Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 211 „Það er dýrmætt að vera frískur. Á því áttar maður sig sérstaklega eftir að hafa unnið svona lengi á spítala – að geta verið það áfram og gert annað líka.“ Hann hafi hugsað vel um heilsuna, hugað að matar- æði, hreyfingu og harmoníu í lífinu með hjálp og fyrir tilstuðlan konu sinnar Kar- inar Eriksson. „Hún er svæfingahjúkrunarfræðingur sem fylgdi mér heim úr sérnámi í Svíþjóð og vann hér á Landspítala nánast frá fyrsta degi. Til að byrja með á ýmsum deildum spítalans en vinnur nú í litlu fyrirtæki okkar sem kemur að fjármálum. Hún er algjör orkubolti,“ segir hann. „Hún hefur alla tíð verið mjög áhugasöm um heilsu og séð til þess að ég kemst ekkert upp með að borða óhollt. Svo hreyfum við okkur mikið,“ segir hann en tiltekur þó ríkari ástæðu góðs sambands. „Stuðningur heima fyrir á dögum þegar hlutirnir ganga ekki eins og maður vænti er ómetanlegur þegar vinnan er svona krefjandi og maður hefur líf og limi fólks í lúkunum,“ segi hann. „Oft er ekki snúið til baka. Ef menn ganga of nærri sjúklingum getur það valdið varanlegu meini. Ég upplifi því mikilvægt að hafa bandamann heima fyrir. Það er hluti af harmóníunni.” Við ræðum tækniframfarir, tæki og þrívídd, og kemur þá í ljós að hann hef- ur heillast af tækninni. Er kominn með prentara heima hjá sér og farinn að hanna og framleiða ýmsa hluti. Sker út samsett nafn þeirra hjóna, Karon, Karin og Aron, í hönnuðu hlutina og leikur sér að formum og efni. „Já, ég hannaði til að mynda þessa sápueiningu fyrir nýtt baðherbergi okkar í Svíþjóð,“ segir hann, sýnir mynd á sím- anum og vísar í nýja íbúð þeirra hjóna í hæstu blokk Stokkhólms, 37 hæðir. Íbúð þeirra er rétt um hana miðja. „Við förum út um helgina að standsetja,“ segir hann og er spenntur. Með æxli á við appelsínu Aron er nýkominn af göngudeildinni þegar hann sest niður með Læknablaðinu. Þar hitti hann konu sem hann skar góð- kynja æxli á stærð við appelsínu úr við framheila báðum megin fyrir jól. Hún hafði misst minnið, hætt að hirða um sig, sem hann segir geta verið lúmskt merki heilaæxlis. Aron Björnsson, yfirlæknir heila­, og taugaskurðdeildar Landspítala, B6, er rétt að hætta eftir ríkan feril. Hann hefur margt á sínu borði og hefur einnig hugsað sér að ferðast. „Við Karin eigum börn í Ameríku, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi.“ Mynd/gag „Æxlið er hvergi sjáanlegt lengur á nýrri mynd og hún á hröðum batavegi. Hún sagði mér að hún væri farin að tala 8 tungumál en ég gleymdi að spyrja hana hvað hún talaði mörg fyrir,” segir Aron og hlær. „Hún mun nú áfram ná bata og vænt- anlega fara aftur í vinnu. Þetta er ánægju- legt á meðan við glímum oftar við illkynja æxli þar sem horfurnar eru ekki góðar. Þá skiptir máli að tryggja að sjúklingurinn sé samt ánægður með meðferðina sem hann fær. Fólk bæði sjái og upplifi að við gerð- um hvað við gátum.“ 27 þúsund aðgerðir á fimmtugri deild Heila- og taugaskurðlækningar hafa nú verið gerðar í hálfa öld á Landspítala. Haustið 1971 voru fyrstu tvær aðgerðirnar gerðar og deildin svo formlega opnuð árið eftir. „Á þessum árum hafa 27.000 aðgerðir verið gerðar á deildinni sem alltaf hefur verið til húsa í Fossvogi,“ segir Aron Björnsson yfirlæknir deildarinnar sem er nú að hætta. Höfuðaðgerðir, bak- og ýmsar taugaaðgerðir. „Þeim hefur fjölgað ár frá ári og eru um 700-800 á ári. Við teljum samt að enn, rétt eins og þegar ég byrjaði, sé nóg að hafa fjóra sérfræðinga. Það þarf að vera nóg að gera fyrir alla,“ segir hann. „Annars verða duglegir skurðlæknar ekki ánægðir í vinnunni.“ Ljóst er að með Aroni fer hafsjór af fróðleik og þekkingu. Hann stressast þó ekki við að skila deildinni af sér. „Ég veit að gott fólk tekur við,“ segir hann og ætl- ar ekki að koma að vali á eftirmanni, enda þekki hann þar til og viti að erfitt verði að velja úr hópnum. „Það er engin launung að í hópnum eru tveir af mínum mönn- um og 5 erlendis frá. Ég kem því ekki að þessu vali.“ Stoltur? „Já, já, það hefur gengið vel, en maður á kannski ekki að segja sjálfur til um það. En ég geng sáttur frá borði. Já.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.