Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 203 „Sjaldan hafa jafnmargir, átt jafnfáum, jafnmikið að þakka, án þess að gera sér grein fyrir því“ Ég leyfi mér hér að ofan að vitna í hin fleygu orð Winstons Churchill með smá- vægilegum áherslubreytingum um leið og ég horfi um öxl og rifja upp síðustu misseri í lífi mínu og margra heilbrigðis- starfsmanna. Vorið 2020 var haldinn lokaður fundur svæfinga- og gjörgæslulækna starfandi á Íslandi í skugga faraldurs sem átti eftir að hafa mikil áhrif á heimsbyggðina. Tilefni fundarins var nýr óvinur, kórónaveira sem aldrei hafði sést áður, en breiddist út með ógnarhraða og virtist afar skæð. Vísbendingar voru þegar farnar að ber- ast frá læknum á Ítalíu um afleiðingar faraldursins á vestrænt heilbrigðiskerfi og lýsingarnar þaðan voru allt annað en hughreystandi. Öll vissum við á fundinum að Ísland væri illa undirbúið og að gjörgæslurými landsins væru alltof fá. Öll vissum við að öndunarvélar Landspítala voru fáar og löngu komnar á tíma, en útboði Landspítala um kaup á nýjum öndunarvélum var frestað í sein- ustu sparnaðaraðgerðum. Öll vissum við að íslenska heilbrigð- iskerfið myndi bresta næði veiran að breiðast óhindrað um íslenskt samfélag. Framundan væru erfiðar ákvarðanir um hverjir ættu að fá að lifa og hverjir myndu deyja. Óopinberar spár gerðu ráð fyrir að mörg hundruð ef ekki þúsund Íslendingar myndu liggja í valnum. Mikill undirbúningur hófst við að mæta hinum nýja óvini, en tíminn var skemmri inni á Landspítala en flesta grunaði. Strax í upphafi varð ein af fyrstu hópsýkingum veirunnar á Íslandi meðal starfsmanna á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi, litlu munaði að síðasta vígið í baráttunni við faraldurinn myndi falla á fyrstu dögunum. Í framhaldinu skall hver kórónuveirubylgjan á fætur annarri á landsmönnum og heilbrigðisstarfsmenn náðu sjaldnast að jafna sig milli átaka. Hægt og rólega fórum við að læra á hinn Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. svæfinga- og gjörgæslulæknir theodorsku@hotmail.com Theódór Skúli Sigurðsson síbreytilega óvin, árangursríkar bólusetn- ingar hófust og vísindaleg gögn unnin úr tölfræðilegum upplýsingum sýndu á endanum að veiran hafði breyst og olli vægari einkennum. Óhætt virtist vera að létta á samfélagslegum takmörkunum sem á endanum höfðu nær eingöngu snúist um að verja viðkvæmt heilbrigð- iskerfið. Öllum hefði samt átt að vera ljóst að lokaorustan yrði dýrkeypt með óheftri útbreiðslu veirunnar og að fórnarkostnað- urinn yrði einkum talinn í fleiri dauðsföll- um hjá viðkvæmum sjúklingahópum. Kórónaveirufaraldurinn afhjúpaði bresti íslenska heilbrigðiskerfisins og lærdóm- arnir voru margir á leiðinni. Andlát af völdum veirunnar á Íslandi voru samt með því lægsta sem þekkist í heiminum og þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður getum við verið stolt af árangri Íslands. Árangur- inn getum við þakkað útsjónarsömu og duglegu heilbrigðisstarfsfólki, öflugum sóttvarnaaðgerðum og samstilltum við- brögðum almennings í landinu. Mikilvægt er að átta sig á því að ár- angurinn í baráttunni við kórónaveiruna hefur ekki verið án fórna, því veikindi og langtímafjarvistir heilbrigðistarfsfólks eru nú í sögulegu hámarki. Heilbrigðisstofn- anir þurfa að grípa inn í þessa atburðarás, styðja við starfsfólkið og hjálpa því að komast á rétta braut. Hver einasti starfs- maður er ómissandi, því að reynslan og þekkingin sem býr í hverjum og einum er ómetanleg. Í dag er skortur á starfsfólki ein stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins. Slíkt endur- speglast einna helst í skorti á legurýmum heilbrigðisstofnana, með viðvarandi álagi á bráðamóttökur, frestunum skurðað- gerða og óhóflegum þrýstingi á útskriftir sjúklinga. Leita þarf allra leiða til að leysa þetta mönnunarvandamál og gera allt til að koma til móts við óskir heilbrigðis- starfsmanna, hvað varðar laun, vinnutíma og vinnuumhverfi. Staðreyndin er sú að íslenska heil- brigðis kerfið náði aldrei að rétta úr kútn- um eftir efnahagshrunið og í dag ætti öllum að vera ljóst að ennþá vantar fjár- magn inn í heilbrigðiskerfið. Hlutfallslega minna af vergri þjóðarframleiðslu er varið í heilbrigðismál á Íslandi samanborið við nágrannalöndin og þótt aðeins hafði verið aukið við fjárframlög seinustu ár er það alls ekki nóg til að endar nái saman. Það er von undirritaðs að nýr forstjóri Landspítala fái nauðsynlegt svigrúm til að móta nýja stefnu og skilgreina betur hvaða þjónustu spítalanum beri að veita. Mikilvægt er að losa Landspítala undan sligandi skuldahala síðustu ára, bæta við fjárframlög og láta af sífelldum sparnað- arkröfum í heilbrigðiskerfinu. Vonandi er tími uppbyggingar íslenska heilbrigð- iskerfisins loksins hafinn. Á heilbrigðisstofnunum landsins gerast þrátt fyrir allt lítil kraftaverk alla daga við erfiðar aðstæður. Hugsjón og eldmóður þeirra starfsmanna sem eru í framlínunni er einstakur, slíkt ber að varðveita og standa vörð um inn í bjartari framtíð. Til minningar um móður mína, Auði Theodórs meinatækni, sem helgaði allt sitt líf íslenska heil­ brigðiskerfinu, en lést úr kórónaveirunni 14. febrúar 2022. LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna Árni Johnsen Þórdís Þorkelsdóttir Félag íslenskra heimilislækna Margrét Ólafía Tómasdóttir Oddur Steinarsson Félag sjúkrahúslækna Theódór Skúli Sigurðsson Guðrún Dóra Bjarnadóttir Læknafélag Reykjavíkur Guðmundur Örn Guðmundsson Ingibjörg Kristjánsdóttir Steinunn Þórðardóttir formaður Stjórn Læknafélags Íslands Persónulegt uppgjör við kórónaveiruna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.