Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 33

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 33
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 249 92% gegn alvarlegum sjúkdómi. Bóluefnið verndar vel gegn breska afbrigði veirunn- ar, sem olli 80% af smita í rannsókninni.12 Einn skammtur veitti 46% vernd og tveir skammtar 92% vernd gegn staðfestri SARS-CoV-2 sýkingu, en 43% smitaðra voru einkennalausir.12 Þeir sem voru bólusettir með Pfizer-bóluefninu, en smit- uðust samt, höfðu fjórum sinnum minna veirumagn en óbólusettir, smitaðir13. Pfiz- er-bóluefnið verndar gegn sjúkdómi og sýkingu af völdum upprunalega og breska meira smitandi afbrigðis veirunnar, og dregur líklega úr smiti milli manna. mRNA bóluefni Moderna Tveir skammtar af bóluefni Moderna gefnir með fjögurra vikna millibili veittu 94,1% vernd gegn COVID-19 sjúkdómi (30 þúsund þátttakendur), svipaða óháð aldri, kyni og kynþætti. Vernd hjá 65 ára og eldri var 86% og vernd gegn alvarlegum COVID-19 sjúkdómi var 100%.14 Áætlað er að einn skammtur af Moderna-bóluefninu dragi minnst 61% úr smiti.15 Meðalslæmar skammvinnar aukaverkanir voru al- gengari hjá þeim bólusettu en viðmiðum, alvarlegar aukaverkanir voru sjaldgæf- ar.14 Ofnæmislost varð við 2,5 af milljón bólusetninga með Moderna-bóluefninu.16 Þeim sem hafa fengið alvarleg bráðaof- næmisviðbrögð er ráðlagt að ráðfæra sig við lækni. Janssen COVID-19 veiruferjubóluefnið Einn skammtur af Janssen-bóluefninu veitti 67% vernd gegn COVID-19 sjúkdómi (40.000 þátttakendur), 85,4% vernd gegn alvarlegum, lífshótandi sjúkdómi. Verndin var yfir 63% í öllum aldurshópum, báð- um kynjum, ólíkum kynþáttum og fólki með undirliggjandi sjúkdóma. Vernd gegn sjúkrahúsinnlögn vegna COVID-19 var 100%.17 Janssen-bóluefnið sýndi 74% vernd gegn einkennalausri sýkingu,17 sem bendir til að það gæti þannig dregið úr smiti. Öryggi taldist gott og ónæmissvör einnig.17-19 Þann 13. apríl bárust fréttir af blóðtöppum við um eina af hverri milljón bólusetninga með Janssen-bóluefninu, einkum hjá konum undir 60 ára. Janssen frestaði dreifingu bóluefnisins meðan Lyfja stofnun Evrópu mæti hvort tengsl væru milli bóluefnisins og blóðtappa- myndunar. Ákvörðun um notkun þess á Íslandi bíður niðurstöðu stofnunarinnar. Bólusetningar ganga vel á Íslandi 19. apríl höfðu 70.482 Íslendinga fengið að minnsta kosti einn bóluefnisskammt, 96% 80 ára og eldri voru fullbólusettir, 94% 70- 79 ára voru bólusettir og 33% fullbólusett- ir. Nær allt heilbrigðisstarfsfólk og annað framlínustarfsfólk hefur verið bólusett og bólusetningar fólks með undirliggjandi sjúkdóma eru hafnar.20 Bóluefnin veita mjög góða vernd gegn COVID-19-sjúk- dómi, en minni gegn sýkingu og draga þó líklega úr smiti. Þar til búið er að bólusetja stærstan hluta þjóðarinnar til að ná hjarð- ónæmi, þarf að tryggja að ný smit berist ekki inn í landið. 1. Voysey M, Clemens SAC, Madhi SA, et al. Safety and efficacy of the ChAdOx1 nCoV-19 vaccine (AZD1222) against SARS-CoV-2: an interim analysis of four randomised controlled trials in Brazil, South Africa, and the UK. Lancet 2021; 397: 99-111. 2. Griffin S. Covid-19: AstraZeneca vaccine prevents 79% of symptomatic disease and 100% of severe disease, US study finds. BMJ 2021; 372: n793. 