Læknablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 33
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 249
92% gegn alvarlegum sjúkdómi. Bóluefnið
verndar vel gegn breska afbrigði veirunn-
ar, sem olli 80% af smita í rannsókninni.12
Einn skammtur veitti 46% vernd og tveir
skammtar 92% vernd gegn staðfestri
SARS-CoV-2 sýkingu, en 43% smitaðra
voru einkennalausir.12 Þeir sem voru
bólusettir með Pfizer-bóluefninu, en smit-
uðust samt, höfðu fjórum sinnum minna
veirumagn en óbólusettir, smitaðir13. Pfiz-
er-bóluefnið verndar gegn sjúkdómi og
sýkingu af völdum upprunalega og breska
meira smitandi afbrigðis veirunnar, og
dregur líklega úr smiti milli manna.
mRNA bóluefni Moderna
Tveir skammtar af bóluefni Moderna
gefnir með fjögurra vikna millibili veittu
94,1% vernd gegn COVID-19 sjúkdómi (30
þúsund þátttakendur), svipaða óháð aldri,
kyni og kynþætti. Vernd hjá 65 ára og
eldri var 86% og vernd gegn alvarlegum
COVID-19 sjúkdómi var 100%.14 Áætlað er
að einn skammtur af Moderna-bóluefninu
dragi minnst 61% úr smiti.15 Meðalslæmar
skammvinnar aukaverkanir voru al-
gengari hjá þeim bólusettu en viðmiðum,
alvarlegar aukaverkanir voru sjaldgæf-
ar.14 Ofnæmislost varð við 2,5 af milljón
bólusetninga með Moderna-bóluefninu.16
Þeim sem hafa fengið alvarleg bráðaof-
næmisviðbrögð er ráðlagt að ráðfæra sig
við lækni.
Janssen COVID-19 veiruferjubóluefnið
Einn skammtur af Janssen-bóluefninu
veitti 67% vernd gegn COVID-19 sjúkdómi
(40.000 þátttakendur), 85,4% vernd gegn
alvarlegum, lífshótandi sjúkdómi. Verndin
var yfir 63% í öllum aldurshópum, báð-
um kynjum, ólíkum kynþáttum og fólki
með undirliggjandi sjúkdóma. Vernd
gegn sjúkrahúsinnlögn vegna COVID-19
var 100%.17 Janssen-bóluefnið sýndi 74%
vernd gegn einkennalausri sýkingu,17 sem
bendir til að það gæti þannig dregið úr
smiti. Öryggi taldist gott og ónæmissvör
einnig.17-19 Þann 13. apríl bárust fréttir af
blóðtöppum við um eina af hverri milljón
bólusetninga með Janssen-bóluefninu,
einkum hjá konum undir 60 ára. Janssen
frestaði dreifingu bóluefnisins meðan
Lyfja stofnun Evrópu mæti hvort tengsl
væru milli bóluefnisins og blóðtappa-
myndunar. Ákvörðun um notkun þess á
Íslandi bíður niðurstöðu stofnunarinnar.
Bólusetningar ganga vel á Íslandi
19. apríl höfðu 70.482 Íslendinga fengið að
minnsta kosti einn bóluefnisskammt, 96%
80 ára og eldri voru fullbólusettir, 94% 70-
79 ára voru bólusettir og 33% fullbólusett-
ir. Nær allt heilbrigðisstarfsfólk og annað
framlínustarfsfólk hefur verið bólusett og
bólusetningar fólks með undirliggjandi
sjúkdóma eru hafnar.20 Bóluefnin veita
mjög góða vernd gegn COVID-19-sjúk-
dómi, en minni gegn sýkingu og draga þó
líklega úr smiti. Þar til búið er að bólusetja
stærstan hluta þjóðarinnar til að ná hjarð-
ónæmi, þarf að tryggja að ný smit berist
ekki inn í landið.
1. Voysey M, Clemens SAC, Madhi SA, et al. Safety and
efficacy of the ChAdOx1 nCoV-19 vaccine (AZD1222)
against SARS-CoV-2: an interim analysis of four
randomised controlled trials in Brazil, South Africa, and
the UK. Lancet 2021; 397: 99-111.
