Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 45
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 261 F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 3 8 . P I S T I L L Niðurtröppun lyfseðilsskyldra lyfja með ávanahættu Ólafur B. Einarsson verkefnastjóri Jón Steinar Jónsson yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu Eins og áður hefur komið fram í pistlum Embættis landlæknis í Læknablaðinu er notkun lyfseðilsskyldra lyfja með ávana- hættu, svo sem sterkra verkjalyfja, róandi lyfja, kvíðastillandi lyfja og svefnlyfja, meiri hérlendis en á hinum Norðurlöndun- um. Ástæðan fyrir þessu er ekki þekkt. Óumdeilt er að ávanahætta er af notk- un þessara lyfja, aukaverkanir talsverðar, neikvæð áhrif þeirra á færni, svo sem ökufærni er vel þekkt og langtímanotkun á háum skömmtum hefur í för með auknar líkur á ótímabæru andláti.1 Umrædd lyf eru að sjálfsögðu oftast viðeigandi sem hluti af meðferð en í ljósi mikillar notkun- ar hérlendis hlýtur að vakna sú spurning hvort þörf eða gagn sé af meðferðinni í öllum tilvikum. Að hætta notkun lyfja með þessa eig- inleika reynist oft erfitt fyrir sjúklinga en samkvæmt góðum starfsháttum lækna2 verður læknir að hitta sjúkling sem er á slíkri meðferð reglulega og meta árangur af meðferð, þörf fyrir áframhaldandi með- ferð og möguleika á niðurtröppun. Sérstakt viðfangsefni er notkun lyfj- anna umfram ráðlagða skammta sam- kvæmt Sérlyfjaskrá. Á síðustu 10 árum hefur þeim fækkað um 18,7% sem fá ávísanir á háa skammta af svefnlyfjum og róandi lyfjum en voru þó á síðasta ári 2000 einstaklingar (mynd 1).3 Flestir sem fá ávísað róandi lyfjum, kvíðastillandi lyfjum og svefnlyfjum nota þau samkvæmt fyrirmælum á lyfseðli. Mjög margir fá þó ávísanir á svefnlyf mun lengur og einhverjir stærri skammt en leið- beiningar lyfjaframleiðenda í Sérlyfjaskrá kveða á um eins og mynd 1 sýnir. Sérstak- lega er vert að gjalda varhug við notkun fleiri ávanabindandi lyfja samtímis, sem og áfengis, sem hluta af fjöllyfjameðferð og sérstaklega hjá eldri einstaklingum. Ríflega 28.000 manns leystu út ávísun fyrir zópíklón og/eða zolpídem á síðasta ári og 25.000 róandi lyf og kvíðastillandi lyf. Þar af voru 8508 sem leystu út ávísanir á lyf úr báðum flokkum á sama tíma (inn- an 60 daga) og fjöldi 65 ára og eldri sem leysti út þessi lyf á sama tíma var 4265.3 Sérstaklega ber læknum að upplýsa þá sjúklinga sem nota lyf úr þessum lyfja- flokkum um þau áhrif sem þau kunna að hafa á ökuhæfni. Sem dæmi segir í Sér- lyfjaskrá að eftir einn skammt af imovane 7,5 mg sé ekki æskilegt að stjórna ökutæki næstu 12 klukkustundir. Elín Jacobsen lyfjafræðingur, Guðlaug Þórsdóttir öldrunarlæknir og Kristján Ingólfsson hönnuður hafa í samvinnu við Embætti landlæknis og með styrk frá Lyfjafræðingafélagi Íslands gefið út ís- lenska útgáfu bæklings frá The Canadian Deprescribing Network sem er verkfæri til stuðnings við niðurtröppun róandi lyfja, kvíðastillandi lyfja og svefnlyfja. Embætti landlæknis og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu hvetja lækna til að nýta þenn- an bækling sem heitir Þér kann að vera hætta búin og er á heimasíðunum landlaeknir.is og Lyfjasvið (throunarmid- stod.is) sem verkfæri í þessu mikilvæga máli, niðurtröppun lyfseðilsskyldra lyfja með ávanahættu. *Meira en tveir skilgreindir dagskammtar á dag (>730 DDD). **ATC flokkar N03AE01, N05BA01, N05BA02, N05BA04, N05BA08, N05BA12, N05CD01, N05CD02, N05CD03, N05CD05, N05CD08, N05CF01, N05CF02, N05CM02. Heimildir 1. Linnet K, Sigurdsson JA, Tomasdottir MO, et al. Association between prescription of hypnotics/ anxiolytics and mortality in multimorbid and non- -multimorbid patients: a longitudinal cohort study in primary care. BMJ Open 2019; 9: e033545. 2. Góðir starfshættir lækna. Embætti landlæknis, Reykjavík 2017. landlaeknir.is/servlet/file/store93/item32436/ Godir_starfshaettir_laekna_31.5.2017.pdf - apríl 2021. 3. Lyfjagagnagrunnur Embættis landlæknis.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.