær auki skilning og þekk- ingu eða ýti mögulega undir kvíða fyrir því að sofa ekki nóg. Grein Bryndísar Benedikts- dóttur og félaga hér á eftir er far- ið yfir rannsóknir á svefnvenjum Íslendinga og tengsl svefnlengdar og heilsufars. Þar kemur meðal annars fram að bæði of stuttur (<6 klukkustundir) og langur svefn (>9 klukku- stundir) tengj ast meiri dánartíðni, áunninni sykur- sýki, efnaskiptavillu (metabolic syndrome) hjarta- og æðasjúkdómum, kransæðasjúkdómum, heilaáfalli, þunglyndi og fleiri sjúkdómum. Það virðist því gilda um svefn eins og svo margt annað að „lagom är bäst“ eins og Svíar segja, eða að meðalhófið er oftast farsælast. Dóra Lúðvíksdóttir MD, PhD Specialist in Pulmonary Medicine and Allergology Dept. of Allergy, Respiratory Medicine and Sleep, Landspítali University Hospital, Faculty of Medicine, University of Iceland, Reykjavík Am I getting enough sleep? Heimildir • Guðmundsson SE. Öryggi þjóðar frá vöggu til grafar. Þætti úr sögu velferðar 1887-1947. Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík 2020. • Walker M. Þess vegna sofum við. Bókafélagið, Reykjavík 2020. • Vitundarvakning um mikilvægi svefns til að bæta svefn Íslendinga. landlaeknir.is/utgefid-efni/skjal/item47579/ - mars 2022.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.