Læknablaðið - 01.04.2022, Síða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 203
„Sjaldan hafa jafnmargir, átt jafnfáum, jafnmikið
að þakka, án þess að gera sér grein fyrir því“
Ég leyfi mér hér að ofan að vitna í hin
fleygu orð Winstons Churchill með smá-
vægilegum áherslubreytingum um leið
og ég horfi um öxl og rifja upp síðustu
misseri í lífi mínu og margra heilbrigðis-
starfsmanna.
Vorið 2020 var haldinn lokaður fundur
svæfinga- og gjörgæslulækna starfandi á
Íslandi í skugga faraldurs sem átti eftir að
hafa mikil áhrif á heimsbyggðina. Tilefni
fundarins var nýr óvinur, kórónaveira
sem aldrei hafði sést áður, en breiddist
út með ógnarhraða og virtist afar skæð.
Vísbendingar voru þegar farnar að ber-
ast frá læknum á Ítalíu um afleiðingar
faraldursins á vestrænt heilbrigðiskerfi
og lýsingarnar þaðan voru allt annað en
hughreystandi.
Öll vissum við á fundinum að Ísland
væri illa undirbúið og að gjörgæslurými
landsins væru alltof fá.
Öll vissum við að öndunarvélar
Landspítala voru fáar og löngu komnar
á tíma, en útboði Landspítala um kaup á
nýjum öndunarvélum var frestað í sein-
ustu sparnaðaraðgerðum.
Öll vissum við að íslenska heilbrigð-
iskerfið myndi bresta næði veiran að
breiðast óhindrað um íslenskt samfélag.
Framundan væru erfiðar ákvarðanir
um hverjir ættu að fá að lifa og hverjir
myndu deyja. Óopinberar spár gerðu ráð
fyrir að mörg hundruð ef ekki þúsund
Íslendingar myndu liggja í valnum. Mikill
undirbúningur hófst við að mæta hinum
nýja óvini, en tíminn var skemmri inni
á Landspítala en flesta grunaði. Strax í
upphafi varð ein af fyrstu hópsýkingum
veirunnar á Íslandi meðal starfsmanna
á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi,
litlu munaði að síðasta vígið í baráttunni
við faraldurinn myndi falla á fyrstu
dögunum. Í framhaldinu skall hver
kórónuveirubylgjan á fætur annarri á
landsmönnum og heilbrigðisstarfsmenn
náðu sjaldnast að jafna sig milli átaka.
Hægt og rólega fórum við að læra á hinn
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
svæfinga- og gjörgæslulæknir
theodorsku@hotmail.com
Theódór Skúli Sigurðsson
síbreytilega óvin, árangursríkar bólusetn-
ingar hófust og vísindaleg gögn unnin
úr tölfræðilegum upplýsingum sýndu á
endanum að veiran hafði breyst og olli
vægari einkennum. Óhætt virtist vera að
létta á samfélagslegum takmörkunum
sem á endanum höfðu nær eingöngu
snúist um að verja viðkvæmt heilbrigð-
iskerfið. Öllum hefði samt átt að vera ljóst
að lokaorustan yrði dýrkeypt með óheftri
útbreiðslu veirunnar og að fórnarkostnað-
urinn yrði einkum talinn í fleiri dauðsföll-
um hjá viðkvæmum sjúklingahópum.
Kórónaveirufaraldurinn afhjúpaði bresti
íslenska heilbrigðiskerfisins og lærdóm-
arnir voru margir á leiðinni. Andlát af
völdum veirunnar á Íslandi voru samt
með því lægsta sem þekkist í heiminum
og þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður getum
við verið stolt af árangri Íslands. Árangur-
inn getum við þakkað útsjónarsömu og
duglegu heilbrigðisstarfsfólki, öflugum
sóttvarnaaðgerðum og samstilltum við-
brögðum almennings í landinu.
Mikilvægt er að átta sig á því að ár-
angurinn í baráttunni við kórónaveiruna
hefur ekki verið án fórna, því veikindi og
langtímafjarvistir heilbrigðistarfsfólks eru
nú í sögulegu hámarki. Heilbrigðisstofn-
anir þurfa að grípa inn í þessa atburðarás,
styðja við starfsfólkið og hjálpa því að
komast á rétta braut. Hver einasti starfs-
maður er ómissandi, því að reynslan og
þekkingin sem býr í hverjum og einum er
ómetanleg.
Í dag er skortur á starfsfólki ein stærsta
áskorun heilbrigðiskerfisins. Slíkt endur-
speglast einna helst í skorti á legurýmum
heilbrigðisstofnana, með viðvarandi álagi
á bráðamóttökur, frestunum skurðað-
gerða og óhóflegum þrýstingi á útskriftir
sjúklinga. Leita þarf allra leiða til að leysa
þetta mönnunarvandamál og gera allt
til að koma til móts við óskir heilbrigðis-
starfsmanna, hvað varðar laun, vinnutíma
og vinnuumhverfi.
Staðreyndin er sú að íslenska heil-
brigðis kerfið náði aldrei að rétta úr kútn-
um eftir efnahagshrunið og í dag ætti
öllum að vera ljóst að ennþá vantar fjár-
magn inn í heilbrigðiskerfið. Hlutfallslega
minna af vergri þjóðarframleiðslu er varið
í heilbrigðismál á Íslandi samanborið við
nágrannalöndin og þótt aðeins hafði verið
aukið við fjárframlög seinustu ár er það
alls ekki nóg til að endar nái saman.
Það er von undirritaðs að nýr forstjóri
Landspítala fái nauðsynlegt svigrúm til
að móta nýja stefnu og skilgreina betur
hvaða þjónustu spítalanum beri að veita.
Mikilvægt er að losa Landspítala undan
sligandi skuldahala síðustu ára, bæta við
fjárframlög og láta af sífelldum sparnað-
arkröfum í heilbrigðiskerfinu. Vonandi
er tími uppbyggingar íslenska heilbrigð-
iskerfisins loksins hafinn.
Á heilbrigðisstofnunum landsins gerast
þrátt fyrir allt lítil kraftaverk alla daga við
erfiðar aðstæður. Hugsjón og eldmóður
þeirra starfsmanna sem eru í framlínunni
er einstakur, slíkt ber að varðveita og
standa vörð um inn í bjartari framtíð.
Til minningar um móður mína, Auði Theodórs
meinatækni, sem helgaði allt sitt líf íslenska heil
brigðiskerfinu, en lést úr kórónaveirunni 14. febrúar
2022.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Árni Johnsen
Þórdís Þorkelsdóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Guðrún Dóra Bjarnadóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Guðmundur Örn Guðmundsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Persónulegt uppgjör
við kórónaveiruna