Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 167
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Samanburður við önnur háskólasjúkrahús öskrar á hve illa er stutt við vísindastarf hérlendis,“
segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins: „Vísindastörf skila margfalt því fé sem sett
er í þau.“ Undir það tekur Magnús Gottfreðsson, yfirlæknir vísindadeildar Landspítala
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Slæm staða vísinda merki um
hnignun Landspítala
McKinsey sýni að sérþekkingin
sé vannýtt
Læknar og hjúkrunarfræðingar hér á landi
virðast, í meira mæli en kollegar þeirra á
Norðurlöndunum, vinna störf sem krefjast
ekki sérþekkingar þeirra. Þetta segir Steinunn
Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, eftir að
hafa rýnt í nýju McKinsey-skýrsluna. Skýrslan
staðfesti margt sem læknar hafi bent á.
„Við sjáum þar að hver læknir hefur minni
aðstoð en gerist erlendis og færri sjúkraliðar
eru á hvern hjúkrunarfræðing. Með því að bæta
starfsumhverfi þessara stétta og nýta sérhæfða
starfskrafta þeirra betur, mætti betur takast á
við skort á mannafla í þessum stéttum.“
Áhrifastuðull tilvitnana hjá háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum frá 1999 til 2014
Landspítali
Kaupmannahöfn
Heimild: Mynd 59 í McKinsey-skýrslu heilbrigðisyfirvalda
Ósló
Karolinska
Helsinki
Sahlgrenska
„Vísindi krefjast þolinmæði og framsýni sem
eru viðhorf sem fuku út um gluggann í hruninu
og hefur ekki verið litið um öxl síðan,“ segir
Magnús Gottfreðsson yfirlæknir.
Fram kemur í nýju McKinsey-skýrslunni
að aðeins 1,3% heildarútgjalda sé varið í
vísindi á Landspítala en hlutfallið sé 3,2% á
Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg, 8,8% á
Óslóar-háskólasjúkrahúsinu og að jafnaði 8,1%
á bandarískum háskólasjúkrahúsum. Spítalinn
hafi hrunið úr að því vera fremstur í flokki
norrænna háskólasjúkrahúsa miðað við áhrifa-
stuðul tilvitnana í rannsóknarniðurstöður fyrir
fjármálakreppuna í neðsta sætið. Magnús segir
þetta sláandi.
„En það er líka sláandi að svo virðist sem
skorti á innri sannfæringu eigandans sjálfs fyrir
því að það sé nauðsynleg og rétt ákvörðun að
efla spítalann sem háskólasjúkrahús.“ Hann
veltir fyrir sér hvort hnignun spítalans hafi haf-
ist þegar hann var gerður að háskólaspítala.
„Það læðist að manni sá grunur að samein-
ing spítalanna í öflugt háskólasjúkrahús hafi
ekki verið einlægur ásetningur yfirvalda held-
ur aðferð til að afla stuðnings efasemdafólks
við samein ingaráformin á sínum tíma og leið
þeirra til að búa til einokunarstofnun.“ Eftir
sameiningu hafi svo verið hafist handa við að
þjarma að rekstrinum með því að taka út úr
honum það sem hægt var.
„Vísindi eru arðbær. Þau búa til nýja
þekkingu, jafnvel er talað um sérstakan iðnað
í því samhengi og vísindastarf dregur okkar
best menntaða starfsfólk að starfseminni, eyk-
ur starfsánægju og gæði þjónustunnar. Sumar
rannsóknir tala um að ávöxtun vísindastarfs
skili 25% ávöxtun og McKinsey bendir á það í
skýrslunni. Eru til betri fjárfestingakostir?“ spyr
Magnús.
„Skortur á vísindastarfi er meiriháttar ógn
við starfsemi háskólasjúkrahúss, því við munum
eiga í erfiðleikum með að halda uppi gæðum
og manna lykilstöður án þess. Meðalaldur í
mörgum sérgreinum er orðinn hættulega hár
innan Landspítala. Fjöldi sérfræðilækna innan
sumra sérgreina hefur hrunið og stöður eru
ómannaðar eða mannaðar tímabundið af erlend-
um farandlæknum. Spítalinn er raunverulega að
komast í þrot.“
Steinunn og Magnús horfa til Heilbrigðis-
stefnu yfirvalda til 2030 en þar er stefnt á að
standa jafnfætis norrænum háskólasjúkrahús-
um. Steinunn segir að ná þurfi þeirri stöðu sem
fyrst. „Þetta er spurning um vilja. Það þarf ekki
meira til. Það þarf að taka þessa ákvörðun. Þetta
er ekki flóknara en það.“