Læknablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 29
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 245
„Það er einróma álit að við tökum við góðu búi þótt rekstur Öldrunarheimila
Akureyrar hafi verið áskorun,“ segir Teitur Guðmundsson, læknir og
framkvæmdastjóri Heilsuverndar
Dótturfélag Heilsuverndar tekur við
öldrunarþjónustunni á Akureyri
F R É T T I R
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Heilsuvernd hjúkrunarheimili, sem er
dótturfélag Heilsuverndar, sjálfstætt starf-
andi heilbrigðisfyrirtækis, hefur samið
við Akureyrarbæ og Sjúkratryggingar
Íslands um að taka við öldrunarheimilum
bæjarins frá maíbyrjun. Með samningnum
bætast 320 starfsmenn í hópinn. Íbúar eru
173 í hjúkrunarrýmum, 8 í dvalarrýmum
auk 35 dagdvalarrýma.
„Öldrunarheimilin eru einn stærsti
vinnustaðurinn á Akureyri. Ábyrgðin
er því heilmikil. Tækifærið er gríðarlega
spennandi og ekkert launungarmál að við
horfum til enn frekari rekstrar á heilbrigð-
issviði,“ segir Teitur.
„Með þessum samningi sjáum við að
okkur er treyst, og trúum að svo verði
áfram, fyrir hinum ýmsu verkefnum. Við
þökkum fyrir það,“ segir Teitur sem var
á Akureyri þegar Læknablaðið náði tali af
honum.
Samningurinn byggir á þeim ramma-
samningi ríkisins um öldrunarheimilin
sem styr hefur staðið um síðustu misseri.
Fjögur sveitarfélög, Akureyrarbær fyrst,
sögðu honum upp í vetur. Rekstrarstaða
þjónustunnar hefur verið erfið og einka-
rekin öldrunarþjónustufyrirtæki hafa sagt
starfsfólki upp vegna fjárskorts.
„Við þurfum að skoða stöðuna í ró-
Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar,
segir félagið ekki skorast undan ábyrgð á rekstri öldr-
unarþjónustu sem sveitarfélögin treysta sér ekki til að
gera. Mynd/gag
legheitum og trúum að hún vænkist á
næstunni,“ segir Teitur. Félagið þekki vel
til, það komi nú þegar að læknisþjónustu
fyrir 750 rými. „Við sjáum tækifæri til
áframhaldandi þróunar í þjónustunni
og væntum mikils af framtíðinni, meðal
annars í kjölfar svokallaðrar Gylfaskýrslu“
segir Teitur deginum áður en skýrslan um
rekstrarvanda hjúkrunarheimila var birt.
„Við erum bjartsýn. Þetta verður áskor-
un. Við ætlum ekki að skorast undan
henni heldur standa okkur með prýði.“
Lífið framlengt í
Laugardalshöllinni?
„Af hverju er ég hérna?“ spurði einn
þeirra sem sat í röð í Laugardalshöll við
það að verða bólusettur þriðjudaginn 20.
apríl. „Ertu ekki með undirliggjandi sjúk-
dóm?“ spurði heilbrigðisstarfsmaðurinn á
móti. „Nei, en ég á afmæli,“ svaraði hann
kátur. Starfsmaðurinn sagði þá að boð
hefðu verið sent út til að klára bóluefnið.
Þennan dag var það Pfizer fyrir fólk
með undirliggjandi sjúkdóma. Byrjað var
á alvarlegustu sjúkdómunum. Þeir sem
bólusettir voru þennan dag bættust við
hóp þeirra 70.482 einstaklinga sem hafa
fengið í það minnsta fyrri bólusetningar-
skammtinn sinn. Hátt í 29.700 höfðu þann
19. apríl verið fullbólusettir samkvæmt
COVID.is, upplýsingasíðu Embættis land-
læknis. Mynd/gag