Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 207 ur. Pabbi setti mig við píanóið og ég spil- aði á það og ræddi læknisfræði við afa. Það var alltaf þetta tvennt og svo hefur mér alltaf fundist gaman að hjálpa fólki. Það vatt upp á sig,“ segir hann. Í náminu ytra sprakk tónlistin hins vegar út; ekki þó sú klassíska sem hann lærði, heldur dans- og raftónlist sem hann semur nú gjarnan á flygil afa síns í stofunni heima. „Þessi flygill var smíðaður í Þýskalandi 1908. Grotrian-Steinweg, frá upprunalega Steinweg fyrirtækinu. Flygillinn er búinn að lifa bæði fyrri og seinni heimsstyrj- öldina í Braunschweig. Afi fékk hann til sín og flutti til Íslands og var með hann í stofunni. Hann ræddi læknisfræðina og svo spilaði ég á píanóið,“ lýsir Victor. „Afi spilaði einmitt á flygilinn eftir erfiðar aðgerðir og hann gaf mér hann áður en hann féll frá. Þetta er flygillinn þinn, sagði hann við mig. Haltu honum í fjölskyldunni.“ Flygillinn er langt frá ljósunum og ryþmanum á klúbbunum í Slóvakíu þar sem hann féll fyrir danstónlistinni. „Þetta er skipulögð tónlist, taktföst og ég fann að ég gæti nýtt píanókunnáttuna og skapað. Þetta opnaði heiminn fyrir mér á fyrsta árinu í læknisfræðinni og frá öðru ári gafst tækifæri til að spila á klúbbum og ég nýtti þau.“ Hann spilaði víða í Slóvakíu, Ungverja- landi og fleiri löndum í kring. Hann var læknaneminn í tónlist. „Hvað eigum við að kalla þig? Þú ert náttúrulega doktor, svo doktorinn? Sögðu klúbbeigendurn- ir. Doctor Victor festist við mig og mér fannst það passa vel.“ Tónlistin sprakk út í námi Hann lýsir því hvernig hann samdi lagið Sumargleðin á lokaárinu í Slóvakíu en það hefur nærri tveggja milljóna hlustun á Spotify. „Þegar ég kom heim til Íslands var það orðið mjög vinsælt og ég tilnefndur nýliði ársins, lagið lag ársins og myndband við lag sem ég gerði með Svölu Björgvins myndband ársins. Ég áttaði mig á því hvað hlutirnir geta gerst hratt. Tónlistin hætti þarna að vera hobbý,“ segir Victor sem hefur klifið stigann síðan. Netflixgláp eða línuleg dagskrá á RÚV fær ekki vigt í lífi hans. „Ég hef þó talað mikið um að halda jafnvægi og þarna sá ég að ég væri með tvo meginpóla; læknisfræðina og tón- listina. Ég mætti ekki missa mig um of í öðrum hvorum,“ segir Victor sem leyfði sér að njóta á milli lestrarlota í Slóvakíu. „Ég setti mér það markmið að spila á stærsta klúbbi Slóvakíu áður en náminu lyki, Ministry of Fun, og úr varð að ég spilaði þar á fimmta ári,“ segir hann og hvernig hann hafi saxað á hvert markmið- ið á fætur öðru, eins og að spila á Þjóðhá- tíð fyrir lok náms. „Ég var kominn á stóra sviðið fyrir framan 15.000 manns áður en lokaárið hófst.“ Krafturinn greip athygli bæjarstjór- ans í Martin sem veitti honum fyrstu heiðursverðlaun í sögu skólans fyrir vel unnin störf. Sony hafi svo boðið honum samning þegar sjötta árinu í læknisfræði lauk. „Ég ætlaði ekki að trúa því að tón- listin væri komin á þennan stall, tónlist læknanema frá Íslandi.“ Victor hefur nú gefið út nokkur lög í gegnum Sony og gengið vel. „Sony hefur höfuðstöðvar út um allan heim og getur tengt mig áfram,“ segir hann. „Þetta er svo stór bransi. Ég geri lagið heima og Victor Guðmundsson er Doctor Victor, tónlistar­ maður með samning við Sony. Hann samdi þemalag Ólympíuleikanna í ár og er með mörg járn í eldinum. Hann starfar sem læknir á Heilsuvernd. Mynd/ gag V I Ð T A L Frosti Sigurjónsson skurð­ læknir og afi Victors gaf barnabarni sínu flygilinn sem hann sjálfur spilaði á eftir langar vaktir. Dagbjört og Victor kynntust á þriðja ári í læknisfræði. Hún lærði í Ungverjalandi. Hann í Slóvakíu. Nú eiga þau lítinn dreng, Frosta, sem skírður er í höfuðið á langafa sínum, skurðlækninum Frosta Sigurjónssyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.