2. Griffin S. Covid-19: AstraZeneca vaccine prevents 79%
of symptomatic disease and 100% of severe disease, US
study finds. BMJ 2021; 372: n793.
3. Voysey M, Clemens SAC, Madhi SA, et al. Single-
dose administration and the influence of the timing of
the booster dose on immunogenicity and efficacy of
ChAdOx1 nCoV-19 (AZD1222) vaccine: a pooled analysis
of four randomised trials. Lancet 2021; 397: 881-91.
4. Bernal JL, Andrews N, Gower C, et al. Early effectiveness
of COVID-19 vaccination with BNT162b2 mRNA vaccine
and ChAdOx1 adenovirus vector vaccine on symptomatic
disease, hospitalisations and mortality in older adults in
England. medRxiv: https://doi.org/10.1101/2021.03.01.212
52652
5. Vasileiou E, Simpson CR, Robertson C, et al. Effectiveness
of First Dose of COVID-19 Vaccines Against Hospital
Admissions in Scotland: National Prospective Cohort
Study of 5.4 Million People. Lancet 2021; SSRN-
id3789264.pdf
6. Greinacher A, Thiele T, Warkenin TE, et al. Thrombotic
Thrombocytopenia after ChAdOx1 nCov-19 Vaccination.
N Engl J Med 2021. 10.1056/NEJMoa2104840.
7. Schultz NH, Sörvoll IH Michelsen AE, et al. Thrombosis
and Thrombocytopenia after ChAdOx1 nCoV-19
Vaccination. N Engl J Med 2021. 10.1056/NEJMoa2104882.
8. Levi M, Thachil J, Iba T, et al. Coagulation abnormalities
and thrombosis in patients with COVID-19. Lancet
Haematol 2020; 7: e438-e440.
9. Dutch COVID & Thrombosis Coalition, et al. Incidence
of thrombotic complications and overall survival in
hospitalized patients with COVID-19 in the second and
first wave. Thromb Res 2021; 199: 143-8.
10. Polack FP, Thomas SJ, Kitchin N, et al. Safety and Efficacy
of the BNT162b2 mRNA Covid-19 Vaccine. N Engl J Med
2020; 383: 2603-15.
11. Shimabukuro T, Nair N. Allergic Reactions Including
Anaphylaxis After Receipt of the First Dose of Pfizer-
BioNTech COVID-19 Vaccine. JAMA 2021; 325: 780-1.
12. Dagan N, Barda N, Kepten E, et al. BNT162b2 mRNA
Covid-19 Vaccine in a Nationwide Mass Vaccination
Setting. N Engl J Med 2021; 384: 1412-23.
13. Levine-Tiefenbrun M, Yelin I, Katz I, et al. Initial report
of decreased SARS-CoV-2 viral load after inoculation
with the BNT162b2 vaccine. Nat Med 2021; doi: 10.1038/
s41591-021-01316-7.
14. Baden LR, Sahly HME, Essink B, et al. Efficacy and Safety
of the mRNA-1273 SARS-CoV-2 Vaccine. N Engl J Med
2021; 384: 403-16.
15. Lipsitch M, Kahn R. Interpreting vaccine efficacy trial
results for infection and transmission. medRxiv 2021:
2021.02.25.21252415.
16. Shimabukuro T. Allergic reactions including anaphylaxis
after receipt of the first dose of Moderna COVID-19
vaccine - United States, December 21, 2020-January 10,
2021. Am J Transplant 2021; 21: 1326-31.
17. FDA Briefing Document. Janssen Ad26.COV2.S Vaccine
for the Prevention of COVID-19. Vaccines and Related
Biological Products Advisory Committee Meeting. fda.
gov/media/146217/download - apríl 2021.
18. Stephenson KE, Gars ML, Sadoff J, et al. Immunogenicity
of the Ad26.COV2.S Vaccine for COVID-19. JAMA 2021;
e213645.
19. Sadoff J, Gars ML, Shukarev G, et al. Interim Results of
a Phase 1-2a Trial of Ad26.COV2.S Covid-19 Vaccine. N
Engl J Med 2021; NEJMoa2034201.
20. Bólusetningar við COVID-19 á Íslandi - tölfræði. covid.is/
tolulegar-upplysingar-boluefni - apríl 2021.
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Heimildir