3. Voysey M, Clemens SAC, Madhi SA, et al. Single- dose administration and the influence of the timing of the booster dose on immunogenicity and efficacy of ChAdOx1 nCoV-19 (AZD1222) vaccine: a pooled analysis of four randomised trials. Lancet 2021; 397: 881-91. 4. Bernal JL, Andrews N, Gower C, et al. Early effectiveness of COVID-19 vaccination with BNT162b2 mRNA vaccine and ChAdOx1 adenovirus vector vaccine on symptomatic disease, hospitalisations and mortality in older adults in England. medRxiv: https://doi.org/10.1101/2021.03.01.212 52652 5. Vasileiou E, Simpson CR, Robertson C, et al. Effectiveness of First Dose of COVID-19 Vaccines Against Hospital Admissions in Scotland: National Prospective Cohort Study of 5.4 Million People. Lancet 2021; SSRN- id3789264.pdf 6. Greinacher A, Thiele T, Warkenin TE, et al. Thrombotic Thrombocytopenia after ChAdOx1 nCov-19 Vaccination. N Engl J Med 2021. 10.1056/NEJMoa2104840. 7. Schultz NH, Sörvoll IH Michelsen AE, et al. Thrombosis and Thrombocytopenia after ChAdOx1 nCoV-19 Vaccination. N Engl J Med 2021. 10.1056/NEJMoa2104882. 8. Levi M, Thachil J, Iba T, et al. Coagulation abnormalities and thrombosis in patients with COVID-19. Lancet Haematol 2020; 7: e438-e440. 9. Dutch COVID & Thrombosis Coalition, et al. Incidence of thrombotic complications and overall survival in hospitalized patients with COVID-19 in the second and first wave. Thromb Res 2021; 199: 143-8. 10. Polack FP, Thomas SJ, Kitchin N, et al. Safety and Efficacy of the BNT162b2 mRNA Covid-19 Vaccine. N Engl J Med 2020; 383: 2603-15. 11. Shimabukuro T, Nair N. Allergic Reactions Including Anaphylaxis After Receipt of the First Dose of Pfizer- BioNTech COVID-19 Vaccine. JAMA 2021; 325: 780-1. 12. Dagan N, Barda N, Kepten E, et al. BNT162b2 mRNA Covid-19 Vaccine in a Nationwide Mass Vaccination Setting. N Engl J Med 2021; 384: 1412-23. 13. Levine-Tiefenbrun M, Yelin I, Katz I, et al. Initial report of decreased SARS-CoV-2 viral load after inoculation with the BNT162b2 vaccine. Nat Med 2021; doi: 10.1038/ s41591-021-01316-7. 14. Baden LR, Sahly HME, Essink B, et al. Efficacy and Safety of the mRNA-1273 SARS-CoV-2 Vaccine. N Engl J Med 2021; 384: 403-16. 15. Lipsitch M, Kahn R. Interpreting vaccine efficacy trial results for infection and transmission. medRxiv 2021: 2021.02.25.21252415. 16. Shimabukuro T. Allergic reactions including anaphylaxis after receipt of the first dose of Moderna COVID-19 vaccine - United States, December 21, 2020-January 10, 2021. Am J Transplant 2021; 21: 1326-31. 17. FDA Briefing Document. Janssen Ad26.COV2.S Vaccine for the Prevention of COVID-19. Vaccines and Related Biological Products Advisory Committee Meeting. fda. gov/media/146217/download - apríl 2021. 18. Stephenson KE, Gars ML, Sadoff J, et al. Immunogenicity of the Ad26.COV2.S Vaccine for COVID-19. JAMA 2021; e213645. 19. Sadoff J, Gars ML, Shukarev G, et al. Interim Results of a Phase 1-2a Trial of Ad26.COV2.S Covid-19 Vaccine. N Engl J Med 2021; NEJMoa2034201. 20. Bólusetningar við COVID-19 á Íslandi - tölfræði. covid.is/ tolulegar-upplysingar-boluefni - apríl 2021. B R É F T I L B L A Ð S I N S Heimildir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.